27.11.1951
Efri deild: 35. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 25 í C-deild Alþingistíðinda. (2367)

118. mál, eftirlit með opinberum sjóðum

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Ég er samþykkur þessu frv. og ætla, að það sé til bóta: að það verði samþ. En ég stend upp í tilefni af því, að ég held, að það sé heppilegra að lagfæra orðalagið á þessari brtt. frá því, sem það var síðar borið fram. Talað er um, að þess skuli gætt, þegar breyting er heimiluð á skipulagsskrá, að farið sé svo nærri óskum „stofnenda. hennar“ sem hinar breyttu aðstæður leyfa. Datt mér því í hug í sambandi við, að hv. 1. þm. N-M. var að tala um leiðréttingar, að beina því til hans, hvort ekki væri réttara og heppilegra að breyta þessu þannig, að þarna stæði: að farið sé svo nærri óskum sjóðsstofnenda sem hinar breyttu aðstæður leyfa, — í stað þess að nú stendur: „stofnenda hennar“.