06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 74 í B-deild Alþingistíðinda. (256)

2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Aðeins örfá orð. — Þessi brtt. gerir ráð fyrir því að greiða lægri uppbætur á laun opinberra starfsmanna en nú er gert. Eins og ég gat um við 1. umr. taldi ríkisstj. sér ekki fært að greiða lægri uppbætur til þeirra en verkamenn höfðu fengið inn í samninga sína við atvinnurekendur. Nú gerir hv. þm. A-Húnv. ráð fyrir því að lækka þetta mjög. Ríkisstj. getur ekki fallizt á þá breytingu, sem þar er gert ráð fyrir. Þar með er ekki sagt, að sjálfsagt sé að greiða alltaf sömu uppbætur á laun, en eins og ástandið er nú sýndist stj. þetta rétt og sanngjarnt. Ég vil því leyfa mér að fara fram á það, að hv. d. samþ. ekki þessa brtt., sem hæstv. forseti Sþ. hefur borið fram.