06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í B-deild Alþingistíðinda. (253)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Jón Pálmason:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls gerði ég nokkra grein fyrir því, hvers vegna ég gæti ekki fylgt þessu frv., en vegna þess að allir aðrir þdm. voru samþykkir að vísa frv. til 3. umr., hef ég flutt hér brtt., nokkurs konar miðlunartill., á þskj. 171. Ég get ekki verið því samþykkur að fara nú að setja vísitöluskrúfuna í gang aftur.
Áður en ég sný mér að brtt. minni, vil ég með nokkrum orðum svara ummælum hv. 3. landsk., er hann viðhafði við 2. umr. þessa máls. Hv. 3. landsk. fannst það óhæfa að vera á móti því, að laun opinberra starfsmanna hækkuðu á þriggja mánaða fresti í samræmi við þá vísitöluhækkun, sem þá hefði orðið, og koma aftur á þessari vísitöluskrúfu, sem hefur valdið okkar þjóðfélagi svo mikilli ógæfu. Hv. þm. taldi það sýna megnasta afturhald að vilja nokkuð stinga við fótunum. Aðalatriðið hefur verið það, að laun og afurðaverð hafa elt hvort annað, launin hækkað fyrst, afurðirnar á eftir. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að með hinum sívaxandi opinberu afskiptum er fjöldi fastlaunaðra starfsmanna orðinn svo mikill, að meiri hlutinn af tekjum ríkssjóðs fer í launagreiðslur til þeirra. Þeir, sem eru á föstum launum hjá ríkinu, hafa það betra en flestar aðrar stéttir landsins, elns og bezt sést á því, hversu margir sækjast eftir að komast í stöður hjá ríkinu. Hér er því ekki verið að fara fram á að rýra hlut þeirra, sem minnst bera frá borði, heldur hinna bezt launuðu. Ég verð að segja það, að ég verð alltaf stórlega undrandi, þegar ég heyri þennan hv. þm. (GÞG) tala hér í deildinni, — en hann gerir það manna oftast, — því að hjá honum koma fram svo æpandi mótsagnir. Hann vill hækka öll laun, öll útgjöld til verklegra framkvæmda, en hann vill afnema söluskattinn og yfirleitt lækka alla skatta. Ef þetta eru ekki mótsagnir, þá veit ég varla, hvað mótsagnir eru. Það er stórfurðulegt, að maður með slíka menntun sem hv. 3. landsk. skuli halda slíku fram, maður, sem er hagfræðingur að menntun og prófessor við Háskóla Íslands. Þessi maður hefur einnig haldið því fram, að halda beri áfram öllum niðurgreiðslum úr ríkissjóði, en hækka laun fastra starfsmanna. Nú verður ekki sagt, að hér valdi þekkingarleysi, en mér er nær að halda, að hann tali áður en hann hugsar. — Ég læt nú svari mínu til hv. 3. landsk. lokið, en sný mér að till. minni.
Till. sú, sem ég flyt hér á þskj. 171, felur það í sér, að halda beri áfram uppteknum hætti á greiðslum til opinberra starfsmanna fram að nýári, en þá — eða árið 1952 — skuli greiðslurnar miðast við vísitöluna eins og hún verður í desember, þannig að ekki verði greitt meira en 50% af hækkuninni. Svarar það til 150% hækkunar samkvæmt gömlu vísitölunni. Mörgum mun hér finnast hart að gengið, en ef aldrei á að spyrna við fótunum, þýðir ekki að vera að tala um að stöðva dýrtíðina. — Ég skal nú ekki hafa um þetta miklu fleiri orð, en ég vona, að ríkisstj. láti sér nægja að láta þessa reglu, sem nú er viðhöfð, gilda fram að nýári. Þegar gengislækkunarlögin voru samþ., var verðlagið fest. Hitt er svo kunnugt, að það tókust samningar milli atvinnurekenda og verkamanna um greiðslur til verkamanna í samræmi við hækkandi vísitölu, og því gaf stjórnin út brbl. Ég vil nú að sinni ekki fjölyrða meira um þetta, en vona, að till. muni verði vel tekið.