14.11.1951
Sameinað þing: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 48 í C-deild Alþingistíðinda. (2403)

112. mál, öryrkjahæli

Finnbogi R. Valdimarsson:

Herra forseti. Það hefur þegar komið fram í þessum umr. af hálfu þeirra nm. úr heilbr.- og félmn., sem standa að flutningi þessa frv., að þótt þeir vilji verða við þeirri ósk hæstv. félmrh. að flytja þetta mál, þá er ekki þar með sagt, að þeir vilji ljá þessu frv. fylgi sitt óskorað. Ég hygg, að það þurfi að gera skarpan greinarmun á því, sem til er, og þeim leiðum, sem kunna að vera færar til þess að bæta úr þessari nauðsyn. Ég hygg, að það sé óumdeilanlegt, að hér sé um stórkostlega nauðsyn að ræða.

Þegar ég flutti hér á Alþingi till. um stofnun öryrkjahælis, var mér þegar ljóst, að ekki getur verið um það að ræða að setja á stofn eitt hæli fyrir alla öryrkja í landinu. Ástand alls þess fólks, sem kallast öryrkjar, er svo ólíkt og svo margvíslegar ástæður til þess, að það er óvinnufært, að það getur ekki komið til mála, að það eigi allt heima á einu og sömu stofnuninni.

Í grg., sem fylgdi þessu frv., þegar það kom fyrst fram, var skýrt frá því, að fram hefði farið athugun á því, hvers konar fólk það væri, sem sveitarfélögin teldu hvíla svo á sínum höndum og á almenningi, að hæli þyrfti fyrir það. Var fólkið flokkað eftir þeim ástæðum, sem lágu til örorkunnar. Kom í ljós, að 2/3 hlutar af þessu fólki var geðveikt fólk og fávitar. Einnig var þar meðtalið flogaveikt fólk, sem er skylt þessu fólki. Við umr., sem fram fóru í heilbr.- og félmn., var það atriði orðið alveg ljóst, að það má ekki hugsa sér að setja upp eitt hæli fyrir allt þetta fólk. Af læknisfræðilegum ástæðum getur það ekki komið til mála, að það sé verjandi, og það hefur ekki verið bent á nein skynsamleg rök fyrir því, að það væri rétt, jafnvel ekki þótt þetta hæli væri aðeins hugsað sem biðhæli fyrir fólk með alveg óskylda sjúkdóma, meðan það biði eftir vist á réttu hæli. — Þetta er eitt meginatriði þessa máls. Þess vegna tel ég m. a., að ekki geti komið til mála að samþ. þetta frv. eins og það liggur fyrir. En þar með er ekki sagt, að menn vilji ekki viðurkenna þá nauðsyn, sem fyrir hendi er, og telji ekki sjálfsagt, að úr verði bætt.

En nú er spurningin: Hver á að bæta úr þessari nauðsyn? Ríkið hefur þegar viðurkennt skyldu sína til þess að koma upp og reka hæli fyrir geðveikt fólk og fávita. Árið 1949 var ákveðið að hefja byggingu stórs fávitahælis, sem tæki um 60–70 fávita. Þar með var talið að nokkurn veginn væri bætt úr þeirri þörf, sem væri fyrir slíkt hæli. En í skýrslum sveitarfélaga var upplýst, að það væri 40–50 manns, sem telja yrði fávita og hefðu ekki fengið víst á hæll. Þessi bygging var þá hafin, og stendur hún enn yfir. Var upphaflega ráðgert að byggja þrjú hús, sem hvert rúmaði 22 sjúklinga, en aðeins var ráðizt í að byggja eitt. Þessi bygging hefur nú staðið yfir 2½ ár, og er sýnilegt, að þau verða 3, áður en henni verður lokið. Á Kleppi var byrjað að reisa viðbótarbyggingu fyrir 34 sjúklinga. Eru nú liðin 6 ár síðan byrjað var á henni. — Það er þessi dráttur, sem er ástæðan til þess, að sveitarfélögin bera sig upp og krefjast úrbóta í þessum efnum. Þessi dráttur er hreinasta hneyksli. Ég hef reynt að gera mér grein fyrir því, hvernig á því stendur, að það hefur tekið 6 ár að byggja viðbótarbyggingu fyrir 34 vistmenn. Ég hef einnig reynt að gera mér grein fyrir því, hvernig það getur tekið 3 ár að byggja þetta hús fyrir 22 sjúklinga. Ég hef haft þessa byggingu fyrir augunum í 2½ ár, og ég hef komizt að þeirri niðurstöðu, að þessi dráttur sé hreinasta hneyksli. Stafar þetta af því, að þær stofnanir, sem eiga að fara með þessi mál, vinna hver gegn annarri og vinna þessi skemmdarverk. Sökin liggur m. a. hjá fjárhagsráði. Ég hef fengið upplýsingar um þetta hjá húsameistara ríkisins. Lítur út fyrir, að fjárhagsráð hafi sýnt þeirri ráðstöfun ríkisins að ráðast í að byggja hæli fyrir fávita alveg sérstakan ímugust. Það telur hana ekki rétta og hefur hvað eftir annað neitað um fjárfestingarleyfi fyrir þessa byggingu, eftir að ríkisvaldið hafði ákveðið að ráðast í hana. Árið 1950 takmarkaði það fjárfestingarleyfi, sem þurfti til þess, að hægt væri að halda byggingunni áfram. Gjaldeyris- og innflutningsyfirvöldin neituðu ríkinu um nauðsynlega hluti, sem áttu að vera til þessarar byggingar. — Ég hef ekki kynnt mér eins, hvaða ástæða var til þess, að það tók 6 ár að byggja smáviðbót við geðveikrahælið. En ég hef fullar sannanir fyrir því, að það hafi aldrei staðið á fé. Húsið kostar um 900 þús. kr., eins og það er nú komið. En það voru til yfir 800 þús. kr. í sjóði, þegar ráðizt var í byggingu þess. Auk þess hefur verið viðbót á hverju ári síðan, sem er um 500 þús. kr. Það hefur því ekki þurft að standa á fé. Það er annað, sem hefur staðið á: Fjárhagsráð telur víst bezt, að öll gjaldeyrisleyfi séu veitt heildsölum í Reykjavík, en ekki ríkinu sjálfu, sem er að byggja. Það er þess vegna, sem húsameistari ríkisins, sem stendur fyrir þessari byggingu, fær ekki gjaldeyrisleyfi. Heildsalar hér í Reykjavík krefjast svo gjaldeyrisleyfa fyrir byggingarefni af honum. Þeir vilja ekki láta hann hafa byggingarefni, nema hann afhendi leyfi, sem hann getur ekki fengið. Heildsalarnir vilja fá gjaldeyrisleyfi frá ríkisstofnunum fyrir hvern hlut, sem þær selja þeim, og vilja ekki selja hann að öðrum kosti. Þannig vilja þeir fá tvöföld gjaldeyrisleyfi fyrir vörunni. Það er óskiljanlegt, að ríkið skuli geta látið bjóða sér slíkt, að það geti ekki fengið þau gjaldeyrisleyfi hjá sjálfu sér, sem nauðsynleg eru talin af heilbrigðisstjórninni.

Þetta er ástæðan til þess, að það hefur tekið 3 ár að koma upp hæli fyrir fávitana í landinu. Þess vegna stendur nú þjóðin uppi með sína fávita í tugatali, sem hún getur ekki ráðstafað. Og því dettur sveitarfélögunum í hug að ráðast í að byggja fyrir þetta fólk. Það er ekki þar með sagt, að þetta sé rétta leiðin í málinu, heldur er hún sú, að ríkið haldi áfram þeim byggingum, sem ráðizt hefur verið í, og það láti ekki viðgangast það sleifarlag og þann slóðaskap, sem ég hef sýnt fram á.

Ég skal ekkert segja um, hvað verður ofan á hjá heilbr.- og félmn. í þessu máli. Ég tel, að hið eina rétta í þessu sé, að ríkið auki byggingarnar og hælin fyrir fávita og geðveikt fólk í landinu. Einnig gæti verið ástæða til að koma upp hæli fyrir andlega heilbrigt, en líkamlega vanheilt fólk. Ætti það ekki aðeins að vera hæli, heldur heimili, sem gæti veitt þeim, sem vildu, vinnu og gæti tekið að sér vinnu fyrir fólk, sem dvelur þar ekki. Í þessu efni stendur á rannsókn, sem Tryggingastofnun ríkisins átti að láta fara fram, en hefur ekki gert. Átti hún að láta þessa rannsókn fara fram fyrir nokkrum árum, og átti henni að vera lokið fyrir næstu áramót. En það er augljóst, að Tryggingastofnun ríkisins hefur ekki áhuga á nð taka að sér forustu í þessum málum, sem snerta líkamlega öryrkja. Það er skylda, sem var lögfest, þegar tryggingalögin voru sett, að Tryggingastofnunin hefði forustu um þessi mál, en það hefur hún ekki gert.

Ég vil svo að síðustu segja, að ég vona, að það komi fram — fyrst og fremst frá Sambandi íslenzkra sveitarfélaga og þeim áhugamönnum, sem líta skynsamlega á þessi mál till. um lausn þessa máls, sem byggist á öðrum grundvelli en hér er í þessu frv. eins og því er nú komið. Vona ég, að það takist að finna ráð til þess að koma áfram þeim framkvæmdum, sem þegar eru hafnar og sjálfsagt er að halda áfram í þessu efni.