18.01.1952
Efri deild: 64. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 100 í C-deild Alþingistíðinda. (2482)
45. mál, rithöfundaréttur og prentréttur
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Það eru mér vonbrigði að heyra, að Íslendingar eiga ekki fulltrúa í þessari n., þótt það sé eðlilegra að fella sig við rökst. dagskrána, úr því að þær upplýsingar liggja fyrir. — Ég vil í sambandi við þetta benda á, hvort hv. menntmn. hefði ekki fundizt nokkuð harðir kostir t. d. fyrir ekkju rithöfundar, sem hefði getað skapað mikið listaverk fyrir 25 ára aldur og hefði síðan fallið frá og skilið eftir konu, sem gæti vel verið 20 ára með eitt barn og þegar hún væri sjötug, þá tapaði hún öllum tekjum af hans verkum. En þannig er þetta í dag eftir l., að ekkjan gæti vel lifað í 50 ár, án þess að hafa nokkurn eyri af verkum manns síns á eftir, og séð þær tekjur, sem af því kæmu, renna til annarra manna. Mér finnst þetta vera svo stórt atriði, að ég tel, að það beri að athuga það vel, hvort ekki er rétt að gera hér breyt. á. En eins og ég sagði, er ekki að sjá, að rithöfundar hafi komið auga á þetta, og þess vegna skil ég vel afstöðu n. En ég vil samt leggja til, að rökst. dagskráin sé felld og málið fái að ganga áfram.