29.10.1951
Neðri deild: 19. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 66 í B-deild Alþingistíðinda. (242)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Jón Pálmason:
Herra forseti. Það er augljóst, eins og fram kemur í nál. fjhn., að hún er samþykk að mæla með frv., og má gera ráð fyrir, að það verði samþ., ekki sízt þar sem um brbl. er að ræða. En engu að síður vil ég leyfa mér að segja nokkur orð, af því að ég er n. algerlega ósammála um þetta mál og álít, að þetta sé eitthvert stærsta mál, sem nú liggur fyrir þingi.
Það mun hafa verið seint í ágúst, að ég fékk send heim til mín þessi brbl., og ég verð að segja það, að ég hrökk við, þegar ég sá, að þau fela ekkert annað í sér en það, að nú á að fara að setja aftur í fullan gang þá vísitöluskrúfn. sem hefur verið aðalverkefni síðustu ára að stöðva eins og gert var með gengisbreytingarlögunum.
Svo var til ætlazt með gengisbreytingarlögunum, að verðlagsuppbót á laun félli niður um mitt ár 1951. Nú er meiningin, að þessu verði breytt, og þar með er kippt undan því fótunum, að dýrtíðin í landinu verði stöðvuð, því að dýrtíðin er grundvölluð af launahækkunum og sköttum. Nú er það upplýst af fjmrh., að á seinni hluta þessa árs kemur ríkið til með að þurfa að greiða 18 millj. í hækkuðum launum, og stafar það mest af þessum brbl. Hér er með öðrum orðum verið að fara inn á þá braut að hleypa skrúfunni í fullan gang aftur, og ég vil fyrir mitt leyti vera fyrir utan þann leik, því að hann mun hleypa öllu fjárhagskerfi landsmanna í strand áður en lýkur. Og sú tilraun, sem gerð var af minnihlutastjórn Sjálfstfl. til að stöðva dýrtíðina varanlega, er gersamlega eyðilögð um leið og þessi lög eru samþ. Þá er allt komið um leið í sama farið aftur. Þetta get ég ekki látið hjá líða að láta í ljós, um leið og ég lýsi því yfir, að ég mun greiða atkvæði á móti þessu frv.