11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 94 í C-deild Alþingistíðinda. (2462)

107. mál, fasteignamat frá 1942 o. fl.

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Í þeirri brtt. við rökst. dagskrána frá hv. 5. þm. Reykv., sem nú liggur fyrir, er vitnað til væntanlegrar heildarendurskoðunar á skattal., og þess vegna vil] hann víkja málinu frá. Ég vil benda á, að það er óeðlilegt að binda þetta saman, sérstaklega þegar þetta er ekki framkvæmt af sömu mönnum. N. þeirri, sem falið er að endurskoða skattal., er ekki falið að endurskoða fasteignamatið. Hér er því ekkert samband á milli. Endurskoðun og lagfæring á fasteignamatinu er ekki skattamál, en hitt er skattamál, að athuga, hvaða opinber gjöld miðast við verð eigna. — Annars er ekki ástæða til að hafa fleiri orð um þetta, en ég vildi víkja að brtt. á þskj. 355, frá hv. 2. þm. Skagf. o. fl. Það er farið fram á, að atkvgr. um 1. brtt. skuli vera þannig, að síðasti liður verði borinn upp sér. Mér skildist á flm., að þeir hefðu ekkert við þetta að athuga. Ég vil spyrja hæstv. forseta, hvort þetta verði ekki þannig, þegar til atkvgr. kemur. Ef einhver vandkvæði eru á þessu, þá mun ég flytja brtt. Mér sýnist vera auðvelt að haga þessu þannig, að bera sér upp síðasta liðinn.