27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 70 í C-deild Alþingistíðinda. (2434)
107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.
Jón Pálmason:
Herra forseti. Það var nú þannig ástatt með fyrri hl. umr. þessa máls hér í hv. d., að hún var um hánótt og ekki nema örfáir þm. á fundi, svo að þm. almennt gátu ekki heyrt rök þau, sem ég hafði fram að færa, og ráðherra sá, sem mál þessi heyra undir, var ekki viðstaddur. Vegna þessa verð ég að endurtaka sumt af því, sem ég sagði í minni fyrri ræðu.
Fjmrh. tók það fram, að auðsætt væri, að ég væri andvígur endurskoðun fasteignamatsins. Þetta er að vissu leyti rétt. Ég vil ekki stofna til nýs fasteignamats, enda þótt ég sé þeirrar skoðunar, að rétt muni vera að hækka það nokkuð og hafa náið eftirlit með því, sem og öllum endurbótum, sem gerðar hafa verið síðan metið var síðast. Allar byggingar hafa verið teknar af skattanefndum, eða a. m. k. þar, sem þær hafa gert skyldu sína. Hins vegar liggur orð á, að skattanefndir sums staðar hafi brugðizt skyldu sinni. Annars hafa jarðræktarframkvæmdir ekki verið teknar inn í matið. Þetta vil ég láta setja inn í matið og allar umbætur verði reiknaðar á sama hátt og gert var þegar fasteignamat fór fram. Hitt er svo annað mál, hvað rétt er að hækka matið mikið.
Hæstv. ráðh. sagðist vera undrandi yfir því, að allir væru ekki á sama máli um endurskoðun matsins. Við erum sammála að vissu marki. Báðir viljum við láta hækka matið, en ég vil ekki stofna til nýs mats, heldur láta Alþ. ráðstafa því, hvað mikið skuli hækka matið. Ef hér væri um meiri hl. þm. að ræða með því að skipa undir- og yfirmatsnefnd, þá held ég að væri nær að afnema l. frá 1945 og taka upp þá reglu að láta matið fara fram á 10 ára fresti. Ég vil ekki láta vera þarna neitt millistig eða ófullkomna endurskoðun. Lögin frá 1945 um að framlengja matið úr 10 í 25 ár voru samþ. vegna þess, að mönnum óx í augum sá kostnaður, sem varð við síðasta fasteignamat, og hefði verið haldið áfram eins og var, þá hefði það haft þá þýðingu, að fasteignamat hefði alltaf verið í gangi hér í landi. Það þarf a. m. k. 5 ár til að ganga frá fasteignamati. Hér er því um gagnstæða skoðun að ræða hjá mér. Ég vil ekki fara út í þann kostnað, sem af því mundi leiða að endurskoða matið, heldur hækka það eitthvað. Á grundvelli minna tillagna geta menn komið með till. um meiri hækkun.
Undantekning frá þeirri reglu að tvöfalda matið er, að þetta sé flokkað í 3 flokka. Aðalreglan sé tvöföldun, en þó sé veitt sú heimild, að ekki sé gerð hækkun á eyðijörðum eða afréttarlöndum. Hins vegar sé heimilt á öðrum jörðum að hækka um 50%. Ég ætla yfirskattanefndum að reikna út og ákveða flokkun á jörðunum.
Annars hafa komið hér fram undarlegar skoðanir, ekki sízt frá hæstv. ráðh. og hv. þm. V-Húnv. Hv. þm. V-Húnv. sló því fram, að alltaf mætti 10- til 15-falda núverandi fasteignamat, og svipaðrar skoðunar gætti hjá hæstv. ráðh. Nú er það auðvitað, að ýmsir eru þarna á milli, eftir því, hvaða hugmynd menn gera sér um þetta. Ég hef þá skoðun, að sú ólga, sem nú er í öllu fjármálakerfi okkar, sé spilaborg. sem bráðlega hrynji, og ekki sé lengi hægt að hafa útgjöld ríkissjóðs 400 millj. og miða við það söluverð, sem nú fæst. Ég vil fullyrða, eins og nú er ástatt hér í Rvík, ef þetta yrði 10- til 15faldað og ýmis gjöld yrðu látin halda því hlutfalli, þá yrði að taka eignirnar með lögtaki upp í skattana. Og ég vil segja, að ef þetta kæmist á, yrðu flestar fasteignir eign bæjarfélagsins, því að fasteignaskattarnir eru nú þegar allerfiður baggi á flestum. Það er t. d., að í stað þess að vatnsskattur er nú 2 millj., þá yrði hann 20 millj., og annað eftir því. Hitt má segja að sé lágt í farið, að gera till. um að tvöfalda matið. Þetta er álitamál, en þýðir að tvöfalda alla skatta af þessum fasteignum í landinu og meira en það, vegna þess að samkv. mínum till. er til þess ætlazt, að allar umbætur, sem gerðar hafa verið síðan fasteignamat fór fram, séu teknar inn í matið á sama grundvelli.
Hæstv. fjmrh. var að tala um, að það væri stór breyting orðin á þessu tímabili á öðrum sviðum, sem hefði raskað hlutföllunum í þjóðfélaginu. Þetta er satt. En hver segir, að það hlutfall haldist lengi óbreytt, t. d. í 10–15 ár? Hver veit, hvort ekki eru meiri líkur til þess en verið hefur, að það verði allt eins arðvænlegt að búa í sveitum, sem fólkið hefur flúið frá, eins og að vera í fjölmennustu bæjunum. þar sem er yfirvofandi atvinnuleysi? Hér er því um það stórt mál að ræða, að bezt er að hafa vaðið fyrir neðan sig og fara ekki út í öfgar á þessu sviði. Ég vil láta Alþ. ákveða hækkunina; en ekki leggja það undir þriggja manna n., hverjir sem í henni kynnu að vera, því að samkvæmt frv. á þriggja manna n. að ákveða það með aðstoð, hvað matsverðið skuli vera hátt og hvaða hlutfall eigi að vera innan einstakra héraða, en undirmatinu getur þessi yfirnefnd breytt eftir vild. Ég tel, að bezt sé að hafa valdið á þessu sviði í höndum þeirra manna, sem mestan kunnugleika hafa á þessum hlutum og með þetta hafa haft að gera undanfarin ár, en það eru yfirskattanefndir og undirskattanefndir í hverju héraði, því að það eru þær, sem á hverju ári reikna út, hvernig skuli leggja skatt á þessar eignir. Þessar nefndir hafa bezt skilyrði til þess að skera úr um það, hvaða flokkun eigi að vera þarna á milli, en hið raunverulega mat vil ég ekki leggja í þeirra hendur, annað en að flokka í þrjá flokka. Það er ekki einasta fasteignaskattur, sem hækkar við þetta, heldur er það eignarskattur, vegagjöld, símagjöld, vatnsskattur og margvísleg fasteignagjöld, sem öll bæjarfélög munu hækka stórkostlega og sum jafnmikið og fasteignamatið hækkar. Þetta verkar á svipaðan hátt og það, að t. d. verðtollur, söluskattur o. s. frv. hækkaði alltaf eftir því, sem vörur hækkuðu í verði og eftir því sem erfiðara er fyrir almenning að kaupa vöruna. Það vita allir, að þær miklu tekjur, sem ríkissjóður hefur fengið á þessu yfirstandandi ári. stafa eingöngu af því, að vörurnar hafa hækkað í verði og innflutningurinn vaxið vegna minnkandi viðskiptahafta. Um leið og allar fasteignir hækka stórkostlega frá því, sem er, þótt ekki væri nema fjórfalt, sem mér þykir of mikið, þá þýðir það gífurlega hækkun á húsaleigu í hverju bæjarfélagi og jarðaleigu í öllum sveitum, því að afgjöld af eignum hlytu að hækka um leið og skattarnir yrðu hækkaðir til muna á þessum eignum.
Hv. þm. Borgf., hv. 2. þm. Skagf. og hv. 2. þm. Eyf. hafa flutt hér brtt., sem útbýtt er á þessum fundi, og hafa tveir þeirra talað fyrir þessum brtt. hér. Samkvæmt þeim vilja þessir þm. Láta fara fram mat og vilja gefa það á vald matsnefnda, hvað eigi að hækka mikið; þó má ekki fara yfir fjórföldun á því mati, sem nú er, og fjórfalda jarðabætur og húsabætur, sem gerðar eru á öllum fasteignum. Þetta er aðalatriði, sem gerir það að verkum, að ég gæti aldrei samþ. 1. till. þeirra, sem er á þskj. 355, það er vegna þess, að þeir gera ráð fyrir að halda yfirmatsnefndinni, sem á að ráða, hvernig hlutföllin eru gerð, en ekki láta Alþ. skera úr um það, hvernig hlutfallshækkunin á að vera. Þar að auki er undarlegt, að þeir segja hér í 1. lið till., að það eigi að meta samgöngubætur og enn fremur eigi að meta rafmagnslagningar og aðrar félagslegar umbætur. Ef á að meta þetta allt, þá verður það nokkuð mikið, sem þar kemur til greina. En að mínu áliti kemur aðeins til greina, hvernig á að flokka eftir því, hvaða umbætur hafa orðið í hlutaðeigandi byggðarlagi eða jörð. — En ég vil svo aftur segja, að ég get fallizt á 2. brtt. þessara manna, því að það er alveg í samræmi við 12. brtt. mína á þskj. 328. Það er aðeins nákvæmar orðað hjá þessum mönnum, en er alveg það sama, sem fyrir okkur vakir, svo að út af fyrir sig þarf sú till. ekki að valda ágreiningi. Varðandi 3. till., um það, að gjöld skuli miðast við grunngjald á eign, þ. e. allt nema fasteignaskatturinn, þá stenzt það ekki vel. Það gæti staðizt með einstök gjöld, t. d. vegagjöld, en til þess er þessi breyt. öll gerð, að fasteignaskatturinn skuli fylgja sömu hlutföllum og hækkunin, og þá er tæplega hægt að komast hjá því, að eignarskatturinn lúti sömu lögum og hækkunin á fasteignum verður, því að það er kannske aðalatriðið.
Hv. þm. Borgf. fór nokkuð út í að lýsa því, af hvaða orsökum það væri, að hann gæti ekki fallizt á að fylgja mínum brtt. Hann vill ekki sleppa matsnefndunum, og það er eitt aðalatriðið í þessu máli.
Við höfum nóg stjórnarvöld til þess að reikna út þá hækkun, sem hér á að gera. Fjmrn. er ekkert of gott til að gera þá reikninga, og þó að það þyrfti að taka einhverja nýja starfsmenn. þá yrði það miklu ódýrara en að fara að setja saman þriggja manna n. með skrifstofustjóra og nýrri skrifstofu, sem ekki væri ódýrari, heldur miklu dýrari en fasteignaskrifstofan, sem var á Amtmannsstíg 1 í nokkur ár. Það þarf enga nýja skrifstofu til þess, það er hægt að gera það í einhverju herbergi í Arnarhvoli og láta þessa útreikninga fara fram, þegar búið er að undirbyggja þá af skattyfirvöldunum heima í héruðunum.
Þá var hv. þm. Borgf. að tala um, að það mundi ekkert verða ódýrara að fara eftir minni till. um það að láta skattanefndir og fjmrn. annast þetta en að setja upp matsnefndir í hverju héraði og eina yfirnefnd. Ég er honum ósammála um þetta. Það er hægt að hafa það ódýrara samkvæmt minni till. en eftir því, sem frv. gerir ráð fyrir. Það eru aðallega yfirskattan., sem ég ætlast til að hafi þetta verk með höndum í héruðunum, en með leiðbeiningum, tillögum og upplýsingum frá undirskattan., sem á hverju ári verða að láta þær af hendi við yfirskattan. hvort sem er, sem þó yrði nákvæmara en ella, og yfirskattan. yrðu þá að hafa í þetta sinn nánara eftirlit með því, að undirskattan. fylgdu þeirri skyldu að láta millimat fara fram á öllum eignum, sem það á að fara fram á. — Varðandi jarðabætur, þá liggur einfaldast fyrir, þar sem þær eru mældar á hverju ári og Búnaðarfélag Íslands hefur skýrslur um allar jarðabætur, að það sé skyldugt til þess að gefa þær skýrslur upp sem nákvæmast við hverja yfirskattan.
Þá kom það fram hjá hv. þm. Borgf., sem kemur fram í till. hans og hans félaga, að hann vill hafa rýmra ákvæði til þess að breyta hlutföllunum í matinu. En það er það stóra mál, sem ég er ekki sammála um. Þó að aðferðin væri óbreytt eins og hún er í mínum till., þá yrði það áreiðanlega ódýrara. Annars verður auðvitað meiri hl. hér á Alþ. að ráða um það, þó að mínar till. að öðru leyti væru samþ. Meiri hl. verður að ráða því, hvaða hlutfall á að hafa, en ekki einhver þriggja manna n., hvort sem hún er skipuð af fjármálaráðherra eða hún er kosin af Alþingi.
Hv. þm. V-Húnv., frsm. og form. n., talaði hér nokkur orð í nótt, eftir að ég talaði um þetta mál, og fór að vísu ekki langt í frv., því að hann hafði gert það áður, en tók það fram, að samkv. l. frá 1945 væri gert ráð fyrir því að samræma matið, ef miklar verðlagsbreyt. yrðu, og það er náttúrlega tilgangurinn með öllum þeim till., sem hér liggja fyrir, að samræma að einhverju leyti þær skiptu skoðanir um það, hvað langt eigi að ganga í því.
Þá sagði þessi hv. þm., að rangt væri að tala um, að samkv. frv. ættu öll bæjarfélög að borga allan kostnað af matinu. En þetta er ekki rangt, því að samkvæmt frv. er gert ráð fyrir því, að bæjar- og sveitarfélög fái fasteignaskattinn, en frá honum sé dreginn allur kostnaður við matið, og það þýðir, að bæjar- og sveitarfélögin verða að kosta allt þetta mat, hvort sem það er ein eða fleiri milljónir, en það verður áreiðanlega dýrt, ef frv. er samþ.— Þá sagði hv. þm. V-Húnv., að engin sanngirni væri í því að láta sömu reglur gilda um t. d. allar jarðir, því að það væru mjög mikil bil á milli þeirra, m. a. innan sömu sveitar, og þetta er rétt, enda geri ég ráð fyrir því í mínum till., að það megi flokka jarðir í þrjá flokka. Það er t. d. svo um allar jarðir. sem ekki hafa fengið samgöngur, þannig að viðunandi sé, að þær eru undanþegnar hækkuninni að hálfu eða öllu leyti. Annars er það svo, að samkvæmt upplýsingum, sem gefnar eru á árinu. þegar lokið var við þetta fasteignamat, þá stendur það, að hús hér í Reykjavík voru metin þrisvar sinnum hærra verði en hús í sveit. Við skulum segja, að einhver maður, sem hér á heima í Reykjavík, t. d. hæstv. forsrh., ætti jafngott hús og ég norður á Akri, þá á samkvæmt þeim reglum, sem við höfðum, þegar matið fór fram, að meta hans hús þrisvar sinnum hærra en mitt, og þess vegna tel ég, að í þeim hlutföllum sé komið nokkurt bil til þess að jafna það, sem eðlilegt er, að öll hús séu miklu hærra metin hér í fjölmenninu en í sveitunum. Þetta er áreiðanlega rétt, enda hlaut það svo að vera.
Ég hef orðið var við, að þau ákvæði, sem hér voru samþ., þegar núv. ríkisstj. tók við, varðandi stóreignaskattinn, þar sem gerð var sú ráðstöfun að sexfalda allt matsverð fasteigna hér í Reykjavík og í lægsta hlutfalli þrefalda, — ég hef orðið var við, að þetta verkar illa, því að þetta var mjög fjarstætt ákvæði og kom illa við þá, sem þessi skattur lagðist á. Ég veit dæmi þess, að það hefur gerzt samtímis, að útgerðarmenn hafa verið settir í nokkurra tuga þúsunda stóreignaskatt, en jafnframt verið auglýstir í Lögbirtingablaðinu til skuldaskila. Ætli það yrðu ekki margir auglýstir til gjaldþrota, ef ætti að fara að tífalda allt fasteignamat í bæjum, þó að ekki væri farið svo langt í sveitunum? Hér er þess vegna það á ferðinni, að það er miklu betra að fara varlega í þessa hluti en að flana að svona stórmáli eins og sumu öðru, sem hér er sett í gegnum Alþ., bæði á undanförnum árum og verið er að nú.