29.11.1951
Efri deild: 36. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 130 í C-deild Alþingistíðinda. (2552)
131. mál, prófesorsembætti í læknadeild Háskóla Íslands
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir og er um stofnun nýs prófessorsembættis við Háskóla Íslands, er til komið fyrir ósk hlutaðeigandi aðila, og hefur ríkisstj. komizt að raun um það, eftir að hafa athugað málið, að ekki verður hjá því komizt að kveða á um þetta embætti nú. Þetta embætti er embætti nýs prófessors í líffæra- og lífeðlisfræði. Sá maður, sem tekur þetta starf að sér þarf 2–3 ára undirbúning undir það, svo að embættisstarfið hefst ekki fyrr en eftir 2 eða 3 ár. Það er sá lengsti tími, sem núverandi prófessor treystir sér til að gegna þessu embætti, án þess að aðstoð komi til. — Prófessorsembættið í þessum fræðigreinum við Háskóla Íslands er síðan 1937. Til samanburðar um það, hve starfið hefur vaxið mikið í þessum efnum, skal þess getið, að þá voru kenndar 10 stundir á viku í þessum greinum og nemendafjöldinn í læknadeild að jafnaði um 69. En nú er kennslan í þessum greinum komin upp í 19 stundir á viku, og nemendur voru að meðaltali síðustu 5 árin 156 í læknadeild. Það er því sýnilegt og ríkisstj. var það ljóst, þó að hún sé ekki mjög viljug að stofna ný embætti, að ekki yrði hjá því komizt að stofna nýtt embætti í þessum fræðum. Háskólinn lagði mjög mikla áherzlu á þetta og taldi mjög aðkallandi eins og sakir standa. — En nú síðast fyrir nokkrum vikum kom erindi frá lagadeild háskólans um aukningu á kennslukröftum þar með því að bæta við einum prófessor, en starfskraftar við lagadeildina hafa ekki verið auknir síðan hún var stofnuð og sama tala prófessora þar nú eins og var þá. Það er því talin mjög mikil nauðsyn að auka starfskrafta deildarinnar, en ríkisstj. sá sér ekki fært að mæla með því að þessu sinni. — Ég vil mælast til þess, að frv. verði vísað til 2. umr. að þessari umr. lokinni og til hv. menntmn.