10.10.1951
Neðri deild: 8. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 126 í C-deild Alþingistíðinda. (2527)
29. mál, gengisskráningu, launabreytingar, stóreignaskatt, framleiðslugj. o.fl.
Atvmrh. (Ólafur Thors):
Herra forseti. Þetta frv. er borið fram til staðfestingar á brbl., sem gefin voru út 16. júní í sumar og hníga að því að lækka framleiðslugjald af síldarafurðum þannig, að 8% gjald sé tekið af síldinni sjálfri, en ekki af síldinni og vinnslukostnaði.
Rökin fyrir þessu eru aðallega tvenns konar. Í fyrsta lagi þau, sem næst blasa við og augljós eru, að það er ekki ætlunin, að þessi framleiðsla beri nú svo hátt gjald sem l. nr. 117 28. des. 1951 gera ráð fyrir, eftir að búið er að afnema framleiðslugjöld af öllum öðrum vörum í landinu. Býst ég við, að um þetta séu menn sammála, jafnhörmulega og farið hefur um afkomu þeirra, er þennan atvinnurekstur hafa stundað undanfarin 7 ár. — Þessu til viðbótar er svo það, að með ákvæðunum eins og þau voru í l. frá 28. des. 1950 er ætlunin að innheimta 8% gjald af unninni síld, jafnt hvort sem um er að ræða saltsíld eða síld, sem fer til bræðslu. Með því móti hefði gjaldið lagzt með allmiklu meiri þunga á saltsíld, en það töldu þeir, sem rn. ráðfærði sig við í þessum efnum, að svo miklu leyti sem það telur sig ekki sjálft einfært um að dæma um málið, — það töldu þeir allir vera rök, sem bæri að taka til greina. Þessi tvenn rök liggja, eins og ég í öndverðu sagði, til grundvallar fyrir þeirri breyt., sem gerð var með þessum brbl. á gildandi lagaákvæðum. Ég vænti, að um þetta verði enginn ágreiningur á hæstv. Alþ., og leyfi mér að leggja til, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. sjútvn.; það mun síðast hafa verið í henni.