22.01.1952
Neðri deild: 68. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í C-deild Alþingistíðinda. (2515)

10. mál, atvinnuleysistryggingar

Frsm. 1. minni hl. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Ég hef í nál. um frv. þetta stungið upp á því, að þm. stjórnarfl. tækju sér ferð á hendur niður í verkamannaskýlið við Reykjavíkurhöfn til að kynnast ríkjandi ástandi í atvinnumálum þjóðarinnar, enda virtist nokkur þörf slíkrar kynningar, svo mjög sem fullyrðingar manna hér í þingsölunum stinga í stúf við staðreyndirnar í verkamannaskýlinu. Þar sem ég þykist sjá þess öll merki við atkvæðagreiðslur, að hv. þm. hafi ekki látið verða af þessari kynnisför, vil ég enn gera tilraun til að vekja þá til skilnings á þessu máli.

Þannig er mál með vexti, að í gær fór ég aftur niður að höfn til fréttaöflunar. Það er ljóst, að ástandið hefur versnað til muna síðan um miðjan desember, er ég skilaði mínu nál. — Þegar klukkan nálgaðist 8, byrjuðu verkamenn að safnast niður að hafnarbryggjunni, og þegar klukkan var 8, mátti sjá fylkingu verkamanna meðfram hafnarbryggjunni. Síðan fór verkstjórinn að velja þá úr, sem áttu að fá að njóta þeirrar náðar að vinna þennan dag. Það vildi svo til, að óvenjumikil vinna var við höfnina í gær. Lagarfoss og Gullfoss, Jökulfellið og einn togari voru inni, en þrátt fyrir þetta sá varla mun á röð atvinnuleysingjanna, þegar búið var að velja úr. Mennirnir tíndust síðan heim eða að verkamannaskýlinu. Ég ræddi við nokkra í skýlinu og innti eftir högum þeirra. Upplýsingar þeirra voru á þá leið, að þeir höfðu ekki haft handtak að gera síðan fyrir jól. Og til viðbótar við erfiðleika atvinnuleysisins áttu þeir við að stríða erfiðleika, sem flest annað fólk sleppur við, lélegt húsnæði, enga hitaveitu, heldur olíu- og kolakyndingu; og eins og verðið er nú á slíku, má vera ljóst, hvílíkur kostnaður það er. Margir höfðu ekki kynt upp lengi, barnamenn með mörg börn, og ef tillit er tekið til þess, hvernig tíðarfarið hefur verið að undanförnu, þarf ekki að vekja athygli hv. þm. á þeirri staðreynd, að börnin hljóta að hafa þjáðst af kulda. Það heyrast einnig dæmt þess, að hungur gangi yfir heimili atvinnuleysingjanna.

Ég trúi ekki öðru en allir séu sammála um þörfina á að hjálpa sem skjótast. Ég hef bundið ræðu mína við Reykjavík, en við vitum, að hörmungar atvinnuleysisins eru yfirleitt í kaupstöðum og kauptúnum landsins og víða verri en hér í Reykjavík. Þess vegna er þörf skjótrar hjálpar um allt land, þannig að tryggt sé, að börn þoli ekki hungur og kulda, þótt lítið sé um vinnu.

N. er ekki sammála. Meiri hl. leggur til, að frv. sé vísað til ríkisstj., og munu m. a. koma til þau rök, að þessu fylgi nokkuð aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. En 2. minni hl., hv. 3. landsk., vill, að málið fái þá afgreiðslu, sem greinir í þáltill. á þskj. 14, að n. verði sett til að athuga og undirbúa eitthvað frekar og gera síðan till. í því efni. Ég hef hins vegar á hvoruga þessa leið getað fallizt, eins og ég hef gert hv. alþm. ljóst, því að málið þolir enga bið, og þau rök, að þetta hafi ofur lítið aukin útgjöld í för með sér fyrir ríkissjóð, þegar um það er að ræða að létta af börnum hörmungum hungurs og kulda, — slík rök eru ekki veigamikil. Enn fremur er ég hræddur um, að hörmungar þessara barna kunni að vera orðnar óbærilegar, þegar n. sú, sem gert er ráð fyrir á þskj. 14, lyki störfum. — Svo vil ég endurtaka það, að ég álít, að málið þoli enga bið, og vil vænta þess, að hér á þinginu sé fyrir hendi nægur skilningur til að tryggja skjóta og farsæla afgreiðslu þess.