15.11.1951
Neðri deild: 28. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 57 í C-deild Alþingistíðinda. (2416)

107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég held, að hv. þm. A-Húnv. hljóti að sannfærast um, að sú uppástunga, sem hann kom hér með áðan, sé fjarstæða, að hægt sé að koma þessum málum í lag með því að bæta ofan á fasteignamatið, sem nú gildir, eftir ákveðinni hundraðstölu, og það ætti ekki að þurfa að tala um það. Við sjáum, hvernig það tæki sig út, ef t. d. ætti á þann veg að bæta ofan á fasteignamatsverð eyðijarða með sömu hundraðshlutatölu eins og um góðar jarðir væri að ræða, þar sem fasteignamat hefur stórhækkað á þeim síðar töldu frá því, sem það var fyrir tíu árum. — Þá segir hv. þm. A-Húnv., að ef þessi aðferð dæmist ekki fær, væri réttara að hafa þetta öðruvísi þó en í frv. þessu er gert ráð fyrir, og taldi ósamræmi í því, sem ég héldi fram. Þetta er byggt á misskilningi hjá hv. þm. Hann vitnaði í 4. gr. frv., en gekk fram hjá 6. gr. þess. Það er gert ráð fyrir, að þessi leiðrétting á fasteignamatinu fari þannig fram, að matið sé byggt á fasteignalýsingum, sem lágu fyrir við síðasta fasteignamat. Þetta er samkv. 4. gr. Svo kemur 6. gr. frv. til, og þar segir, að það skuli einnig við fasteignamatið taka til greina þær breyt., sem orðið hafa síðan fasteignamatið fór fram vegna verðlagsbreytinga síðan 1940 og vegna breyt. á samgönguskilyrðum, rafmagnslagningum og öðrum félagslegum umbótum, sem gerðar hafa verið síðan 1940. Þetta þýðir það, að t. d. verður mat eyðijarða lækkað frá því, sem það var, o. s. frv. Þetta þýðir m. ö. o. það, að fram fer nýtt fasteignamat í raun og veru, en gömlu fasteignalýsingarnar eru notaðar í staðinn fyrir þá skriffinnsku að gera nýjar jarðalýsingar, nema að því leyti að gera þarf lýsingar á því, sem gert hefur verið til umbóta fasteignunum síðan gömlu jarðalýsingarnar voru gerðar, og þá er grundvöllurinn kominn fyrir endurskoðun matsins. En vegna þeirra breyt., sem orðið hafa á jörðum og fasteignum öðrum, verður að hafa möguleika til þess að meta hverja eign á ný, miðað við breyttar ástæður. en nota bara gömlu lýsingarnar jafnframt. Ég held, að allir sjái, að með þessu er hægt að spara mikið verk, ef notaðar eru gömlu lýsingarnar ásamt lýsingum á því, sem hefur bætzt við verðmæti fasteignanna.

Viðvíkjandi því, sem hv. þm. Borgf. sagði, vildi ég benda á, að það hlýtur að geta orðið nauðsynlegt að breyta matinu til hækkunar eða lækkunar í einstökum héruðum. Það er engin trygging fyrir því, að það verði samræmi í matinu, nema þetta sé hægt, vegna þess að undirmatsnefndirnar hafa ekki með sér svo náið samráð fyrir fram um matið, að því sé hægt að treysta, að þar verði samræmi á milli. En það er mikilsvert höfuðatriði, að samræmið sé sem bezt í þessu efni. Ég er ekki reiðubúinn að gefa yfirlýsingar um það, hvort sú yfirmatsn. gæti hækkað allt matið alls staðar, og þyrfti það að athugast nánar. En ég hygg, að n., sem fer yfir þetta mál á milli umr., taki þá það atriði til íhugunar fyrir 2. umr. og eins athugi það, hvort ástæða væri til að breyta þessu, sem hv. þm. Borgf. minntist á.