19.01.1952
Efri deild: 65. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 115 í C-deild Alþingistíðinda. (2508)
102. mál, skipun læknishéraða
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Það eru aðeins örfá orð út af því, sem komið hefur fram við þessa umr.
Hv. 2. þm. S-M. sagði, að það hefði verið misbrestur rá, því, að tveir læknar hafi setið á Egilsstöðum. Það er alveg rétt, en þó upplýsti landlæknir, að það sé alltaf skemmra og skemmra tímabil, sem þar hafi ekki verið nema einn læknir, venjulega hafi verið þar tveir læknar, en ókosturinn við það væri aðallega sá, að það hafi verið svo oft skipt um aðstoðarlækni. Það þykir honum ókostur, en hitt ekki eins. Hann segir, að þess sé náttúrlega ekki að vænta, að aðstoðarlæknir sitji í einu héraði um aldur og ævi, en segir, að nokkur misbrestur hafi orðið á, að læknar fengjust í önnur héruð. Ég veit ekki betur en að í Flatey á Breiðafirði hafi enginn læknir setið í fleiri ár, og sama er að segja um Nauteyrarhérað, með þeim afleiðingum, að læknirinn, sem hefur orðið að sinna læknisþjónustu í þessu héraði, hefur tekið 1½ laun án þess að geta látið í té nokkra verulega læknisþjónustu. Og það er þetta, sem ég er ákaflega hræddur um að verði ekki frekar á Egilsstöðum en víða annars staðar, þar sem læknishéruðum er skipt niður í fámenn héruð.
Annars skal ég taka fram, að málið er ekki afgr. frá n. á þann hátt, að hún ætlist til, að það sé fellt, heldur að það sé betur athugað. N. er raunverulega fullkomlega með því, að héraðið fái næga læknisþjónustu, en vill fá betra samkomulag um, á hvern hátt það verði gert. Eins og ég minntist á áðan, hafa önnur héruð ekki fengið neinn lækni og eru í hreinustu vandræðum. Eins og hv. þm. talaði um, krefst víðlendið og sjúkrahúsið þess, að þarna séu jafnan tveir læknar, og það hefur einmitt verið meginhugsun bæði landlæknis, n. og allra aðila, að þessu stóra héraði væri séð fyrir fullnægjandi læknisþjónustu. Annar aðilinn vill tryggja það með einum föstum lækni og aðstoðarlækni, en fulltrúarnir heima fyrir með tveimur fastskipuðum héraðslæknum. Mér finnst ekkert óeðlilegt, þótt n. legði til, að þeir reyndu að koma sér meira saman um þetta. Þeir eru að vísu sammála heima fyrir, en ágreininginn milli þeirra og landlæknis ætti að vera hægt að jafna. Þannig ætti málunum að vera betur borgið en ef ósamkomulag væri milli þessara aðila og ef þetta væri gert móti vilja og rökum landlæknis. Hann gæti þá sett fótinn fyrir það, að héraðið fengi aðstöðu til þess að hafa lækni, og að því virðist nú stefna.
Mér skilst, að ekkert fordæmi sé fyrir slíkri sambúð sem hér er gert ráð fyrir, og þess vegna leggur n. þetta til. Þetta ætti að vera næg ástæða til þess að samþ. hina rökstuddu dagskrá.
Það er sjálfsagt að fara aðra hvora þeirra leiða, sem vel geta komið til greina, því að það kemur líka til mála að hafa sér hús fyrir lækninn og aðstoðarlækninn, þar sem það á við. Slíkt er t. d. ekki óeðlilegt á Egilsstöðum og Blönduósi, þar sem ég þekki betur til, en í strjálbýlinu verður að taka upp hina stefnuna. En í þessum efnum verður að fara eftir till. þeirra manna, sem á þessu hafa mest vit.
Þetta mál er ekki svo aðkallandi, að það þurfi endilega að afgreiða það á þessu þingi. Það er betra að bíða með afgreiðslu þess í eitt ár, ef það yrði til þess, að um það fengist samkomulag. Það hefur ekkert komið fram um það, hvort læknarnir á Blönduósi og Egilsstöðum eru sammála um þessa skiptingu, en þeir mega þó ekki hafa úrslitaáhrif á þetta mál. Ég veit t. d. um það, að héraðslæknirinn á Eyrarbakka var andvígur skiptingunni þar. En eins og ég sagði áðan, eiga læknarnir ekki að ráða úrslitum þessa máls.
Því er ekki að leyna, að á því geta orðið ýmsir erfiðleikar, t. d. á Egilsstöðum, að læknirinn þar skuli eiga að búa í sama húsi og stéttarbróðir hans án þess að vera undir hans stjórn og hafa samstarf við hann.
Þau rök, sem komið hafa frá Höfðakaupstað í þessu máli, geta ekki staðizt. Það er ekki hægt að fá lækna í smáhéruð nema búa um þá sæmilega hvað bústað snertir. Ég þekki Bíldudalshérað, sem er mjög lítið læknishérað. Þar hafa verið ágætir læknar hver eftir annan, og er það af því, að þar er búið vel að húsnæði þeirra, og vilja því læknarnir heldur vera þar en annars staðar. Það er því fyrsta skilyrðið til þess að tryggja góða lækna að veita þeim góð hús og alla aðbúð í sambandi við það.