29.10.1951
Neðri deild: 19. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 68 í B-deild Alþingistíðinda. (244)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Mér leikur nokkur forvitni á að vita, á hverju ræða hv. þm. A-Húnv. byggðist. Ég hygg, að þar geti tvennt komið til greina. Annars vegar, að hér sé um að ræða mikinn misskilning hjá hv. þm., hann haldi, að hér sé um annað og meira að ræða en staðfestingu á bráðabirgðalögum, sem kveða á um uppbót á launagreiðslur til opinberra starfsmanna. Hins vegar er það líka hugsanlegt, að hv. þm. vilji ekki láta greiða opinberum starfsmönnum fulla verðlagsuppbót á sín laun, eftir að nær allar launastéttir landsins hafa fengið slíka uppbót með samningum. Hæstv. fjmrh. hefur nú gert glögga grein fyrir því, að þetta frv. fjallar einvörðungu um það, að starfsmenn ríkisins fái greidda verðlagsuppbót á laun sín til samræmis við aðra launþega. Ég vildi miklu fremur mega trúa því, að hv. þm. hafi bókstaflega misskilið þetta frv., en hafi svo ekki verið, þá hefur komið þarna fram svo furðulegt afturhaldssjónarmið hjá hv. þm., að bæði mig og aðra hlýtur að reka í rogastanz. Sú skoðun, sem hann hefur þá verið að láta í ljós í ræðu sinni, er sú, að eftir að nær allar stéttir eru búnar að tryggja sér fulla verðlagsuppbót á kaupgjald sitt, bæði verkamenn, iðnaðarmenn og bændur þá líka, þar sem þeir fá hækkun á afurðaverði sínu í hlutfalli við kauphækkun vissra launastétta í kaupstöðum, — eftir að allar stéttir aðrar en opinberir starfsmenn eru búnar að fá með samningum ákvæði um fulla verðlagsuppbót, þá ættu opinberir starfsmenn einir að verða útundan og kaup þeirra þá raunverulega að lækka. Ef þetta hefur verið skoðun hv. þm. A-Húnv., þá kemur þar fram svo furðuleg rangsleitni í garð ríkisstarfsmanna, að á því ber að vekja sérstaka athygli og hreyfa um leið andmælum gegn henni. Þegar þess er líka gætt, að hér á í hlut einn áhrifamesti þm. þingsins, hæstv. forseti sameinaðs þings, ber enn frekar að veita því athygli, ef það skyldi vera skoðun hans, að rétt sé að beita opinbera starfsmenn þvílíku ranglæti sem fall þessa frv. mundi hafa í för með sér. Það er ástæða til þess, að menn taki eftir slíkri afstöðu og festi sér hana í minni.