17.01.1952
Efri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 142 í C-deild Alþingistíðinda. (2565)
131. mál, prófesorsembætti í læknadeild Háskóla Íslands
Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):
Það er einungis fyrir áskorun hv. þm. Vestm., að ég neyðist til að standa upp. Hann sagði, að ég yrði að svara, — liggja dauður ella, fannst mér felast í áskorun hans. Ég vil benda á, að í þessu bréfi, sem er nú ekki tiltækt á þessu augnabliki, en hv. þm. las og leggur svo mikið upp úr, frá Krabbameinsfélagi Reykjavíkur, er beinlínis komið inn á þetta, að það sé eðlilegt, að röntgendeildin sé ekki lægra sett en hinar deildir landsspítalans. Og ég segi nú: Allir þeir, sem nokkuð eru vanir að lesa málaleitanir, sem stjórnarvöldum berast, með því orðskrúði og fögrum rökstuðningi, sem tilheyrir, þeir eru fljótir að sjá, hvað er kjarni málsins, og ekki síður hv. þm. Vestm. en aðrir. Og hann er sá í þessu tilfelli, að hlutaðeigendur vilja, að röntgendeildin og hennar forustumaður fái sams konar stöðu og hinir yfirlæknarnir, sem kallaðir eru prófessorar. Það er ekkert ljótt í þessu, síður en svo. Og ég vil taka fram, að ég vil í engu halla á þann góða mann, sem hér á hlut að máli og ég hef þekkt síðan við vorum smástrákar. En ég veit, hvernig þetta mál er til komið, og það verður að metast þar eftir. Maðurinn sjálfur er framúrskarandi góður maður og alls góðs maklegur, en málaleitun þessa hans vegna er ekki hægt að taka fram yfir allar aðrar þarfir háskólans. Og það er hreinasta fjarstæða, að þetta komi ekki við fjölgun embætta í háskólanum að öðru leyti.
Af því að bréfið frá Krabbameinsfélaginu er nú komið mér í hendur, vil ég lesa upp úr því, með leyfi hæstv. forseta. Þar stendur: „Enn fremur eru læknar sérmenntaðir þar í röntgenfræðum, og þar eð þessi deild spítalans hefur starfað frá stofnun hans og býr því yfir mikilli reynslu, ætti hún að vera jafnrétthá lyflæknis- og handlæknisdeildum.“ Þetta er kjarni málsins og það, sem fyrir liggur. Það stendur berum orðum í bréfinu, sem ég hef verið að segja. Einnig tel ég ósannað mál, að þessi maður geti fórnað meiri tíma til þessa starfs en hann nú gerir, þó að hann fengi hærri nafnbót og meiri laun. Ég held hann leggi þegar fram alla sína starfskrafta til þessa málefnis. Og maðurinn er mjög hæfur og ágætur. En það verða menn að gera sér ljóst, að ef þeir telja, að sá ágæti maður eigi að fá slíkan frama nú, þá vakna upp fleiri þarfir háskólans og verður eðlilegt, að fleiri, sem þar starfa, fái svipaðan frama. Og meðal deildanna um slíkar kröfur hlýtur lagadeild að verða.