19.10.1951
Efri deild: 17. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 31 í C-deild Alþingistíðinda. (2385)
66. mál, byggingu nokkurra raforkuveitna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Hv. flm. hefur lagt til, að þetta mál fari til hv. fjhn. Öll raforkumál hafa verið lögð fyrir iðnn. Ég tel óheppilegt að taka út eitthvert sérstakt mál, því að það eru fleiri en þetta mál af þessu tagi, sem koma til umr. Þess vegna finnst mér eðlilegt, að eitt mál sé ekki slitið úr samhengi við önnur mál af sama tagi. Iðnn. beggja d. hafa fulla samvinnu við raforkumálastjóra, og finnst mér eðlilegt, að svo sé einnig í þessu máli, en því sé ekki vísað til fjhn. Ég segi þetta ekki af því, að ég hafi meiri afskipti af málinu í annarri n. en hinni, því að ég á sæti í þeim báðum, heldur til að slíta það ekki úr samhengi við önnur skyld mál. Ég legg til, að frv. verði vísað til iðnn., eins og venja er um raforkumál. Það er rétt hjá hv. flm., að þetta sé fjárhagsmál, en svo er um öll raforkumál. Þetta er ekki stærra en virkjun Dynjanda, sem er upp á 60 millj., og ýmis önnur mál, sem koma til umr.
Að öðru leyti ætla ég ekki að ræða efnislega um málið, því að ég fæ tækifæri til að lýsa afstöðu minni til þess í n. En sannarlega á þetta mál heima í iðnn., enda hefur hv. rn. samvinnu við þá n. um öll iðnaðarmál.