18.01.1952
Efri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 20 í C-deild Alþingistíðinda. (2357)

70. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Umr. um þetta mál hafa orðið talsvert miklar síðan það var lagt fram, og ætla ég, að þau rök, sem flutt hafa verið fyrir málinu, hafi bæði verið mörg og ýtarleg. Hv. flm. hefur margt fyrir augum, og hefur það verið eftirtektarvert, ekki sízt hvað þeir skattar, sem hér um ræðir, hafa litla þýðingu í sambandi við aðrar tekjur ríkissjóðs. Það eru margar upplýsingar, sem hv. flm. dregur fram í þessu máli, og tel ég það vel gert. Það er athugavert fyrir mig, og hygg ég, að svo sé um fleiri hv. dm., að þeir hafi ekki athugað skattalögin frá þessu sjónarmiði. Af hálfu þeirra, sem ekki geta fallizt á frv., hafa aftur á móti verið minni rök færð af skiljanlegum ástæðum, vegna þess — býst ég við — að agnúar eru of miklir að samþ. svona mál fyrirvaralaust. Ég tel, — burt séð frá því, hvort ég tek undir öll þau rök og fullyrðingar, sem færð hafa verið þessu máli til framdráttar, — að hv. flm. hafi unnið nokkuð þarft verk að því leyti að draga fram ýmislegt í sambandi við innheimtu á tekju- og eignarskatti og þýðingu hans fyrir þjóðarbúskapinn, verk, sem þarft er að vinna, ekki sízt á þeim tímum, sem nú eru fyrir dyrum, þegar allra hugur stefnir að því, að skattalögin verði tekin til endurskoðunar. Það er vitanlegt, að það er vilji meiri hl. Alþ., síðan þetta frv. kom fram, og hefur Alþ. gert ályktanir um að skora á ríkisstj. að láta fara fram allsherjar endurskoðun á skattalögunum. Við þessa endurskoðun verður þetta mál vitaskuld krufið betur til mergjar en gert hefur verið hér snarlega í þingumr. Mér virðist, eins og nú horfir, eftir því mikla efni, sem hv. flm. hefur dregið saman í þessu máli, bæði á síðasta þingi og nú, að þeir menn, sem fara með þessa endurskoðun skattalaganna, muni líka meta og vega það, sem nú kemur fram af hálfu fim. í þessu máli hans.

Út af þessum hugleiðingum hefur mér komið í hug og ég ákveðið að koma fram með till. til rökst. dagskrár í þessu máli, svo hljóðandi:

„Með því að Alþ. hefur nú samþ. áskorun .til ríkisstj. um að endurskoða skattalöggjöfina í heild og í trausti þess, að við þá endurskoðun verði m. a. athuguð þau rök, sem talin eru til gildis frv. því, er hér ræðir um, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég vona, að form þessarar till. nægi, en tilgangur hennar er sá, sem ég hef þegar lýst. Þessa dagskrá vildi ég mega afhenda hæstv. forseta með beiðni um, að hún verði tekin til atkv., áður en það verður lagt undir úrskurð að fella eða samþ. frv. það, sem hér um ræðir.