23.10.1951
Neðri deild: 17. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (2579)
8. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Háttv. áheyrendur. Í eldhúsdagsumræðunum, sem fram fóru hér á hinu háa Alþ. í febrúar síðastliðnum, lét ég þau orð falla, að núv. ríkisstj. væri fyrsta hreina íhaldsstjórnin, sem setið hefði að völdum á Íslandi í aldarfjórðung. Það, sem gerzt hefur síðan, hefur ekki aðeins staðfest, að þetta var rétt, heldur leitt í ljós, að þessi ríkisstj. er mesta afturhaldsstjórn. sem fengið hefur völd á Íslandi síðan þar var fyrst myndað íslenzkt ráðuneyti. Bezti mælikvarðinn á ríkisstj. er það, hvað hún gerir til þess að létta almenningi lífsbaráttuna. Sú stjórn, sem horfir á það aðgerðalaus, að hagur almennings þrengist í sífellu, en telur það sjálfsagt, að milljón eftir milljón renni í vasa milliliða og fjáraflamanna, sú stjórn er ekki stjórn fólksins í landinu. Það er auðvitað vond stjórn, sem segist ætla að gera rangt og gerir það. Sú stjórn er þó verri, sem segist ætla að gera rétt, en gerir rangt. En verst allra er þó sú, sem segist hafa verið að gera rétt, þegar hún hefur verið að gera rangt, en þannig er sú ríkisstjórn, sem nú situr að völdum á Íslandi. Hún virðist ekki eiga neina hugsjón, hún hefur ekki barizt fyrir neinu stóru framfaramáli, er hafi getað heillað hugi manna, hún hefur ekki efnt til neinna umbóta í félagsmálum eða menningarmálum. Þær stórframkvæmdir, sem unnið er að í landinu, voru afráðnar áður en hún kom til valda og eru kostaðar af erlendu fé. Það er ekkert gert til þess að bæta lífskjör þjóðarinnar og jafna þau. Öll spor, sem þessi ríkisstj. hefur skilið eftir sig, eru spor aftur á bak.
Hæstv. ríkisstj. taldi það í upphafi höfuðmarkmið sitt að koma jafnvægi á þjóðarbúskapinn með gengisbreytingu og afnámi verzlunarhafta. Afleiðingarnar áttu að verða:
1) Aukin framleiðsla og aukin atvinna.
2) Bættir verzlunarhættir.
3) Lækkaðir skattar.
Ekki hafa úrræði nokkurrar íslenzkrar stj. brugðizt jafnhrapallega og þessi. Hafa allir haft atvinnu? Eigum við ekki að leita upplýsinga á Siglufirði og í öðrum kaupstöðum og kauptúnum kringum allt land? Veit ekki hvert mannsbarn, að hér hefði verið stórkostlegt atvinnuleysi í haust, ef erlent herlið hefði ekki þurft að láta byggja hús á Keflavíkurflugvelli?
Bjargaði gengislækkunin bátaútveginum? Þá hefði varla þurft að taka upp bátagjaldeyrisskipulagið, sem var í raun og veru ný gengislækkun, og það meira að segja í hinu skaðlegasta formi, enda höfðu ráðunautar ríkisstj. í efnahagsmálum varað alvarlega við slíkum ráðstöfunum, þegar þeir mæltu með gengislækkuninni.
Er verzlunin orðin frjáls? 40–50% innflutningsins eru enn háð leyfisveitingum, og bátaútvegsmenn munu í ár hafa einkarétt til innflutnings um það bil 15% innflutningsins. Og allir vita, hve fjarri því fer, að útflutningsverzlunin sé frjáls. Ríkisstj. hefur ekki komið á frjálsri verzlun, en hún hefur leyft frjálsa álagningu.
Hafa skattar lækkað? Nei allir þeir skattar, sem lagðir voru á til þess að reyna að koma í veg fyrir gengislækkun og forða almenningi frá því dýrtíðarflóði, sem í kjölfar hennar hlyti að sigla, hafa verið framlengdir, þrátt fyrir gengislækkunina. Á íslenzkum almenningi hefur aldrei hvílt meiri þungi beinna og óbeinna skatta en einmitt nú.
Hefur hið margumtalaða jafnvægi náðst? Á fyrstu átta mánuðum þessa árs var verzlunarjöfnuðurinn óhagstæður um 179 millj. kr. Hinum mikla innflutningi, sem nú fyllir búðirnar, er haldið uppi með erlendu gjafafé. Síðan ríkisstj. settist að völdum og til síðustu ágústloka hefur innflutningur til landsins numið 1060 millj. kr., en á sama tíma hefur vöruinnflutningur fyrir gjafafé numið 270 millj. kr., eða meiru en fjórðungi innflutningsins.
Málsvarar ríkisstj. hafa látið sér sæma að þakka aukið vöruframboð undanfarið hinni „frjálsu verzlun“ ríkisstj., þótt staðreyndirnar séu þær, að fjórðungur alls innflutningsins sé fenginn að gjöf. Sú stjórn hefur ekki af miklu að státa, sem vill láta þakka sér, að eitthvað sé til í búðum undir þessum kringumstæðum. Um hið erlenda gjafafé er sannleikurinn annars sá, að mönnum með heilbrigðan þjóðarmetnað er fyrir löngu farið að þykja nóg um. Eitt er að gerast aðilar að þjóðasamtökum til viðreisnar í atvinnumálum og njóta aðstoðar í því sambandi og annað að þiggja árum saman erlendar matgjafir og láta svo kalla matinn árangur af frjálsri verzlun í þokkabót!
Og hvernig hefur ríkisstj. gengið í baráttunni við dýrtíðina? Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 50% síðan hún tók við völdum. Það er stærra stökk en vísitalan hefur nokkurn tíma tekið áður á jafnskömmum tíma. Gamla vísitalan væri nú komin upp í 612 stig, en kaupgjaldið hefur hækkað miklu minna. Síðan í ársbyrjun 1947 hefur framfærslukostnaður hækkað um 94%, en kaup verkamanna ekki nema um 53%. Í desember 1949 var verkamaður
10 mínútur að vinna fyrir einu kílógrammi af hveiti. Nú er hann 19 mínútur að því. Þá var hann 14 mínútur að vinna fyrir einu rúgbrauði, en nú 20 mínútur. Þá var hann eina klukkustund að vinna fyrir einu kílógrammi af kaffi. en nú þrjár klukkustundir og 15 mínútur. Hann var fimm stundir og fimm mínútur að vinna fyrir einni erlendri skyrtu í desember 1949, en nú er hann 9 stundir og 21 mínútu að því. Og þannig mætti lengi telja.
Þannig hefur stefna ríkisstj. brugðizt á bókstaflega öllum sviðum. Málsvarar hennar játa þetta oft í aðra röndina, en segja þá um leið, að orsökin sé sú, að verðlag erlendis hafi hækkað svo mjög. Það sé sök erlendra verðhækkana, að svo margt hafi farið hér öðruvísi en vonað var. Samanburður á verðlagshækkunum hér og í nágrannalöndum sýnir að vísu, að þetta er rangt. Í Bretlandi hefur framfærslukostnaður hækkað um 11% á valdatímabili ríkisstj., í Danmörku um 16%, en hér um 50%. Það er algerlega ástæðulaust að vera að deila um það, hvernig standi á hinni 50 stiga hækkun vísitölunnar. Það er vandalaust að sundurliða hækkunina, þótt ríkisstj. hafi ekki haft sérstakan áhuga á því. En sú sundurliðun er þannig:
13 stig eru bein áhrif gengislækkunarinnar á erlendar vörur í vísitölunni, önnur 13 eru afleiðing af erlendri verðhækkun, en 24 stig eru innlend hækkun, auðvitað fyrst og fremst óbein afleiðing gengislækkunarinnar og stefnu ríkisstj. í viðskiptamálum. Um helmingur vísitöluhækkunarinnar er þannig innlend hækkun. Einungis liðlega fjórðungur hennar stafar beinlínis af erlendri verðhækkun, sem ekki var hægt að sjá fyrir, þegar gengið var lækkað. — Þetta ætti því að geta verið útrætt mál.
Á engu sviði hefur stefna ríkisstj. þó brugðizt jafnhrapallega og í verðlagsmálunum. Á grundvelli lagabreytingar, sem ríkisstj. knúði fram á síðasta þingi, var nær allt verðlagseftirlit afnumið. Nú er árangur þessarar stefnu kominn í ljós. Hann er með þeim hætti, að Alþfl. telur bráðnauðsynlegt að lögleiða aftur skyldu fjárhagsráðs til þess að setja verðlagsákvæði og halda síðan uppi traustu verðlagseftirliti, og er það lagt til í frv. því, sem hér er til umr. Fyrir nokkrum vikum lauk verðgæzlustjóri mjög ýtarlegri athugun á þeirri breyt., sem orðið hefur á álagningu og verðlagi fjölmargra vöruflokka við afnám verðlagsákvæðanna. Verðgæzlunefnd fékk skýrslu þessa í hendur og sá þegar, að hér var hneykslismál á ferðinni. Hæstv. viðskmrh., Björn Ólafsson, gerði ítrekaðar tilraunir til þess að tefja það, að nokkuð yrði um skýrsluna birt, en formaður n., Jón Sigurðsson, taldi sér það skylt vegna umbjóðenda sinna að skýra opinberlega frá niðurstöðum þessarar hlutlausu rannsóknar og gerði það. Tveim dögum síðar hélt hæstv. viðskmrh. útvarpsræðu um málið og brigzlaði Jóni Sigurðssyni þar um að hafa framið trúnaðarbrot með birtingu skýrslunnar. Jóni var meinað að bera þessar sakir af sér í útvarpinu, en það var að sjálfsögðu fjarstæða, að hann hefði brotið nokkurn trúnað. Hann var ekki og er ekki starfsmaður ráðh. í verðgæzlunefnd, heldur fulltrúi stærstu neytendasamtaka landsins, Alþýðusambandsins. Hann var að rækja trúnað sinn við þau samtök og neytendur í landinu með því að birta skýrsluna. En það er vissulega athyglisvert, að hefði ekki notið við árvekni og kjarks formanns verðgæzlun, er alls ekki víst, að umrædd skýrsla hefði yfirleitt verið birt almenningi í heild.
Þessi skýrsla er svo þrautrædd, að ég ætla ekki að ræða hana í einstökum atriðum. En á grundvelli hennar og ýmissa annarra upplýsinga, sem ég hef aflað mér, hef ég gert nokkrar athuganir, sem ég ætla að leyfa mér að skýra frá, en niðurstöður þeirra eru í aðalatriðum þær, að álagning hafi við afnám verðlagsákvæða hækkað svo gífurlega, að óverjandi sé að taka ekki á ný upp verðlagseftirlit, svo sem lagt er til í frv. því, sem hér er til umræðu. Rétt er þó að taka fram, að ekki hafa allir þeir, sem við verzlun fást, hækkað álagningu sína jafnmikið. Samvinnufélög virðast hafa hækkað hana minna en kaupmenn, en á sumum sviðum og sums staðar þó jafnmikið. Þá er og mjög mikill munur á því, hvernig smásalar annars vegar og heildsalar hins vegar hafa brugðizt við heimildinni til frjálsrar álagningar, og hafa smásalar sýnt þar svo miklu meiri hófsemi, að geta verður þess sérstaklega. Meðalálagningarhækkun á vefnaðarvöru í smásölu hefur samkvæmt hinni kunnu skýrslu verðgæzlustjóra numið um 47%, og þar af eru 14% bein afleiðing af álagningarhækkun í heildsölu. En meðalálagningarhækkun heildsala hefur numið hvorki meira né minna en 180%. Sú stétt hefur m. ö. o. notað álagningarfrelsið til þess að nærfellt þrefalda brúttótekjur sínar, þ. e. álagninguna.
En nú skal ég ræða málið í einstökum atriðum. — Ég sný mér fyrst að bátagjaldeyrinum. Útflytjendur bátaafurða hafa sem kunnugt er einkarétt til innflutnings ýmissa vörutegunda, sem aðrir mega ekki flytja inn, fyrst og fremst ávaxta, mjög margs konar vefnaðarvöru, bifreiðavarahluta, rafmagnsheimilistækja, snyrtivarnings og ýmiss konar byggingarvöru. Innflutningsleyfin selja þeir yfirleitt innflytjendum fyrir gjald, sem þeir mega leggja á vöruna. Hinn 15. þessa mánaðar var innkaupsverð þeirrar bátagjaldeyrisvöru, sem búið var að flytja til landsins, 24 millj. kr. Ef gert er ráð fyrir því, að bátagjaldeyrisvörur þær, sem verðgæzlustjóri athugaði í rannsókn sinni, séu rétt mynd af bátagjaldeyrisverzluninni í heild, þá hefur söluverð þessarar bátagjaldeyrisvöru verið 101 milljón. Vara, sem kostar erlendis 24 millj., er m. ö. o. seld neytendum hér fyrir 101 millj. Af mismuninum hafa bátaútvegsmenn fengið 10 ½ millj. Álagning heildsala og smásala hefur verið frjáls, og hefur hún numið 35 millj.
En athyglisverðast í þessu sambandi er þó að athuga, hversu miklu hærri álagningin hefur raunverulega verið en hún hefði orðið, ef verðlagsákvæði hefðu verið í gildi áfram. Ef skýrsla verðgæzlustjóra er lögð til grundvallar, hefur álagningarhækkunin numið 19 millj. Milliliðir hefðu átt að fá 16 millj. fyrir að dreifa þessari voru samkvæmt verðlagsákvæðum, og virðist það sæmilegt, en þeir taka 35 millj., eða 19 millj. kr. meira.
Þessar tölur eru ekki aðeins athyglisverðar fyrir neytendur. Þær eru það hreint ekki síður fyrir útvegsmenn. Samtímis því, sem þeir leggja 10½ milljón á þennan gjaldeyri, sem þeim hafa verið fengin umráð yfir til þess að komast úr kröggum, hækka milliliðir álagningu sína á þær vörur, sem keyptar eru fyrir hann, um 19 millj. Meðalálagning á bátagjaldeyrisvörur hefur hækkað um 128% og útsöluverð þeirra hefur hækkað um 23% af þessum sökum.
Þessar tölur eru ótrúlegar, en þær eru réttar samt. Enn þá furðulegri verður niðurstaðan, þegar athugaðar eru einstakar vörutegundir. Til 1. okt. höfðu verið fluttir inn ýmiss konar ávextir fyrir rúmar 6 millj. af bátagjaldeyri. Söluverð þessara ávaxta hefur numið 29 millj., ef byggt er á athugun verðgæzlustjóra. Álagning útvegsmannanna hefur numið 3,6 millj. kr., en álagningarhækkun milliliðanna 7,2 millj., eða nákvæmlega helmingi hærri upphæð. Viðbótarálagningin á þá vefnaðarvöru og þann fatnað, sem fluttur hefur verið inn fyrir bátagjaldeyri, nemur 2,7 millj. kr., o. s. frv.
Ég fullyrði, að annað eins og þetta hefði ekki getað gerzt í nokkru nálægu landi. Þetta eru ekki siðaðir viðskiptahættir, heldur bein fjárplógsstarfsemi. Mig minnir, að einhverjir hafi lofað að berjast gegn fjárplógsstarfsemi. Hvar er það fólk niður komið?
Bátagjaldeyrisskipulaginu var ætlað að vera styrkur til bátaútvegsins. En það hefur fyrst og fremst reynzt styrkur til heildsalanna. Atvinnureksturinn er fjarri því að vera styrkjalaus enn. Og nú eru það heildsalarnir, sem eru orðnir aðalstyrkþegarnir!
Er það í raun og veru fyrirætlun ríkisstj. að láta þennan ósóma halda áfram, eftir að henni er orðið kunnugt um það, sem gerzt hefur? Það er ekki búið að flytja inn vörur fyrir nálægt allan þann bátagjaldeyri, sem útvegsmenn eru búnir að selja. Eiga íslenzkir neytendur að trúa því, að í landinu sé ríkisstj., sem lætur það eins og vind um eyrun þjóta, þótt henni sé sýnt fram á, að milliliðir hafi hækkað þóknun sína fyrir að dreifa vörum, sem kosta 24 millj. kr. í innkaupi, um 19 millj. kr.?
Ýmsir virðast hafa talið, að álagningarhækkunin hafi eingöngu orðið á bátagjaldeyrisvörum. Á öðrum vörum, sem verðlagseftirlit hefur verið afnumið á, hafi álagning ekki hækkað mikið. Þetta er þó hinn herfilegasti misskilningur. Verðgæzlustjóri athugaði sérstaklega vefnaðarvöru, sem er ekki flutt inn fyrir bátagjaldeyri, rúmlega 40 vörusendingar. Ef unnið er úr þessum skýrslum, kemur í ljós, að heildarálagningin hefur verið 75% hærri en meðan verðlagsákvæði voru í gildi. Þessi álagningarhækkun hefur hækkað söluverð vefnaðarvörunnar um 18%. Innflutningur vefnaðarvöru á þeim þrem mánuðum, sem liðnir eru síðan verðlagsákvæðin voru afnumin, hefur numið um 30 millj. kr. Álagningarhækkunin á þessar vörur nemur 10 til 11 millj. Það svarar til þess, að milliliðir í vefnaðarvöruverzlun hækki gjaldið fyrir þjónustu sína í sambandi við ársinnflutning á vefnaðarvöru um hvorki meira né minna en rúmar 40 millj.
Lausleg athugun á vísitölunni leiðir í ljós, að álagningarhækkunin hefur valdið 4–5 stiga hækkun á vísitölunni. Hinn óvinsæli söluskattur svarar til 5–6 stiga í vísitölunni. Álagningarhækkunin og söluskatturinn valda þannig um 10 stiga hækkun á vísitölunni, eða tveim þriðju hlutum af þeirri hækkun hennar, sem orðið hefur vegna verðhækkunar erlendis og málsvarar ríkisstj. eru alltaf að klifa á, að sé undirrót alls þess, sem aflaga hefur farið.
Þessar staðreyndir eru vissulega þungur dómur um stefnu ríkisstj. Engin íslenzk ríkisstj. hefur kallað annan eins dóm yfir stefnu sína á mikilvægu sviði.
Hæstv. viðskmrh., Björn Ólafsson, lét svo um mælt í útvarpsræðu um viðskiptamálin, að skýrsla verðgæzlustjóra sýndi að vísu nokkur dæmi um óhóflega álagningu, en yfirleitt hefði álagningin þó verið hófleg síðan verðlagsákvæðin voru afnumin, enda hefði álagningin verið of lág. Ég skal hiklaust játa, að álagningin var fyrir gengislækkunina orðin óeðlilega lág á ýmsum vörum, einkum í smásölu, sérstaklega þegar haft er í huga, hve mjög hafði verið dregið úr neyzluvöruinnflutningi. Það var ranglátt og óeðlilegt, þegar ákveðið var samtímis gengislækkuninni, að ekkert mætti leggja á þá verðhækkun, sem af henni hlytist. Nokkur hækkun á álagningunni var réttmæt, þótt þess verði einnig að gæta, að sala jókst mjög vegna aukins innflutnings. Fjárhagsráð leyfði og tvívegis almenna hækkun á álagningu. En ríkisstj. lét ekki þar við sitja. Hún afnam flest verðlagsákvæði. Nú er dómur reynslunnar um þessa ráðstöfun fallinn. Meðalálagning á bátagjaldeyrisvörur hefur hækkað um 128%, meðalálagning á vefnaðarvörur um 75%. Þetta kallar hæstv. viðskmrh. hóflegt. Aðrir hæstv. ráðh. ríkisstj. virðast vera á sömu skoðun.
Ég þarf ekki að minna þá launamenn, sem mál mitt heyra, á það, hvílíka baráttu það hefur oft kostað þá að fá kaup sitt hækkað um 10%. Ég þarf ekki að minna sjómenn á verkfallið, sem þeir þurftu að heyja fyrir skömmu til þess að fá nokkra lagfæringu á launum sínum og starfskjörum. Ég þarf ekki að minna bændur á, að þeim er ekki í sjálfsvald sett, á hvað þeir selja afurðir sínar. Það er hins vegar stefna ríkisstj., að ein stétt, kaupsýslustéttin, skuli hafa sjálfdæmi um það, hvað hún tekur fyrir þjónustu sína. Og þegar hún notar þessa heimild til þess að tvöfalda og jafnvel þrefalda þóknun sína, þá segir hæstv. viðskmrh., að það sé hóflegt.
Það er alrangt, að skýrsla verðgæzlustjóra leiði fyrst og fremst í ljós, að nokkrir menn hafi misnotað aðstöðu sína og okrað. Þar er að vísu að finna dæmi um herfilegt okur, og ríkisstj. ber skylda til að stöðva slíkt þegar í stað. En allar tölur, sem ég hef nefnt, eru heildartölur og meðaltalstölur. Þær sýna, að eins og ástandið er hér á landi nú, er ekki hægt að vera án verðlagseftirlits. Það er í sjálfu sér ekki hægt að áfellast kaupmenn og kaupfélög, þótt þau hækki álagningu sína, þegar ríkisvaldið segir þeim beinlínis, að þeir megi hafa hana eins háa og þeim sýnist, og hvetur þá til að selja vörurnar á því verði, sem markaður þoli. Það er ríkisstj. öllu fremur en kaupsýslustéttin, sem ber höfuðábyrgð á því hneyksli, sem hér hefur átt sér stað.
Andstæðingar Alþfl. halda því fram, að það sé stefna hans að koma hér aftur á sem mestum höftum og sem mestri skriffinnsku. Þeir menn, sem þannig tala, geta varla hafa lesið frv. það, sem hér er til umr. Það fjallar um það eitt, að aftur skuli sett hámarksverð á álagningu. Það er furðulegur hugtakaruglingur, þegar blandað er saman innflutningshöftum og jafnvel skömmtun annars vegar og verðlagseftirliti hins vegar. Þegar talað er um frjálsa verzlun í nágrannalöndunum, er fyrst og fremst átt við það að innflutningur og útflutningur sé ekki háður opinberum leyfisveitingum. Hér er hvorki frjáls innflutningur né útflutningur. Bátagjaldeyrisskipulagið er meira að segja svo fjarskylt frjálsri verzlun, að það er á mörkum þess að vera samrýmanlegt reglum alþjóðagjaldeyrissjóðsins. En hér er aftur á móti frjáls álagning. Þetta er þveröfug stefna við það, sem tíðkast í nágrannalöndunum, hvort sem þar sitja vinstrisinnaðar eða hægri stjórnir að völdum. Í öllum þessum löndum hefur verið að því stefnt síðan stríði lauk, og þó einkum eftir að Marshallsamstarfið kom til sögunnar, að afnema höft á innflutningi og útflutningi. Alþýðuflokkar nágrannalandanna hafa stutt þessa stefnu, og íslenzki Alþfl. vill einnig styðja hana. Við gagnrýnum ekki afnám innflutningshaftanna, ef hægt er að sýna fram á, að þau leiði ekki til erlendrar skuldasöfnunar eða tefji nauðsynlega fjárfestingu. En við gagnrýnum það, að ekkert eftirlit sé með söluverði hinnar innfluttu vöru.
Ýmsar erlendar ríkisstj., sem hafa gengið lengra í því en ríkisstj. hér að afnema hömlur á innflutningi, hafa ekki látið sér koma til hugar að afnema um leið allt eftirlit með verðlagi, og á það við um bæði Norðurlönd og Bretland. Jafnvel í Bandaríkjunum er verðlagseftirlit, og Truman talaði nýlega í ræðu um nauðsyn þess að auka það. Allir, sem fylgjast með því. sem gerist í heiminum, vita, hvernig stendur á þessu. Verðhækkanirnar, sem siglt hafa í kjölfar Kóreustríðsins og annarra atvika, hafa kallað á verðlagseftirlit. Ábyrgar ríkisstj. í öðrum löndum, hvort sem þær eru vinstri-sinnaðar eða hægri-sinnaðar, horfa ekki á það aðgerðalausar, að verðlag hækki. En hér á Íslandi situr ríkisstj., sem lætur eins og hún viti ekkert, hvað er að gerast í heiminum í kringum hana, talar eins og afnám innflutningshafta hljóti að vera hið sama og afnám verðlagseftirlits og afnemur svo verðlagseftirlitið, en ekki innflutningshöftin. Íslendingar hafa aldrei fyrr haft aðra eins ríkisstj. yfir sér. Og í engu nágrannalandanna er önnur eins stjórn. Það þarf að fara austur í Asíu eða suður í Afríku til þess að finna einhverjar hliðstæður.
Andstæðingar Alþfl. bera honum á brýn, að hann vilji koma hér aftur á höftum. Þetta er alrangt, en þessi málflutningur er athyglisverður. Höftin voru óvinsæl, og nú eru málsvarar Sjálfstfl. og Framsfl. sítalandi um gífurlega ánauð, ógurlega spillingu og stórfelldan svartan markað, sem siglt hafi í kjölfar þeirra. En halda þessir menn, að almenningur viti ekki, hverjir hafa stjórnað höftunum s. l. 10 ár? Í nær öllum þeim n., sem höftunum hafa stjórnað, hafa sjálfstæðismenn og framsóknarmenn átt fjóra fulltrúa af fimm.
Margt af því, sem nú er sagt um fortíðina, er blekking ein til þess að verja ófremdarástandið, sem nú er. En það er rétt, að mörg og stór mistök hafa átt sér stað, mistök, sem þeir, er fóru með meirihlutavaldið í þessum n., bera auðvitað ábyrgð á. Ég skal nefna eitt dæmi. Á áratugnum 1938–47 var innflutningur sokka úr ull og silki tæpar 66 smálestir á ári að meðaltali. Á árunum 1948–50 var innflutningurinn hins vegar rúmar 26 smálestir á ári. Á báðum tímabilunum voru innflutningshöft. Á áratugnum, sem ég nefndi fyrst, var eftirspurninni fullnægt þrátt fyrir höftin, og enginn talaði þá um svartan markað á sokkum. En á árunum 1948–50 er innflutningur þessarar nauðsynjavöru skorinn niður um hvorki meira né minna en 60%. Þarf nokkur að undrast svartan markað, þegar þannig er haldið á málum? Það er engu líkara en að verið sé að skipuleggja svartan markað, þegar þannig er farið að. Hverjir réðu þessu? Í innflutningsnefndunum voru 4 af 5 sjálfstæðis- og framsóknarmenn. — Og hvað gerðu þessir heiðursflokkar, þegar þeir voru orðnir einir um ríkisstj.? Gerðu þeir ráðstafanir til að afnema svarta markaðinn? Ónei, þeir löggiltu hann með bátagjaldeyrisskipulaginu.
Ég hef nú sýnt fram á, að stefna þessarar ríkisstj. — og þá sérstaklega stefna hennar í viðskiptamálum — hefur verið almenningi beinlínis fjandsamleg. Neytendur hafa að nauðsynjalausu verið látnir greiða stórhækkað vöruverð, þótt dýrtíð sé svo mikil, að almenningur eigi fullt í fangi með að láta kaup sitt hrökkva fyrir nauðsynjum, en milliliðir hafa aukið tekjur sinar um tugi milljóna.
Mig langar til þess að spyrja þá launamenn, sem mál mitt heyra og greiddu Sjálfstfl eða Framsfl. atkv. við síðustu kosningar, hvort þeir hafi gert það í því skyni, að þannig yrði komið fram við þá. Mig langar til að spyrja sjómenn, hvort þeim finnist ekki dálítill munur á því, hvernig ríkisstj. tekur í tilmæli þeirra um hækkað kaup og tilmæli innflytjenda um hækkaða álagningu. Mig langar til þess að spyrja útvegsmenn, að hverjum þeim finnist hafa verið betur búið, þeim eða heildsölunum, í sambandi við bátagjaldeyrinn. Mig langar til að spyrja iðnaðarmenn, hvort þeir telji slíka stjórnarstefnu sér til hagsbóta. Og mig langar til þess að spyrja bændur, sem langflestir styðja annaðhvort Sjálfstfl. eða Framsfl., hvort þeir hafi í raun og veru ætlazt til þess, að það yrði aðalstefnumál þeirrar ríkisstj., sem þeir lyftu til valda, að leyfa milliliðum að hækka álagningu eins mikið og markaðurinn leyfði, meðan afurðaverð þeirra er lögbundið.
Sjálfstfl. hefur eina afsökun fyrir því að fylgja þessari stefnu, en aðeins eina. Hún er sú, að innan hans eru þeir tiltölulega fáu menn, sem hagnast á henni, og þeir hagnast líka vel. Þeir geta verið flokki sínum þakklátir. Framsfl. hefur hins vegar enga afsökun fyrir því að styðja þessa stefnu. Hann hefur reynt að afsaka sig með því að segja, að þótt álagning sé frjáls, muni kaupfélögin tryggja hóflegt vöruverð. Þannig mátti e. t. v. tala áður en reynsla fékkst. En þannig er ekki hægt að tala nú. Kaupfélögin hafa ekki getað tryggt sanngjarnt vöruverð. Þrátt fyrir starfsemi kaupfélaganna hefur álagning og milliliðakostnaður vaxið stórkostlega og íþyngt almenningi mjög. Það þýðir ekki heldur að segja, að kaupfélögin muni fá aðstöðu til samkeppni, ef engin höft verði á innflutningi. Innflutningsgetan takmarkast auðvitað af því innlenda fjármagni, sem innflytjandinn hefur til umráða. Lánsfjárkreppan leysir innflutningshöftin af hólmi. Sannleikurinn um „frílistann“ er sá, að bækistöðvar þeirra, sem takmarka innflutninginn, hafa verið fluttar úr gjaldeyrisdeild fjárhagsráðs í bankana, ofan af Skólavörðustíg niður í Austurstræti.
Einn gáfaðasti og málsnjallasti maður, sem setið hefur á þingi fyrir Sjálfstfl., sagði einu sinni í umr. um frv. eitt, að það, sem sér líkaði verst við það, væri, að með því ætti að taka ágóða af atvinnu fárra manna til þarfa fjöldans. Þetta er og hefur alltaf verið kjarninn í stefnu Sjálfstfl. Ágóðinn af atvinnu fárra manna hefur alltaf átt að ganga fyrir þörfum fjöldans. Og þetta er kjarninn í stefnu núverandi ríkisstj. Fáir menn stórgræða á atvinnu sinni. Fjöldinn tapar. Og Sjálfstfl. er harðánægður með stjórnarstefnuna. Það er ekkert undarlegt. En þeir eru ekki fáir, sem finnst það undarlegt, að leiðtogar Framsfl. skuli vera ánægðir með þessa stjórnarstefnu og virðast einnig vera komnir á þá skoðun, að ágóði fárra manna sé mikilvægari en þarfir fjöldans. Þarf ég að minna hlustendur á kosningaloforð Framsfl. um baráttu gegn „fjárplógsstarfsemi“ og „verzlunarólagi“? Hefur reynslan nokkurn tíma afhjúpað kosningaglamur jafnrækilega? Hvað hugsa óbreyttir framsóknarmenn eiginlega um leiðtoga sína? Skyldu þeir ekki — og almenningur í landinu yfirleitt — telja sjálfsagt, að þetta frv. Alþfl. verði samþ. ?
Að svo mæltu leyfi ég mér, herra forseti, að óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. fjhn.