05.10.1951
Neðri deild: 4. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (239)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Síðastliðið vor urðu almennar hækkanir á kaupgjaldi í landinu. Þegar þessar hækkanir höfðu átt sér stað, þótti ríkisstj., eftir að hafa athugað málið, ekki annað fært en gefa út brbl. þau, sem hér eru lögð fyrir hæstv. Alþ. til staðfestingar á þessu þskj. Leyfi ég mér að vísa til þeirra raka, sem færð voru fram fyrir brbl., og óska, að málinu verði vísað til 2. umr. að lokinni þessari 1. umr.