18.01.1952
Efri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í C-deild Alþingistíðinda. (2352)

70. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. meiri hl. (Karl Kristjánsson):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur fyrir, er lítið fyrirferðar, þótt stórt sé málið, En þótt málið sé stórt í sjálfu sér, get ég látið vera að eyða löngum tíma í framsögu fyrir nál., af því að afgreiðsla frv. hlýtur að verða einföld.

Fjhn. hefur haft málið til meðferðar, og sendi hún það nokkrum aðilum til umsagnar. Svör hafa komið frá einum aðila, en það er ríkisskattanefnd, og svarið er, að hún mælir gegn samþykkt frv.

Fjhn. klofnaði mjög eðlilega um málið. Fjórir nefndarmanna leggja til, að frv. verði fellt, en fimmti nefndarmaðurinn, flm. frv., leggur auðvitað til, að frv. verði samþ. Rök hans fyrir samþykkt frv. eru ýmiss konar. Hann telur það óheppilegt að afla tekna með hinum beinu sköttum, tekju- og eignarskatti, og leiðir rök að því, að sú skattalöggjöf sé mjög gölluð, sem við eigum við að búa.

Engum dettur í hug að mótmæla því, að tekju- og eignarskattslöggjöfin er að mörgu leyti úrelt og að hún nær ekki fullkomlega tilgangi sínum, enda hefur nú verið ákveðið á Alþ., að endurskoðun hennar skuli fara fram, en meiri hluti n. leit svo á, að ekki væri rétt að fella skattalögin niður og sízt nú, þegar verið er að hefja endurskoðun þeirra.

Ég tel ekki ástæðu til að orðlengja þetta meira. Málið var ýtarlega rætt við 1. umr. þess og tekin afstaða til þess þá. Ég hef ekki orðið var við neina aðila, sem við nána athugun málsins treystast til þess að mæla með afnámi þessarar löggjafar eða hafa það sjónarmið, að ekki þurfi að innheimta skatta, enda stoðar það lítið að mæla þar eins og menn vilja.