11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í C-deild Alþingistíðinda. (2461)
107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég ætla aðeins að segja örfá orð. Dagskrártill. stenzt ekki fullkomlega, enda þótt fasteignamatið mundi hækka eignarskattinn til ríkisins. Það er rétt að taka fram, að þótt skatturinn sjálfur hækki, þá er hann ekki aðalatriðið, sem skiptir hér máli. Það er hægt að leiðrétta fasteignamatið, en láta skattinn standa óbreyttan, ef menn hefðu þá skoðun. Þess vegna sýnist mér höfuðrök þessarar dagskrártill. ekki standast, ef litið er á aðalatriðið. Hv. þm. hefur haldið því fram, að hann væri á móti þessu máli nú vegna þess, að það ætti að hnýta saman ný l. vegna tekna bæjar- og sveitarfélaga og endurskoðun fasteignamatsins, en ég sé ekki ástæðu til þess. Mér finnst vera hægt að taka þessa leiðréttingu eða endurskoðun sem mál út af fyrir sig og finnst eðlilegt að afgreiða þetta á þennan hátt. Því hefur verið haldið fram, að þetta væri ekki hægt, en ég hef fært fram ástæðu fyrir þessari skoðun og sýnist, að ekki þurfi að hengja þetta saman.
Út af því, hvort nauðsynlegt væri að leiðrétta fasteignamatið, hefur það komið fram, að fasteignamatið sé aðalskattstofn. Þetta er ekki rétt, það hefur aðra þýðingu. Það hefur verið upplýsingar um verðmæti eigna. Þegar menn afla upplýsinga um verðmæti eigna í sambandi við viðskipti, líta menn á fasteignamatið. Af þessari ástæðu er ekki sízt nauðsynlegt, að hlutföllin í fasteignamatinu séu nærri lagi. Það er ekki aðeins vegna skatta, heldur einnig af ýmsum öðrum ástæðum. Það er ekki vani að meta eignir á kostnaðarverði, en þýðingarmest er, að hlutfallið sé rétt, vegna þess að menn afla sér upplýsinga um verðmæti eigna með því að gá í fasteignamatið. Af þessari ástæðu var ákveðið, að fasteignamatið skyldi endurskoðað á 10 ára fresti. Það er furðulegt, að það skuli nú, þegar 10 ár eru liðin frá síðustu endurskoðun, rísa mótspyrna gegn endurskoðun fasteignamatsins, en á þessum 10 árum hefur orðið meiri breyting á verðlagi en nokkurn tíma áður í sögu landsins. Hér er blandað inn í annarlegum sjónarmiðum, sem ég hef þegar rætt og þykir slæmt, að sé blandað hér inn í. Það er leitt, að ekki er hægt að fá samtök um að samþ. þetta og um leið afhenda fasteignaskattinn til bæjar- og sveitarfélaga.
Ég sé ekki ástæðu til að svara þeim fjarstæðum, sem hv. þm. Siglf. kom með. Það var á honum að heyra, að hann teldi eðlilegt, að þeir, sem rækju iðnað og verzlun, innheimtu söluskattinn og fengju að halda honum til að nota hann í sínar þarfir. Þetta er mórall hv. þm., og finnst honum furðulegt, að ekki sé hægt að framkvæma þetta þannig. Atvinnurekendur taka þetta af fólkinu og skila því svo aftur til ríkisins. Að þessu finnur hv. þm., og finnst mér það furðulegt að láta þessa skoðun koma fram. Það finnst hv. þm. Siglf. ámælisvert, að menn skuli vera látnir skila því, sem þeir innheimta fyrir ríkið. Honum finnst skrýtið, að það skuli ekki látið afskiptalaust, að einkafyrirtæki taki til sinna þarfa það, sem þau innheimta fyrir ríkið. — Hv. þm. tók ýmislegt fleira fram, sem ég hirði ekki um að fjölyrða frekar.