11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 86 í C-deild Alþingistíðinda. (2456)
107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Þetta mál, sem hér er um að ræða, þ. e. endurskoðun fasteignamatsins, hefur verið til meðferðar í n., sem ég á sæti í, þ. e. fjhn., og hefur nú ekki verið samkomulag um málið þar. Undir meðferð málsins hér í d. hafa komið fram ýmsar brtt., og sýnist vera nokkur skoðanamunur milli hv. þm. um afgreiðslu málsins. Það er rétt að láta það koma fram, að þess hefur verið freistað að ná samkomulagi um afgreiðslu málsins, sem ekki hefur nú orðið, og í framhaldi af því hef ég leyft mér að flytja brtt. við hina rökst. dagskrártill., sem hv. þm. Siglf. (ÁkJ) flytur í þessu máli. Efnislega er enginn munur á till. minni og till. hv. þm. Siglf., en ég hef þó lagt til, að sú breyt. verði á henni gerð, að hún umorðist eins og fram kemur á þskj. 566. Aðalefni málsins er svo samkv. þessum till. báðum að vísa frv. frá á þessu stigi málsins, og vil ég fyrir mitt leyti rökstyðja till. mína með því, að fyrir dyrum standi heildarendurskoðun skattal. í framhaldi af till., sem ég hef flutt í Sþ. ásamt hv. þm. Ak. Er í till. vitnað til þess, að telja megi, að sú till. verði samþ., vegna þess að það er vitað, að minn flokkur mun styðja till., og hæstv. forsrh. hefur lýst yfir hér í d. og einnig á öðrum vettvangi, að þetta mál muni ná fram að ganga í þinginu. Nú kynni svo að vera, að þm. sýndist samt sem áður, að ekki væri með öllu viðkunnanlegt að afgr. slíka till. eins og þessa, meðan ekki lægi beint fyrir um afgreiðslu hins málsins. En þar sem ekki er gert ráð fyrir. að þingið standi lengi úr þessu og till. til þál. um endurskoðun skattalöggjafarinnar er til meðferðar í hv. fjvn., sýndist mér ekki óeðlilegt, að að lokinni þessari umr. yrði atkvgr. frestað, því að ef henni yrði frestað, þó að ekki væri nema til næsta fundar, mundi kannske liggja fyrir nánari vitneskja um þau örlög, sem áminnzt till. um endurskoðun skattalöggjafarinnar mundi hljóta í sameinuðu þingi.