27.11.1951
Neðri deild: 34. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 75 í C-deild Alþingistíðinda. (2435)
107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.
Emil Jónsson:
Herra forseti. Ég vildi aðeins ekki láta þetta mál fara hér í gegn við umr. án þess að minnast á eitt atriði sérstaklega, sem í frv. felst. — Það er út af fyrir sig með leiðréttingu á fasteignamatinu, að það getur á vissan hátt verið eðlilegt og hefur sín rök, en í niðurlagi frv., 11. gr., er gert ráð fyrir, að eftir að kostnaður við fasteignamatið hefur að fullu verið greiddur samkv. þessum l., þá skuli fasteignaskatturinn renna til bæjar- og sveitarfélaga. Ég minnist þess í sambandi við svipað mál áður, þar sem var frv. til l. um, að helmingur söluskattsins rynni til sveitarfélaga, að hæstv. fjmrh. tók létt á því og sagði eitthvað á þá leið, að ríkisstj. mundi sjá vel fyrir því með því að afhenda bæjar- og sveitarfélögum fasteignaskattinn. Mér skilst, að með þessu frv., þó að það heiti frv. til l. um endurskoðun fasteignamatsins, þá sé verið að uppfylla þetta fyrirheit. Að vísu er gert ráð fyrir því, að þessi skattur renni ekki til bæjar- og sveitarfélaga fyrr en greiddur hafi verið kostnaður við matið. Eftir því sem ég skildi hv. þm. A-Húnv., þá getur sá kostnaður orðið mikill, og þess vegna er spurning, hvort það verður á næsta ári, sem bæirnir fá að sjá einhvern hluta af þessum skatti. Fasteignaskatturinn er áætlaður í fjárlfrv. nú 700 þús. kr., og það mætti vel segja mér, að kostnaður við þetta mat næmi kannske þeirra upphæð og jafnvel meira, svo að það mundi vera borin von, að bæjar- og sveitarfélögin fitnuðu mikið af því svona á næstunni. En þar til svarar hæstv. ráðh. því, að með hækkuðu fasteignamati komi þetta betur út fyrir bæina, því að þeir fái hækkaðar tekjur á þann hátt. En út af því sérstaklega vil ég segja það, að það var ekki á þann hátt, sem bæirnir óskuðu eftir því að fá tekjur sínar hækkaðar, og þeir geta ekki fengið þær að verulegu leyti hækkaðar á þennan hátt. Það er komið svo um borg og bæ og víða í sveitum landsins einnig, að það er ekki hægt að kreista meira út úr fólkinu, sem þar býr, vegna þess að ríkið er áður búið að taka álíka upphæð úr vasa almennings og nemur öllum útsvörunum, eða 100 millj. kr. og vel það. Hér er þess vegna lagt til, að bæjar- og sveitarfélögunum verði hjálpað með því að vísa þeim á þá tekjustofna, sem raunverulega eru ekki til. — Í frv. því, sem ég minntist á áðan um skiptingu á söluskattinum, er lagt til, að tekinn verði hluti af honum, ef honum verður fram haldið, og lagður til bæjanna, og það er annað mál en að vísa þessum aðþrengdu bæjarfélögum á að leggja hærri skatta á sína meðborgara. Það gætu þau gert án þessa frv. með því að hækka útsvörin, ef skattstofn væri fyrir hendi, en það er hann ekki. Það, sem þess vegna þarf í þessu tilfelli til að draga sum þeirra að landi og bjarga öðrum út úr neyð, er það, að það séu, án þess að leggja frekari byrðar á skattþegnana, auknar tekjur viðkomandi bæjar- og sveitarfélaga. Nú hefur það sýnt sig, að tekjuafgangur ríkissjóðs á síðasta ári hefur orðið æði mikill. Mönnum ber að vísu ekki saman um, hve mikill hann sé; hæstv. fjmrh. hefur viljað draga nokkuð úr því, hvað hann væri mikill, en því hefur verið haldið fram af þm. hér og komið fram í þingskjölum, að söluskatturinn væri kannske lægri, þó að hann væri yfir 100 millj. kr., heldur en tekjuafgangur ríkissjóðs, þannig að ríkissjóður hefði getað fellt hann alveg niður og samt komið út án þess að hafa greiðsluhalla. Nú hefur ekki verið farið fram á í því frv., sem ég minntist á, að ríkissjóður legði fram nema helming af söluskattinum, og mætti þá virðast, að hann mundi komast sæmilega af, miðað við þá útkomu, sem varð árið sem leið, með þeim helmingi, sem þá yrði eftir.
Ég vildi aðeins ekki láta þetta frv. fara fram hjá, án þess að á þetta væri bent, og ef bæjar- og sveitarfélög ættu að fá 700 þús. kr. til skipta. þá væri það að meðaltali 5 kr. á hvert mannsbarn, eða svona 5–10 þús. kr. á hvert sveitarfélag, og allt, sem umfram væri framfærslu, væri jafnvel tekið til viðbótar við aðra skatta, sem m. a. ríkissjóður gengur bezt fram í að hirða. Þetta er þess vegna ekki leið til að bjarga bæjarfélögunum, hvort sem leiðin er farin með söluskatti eða ekki. Æskilegast væri að geta afnumið hann, því að ef söluskatturinn er afnuminn, þá hækka útsvörin eða hægt væri að taka upp einhvern skatt eins og þennan. En að taka hvort tveggja, halda söluskattinum og bæta þessu við, það er ekki hægt.