23.10.1951
Neðri deild: 17. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 164 í C-deild Alþingistíðinda. (2583)
8. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm
Einar Olgeirsson:
Það mun eiga að vera tilgangurinn með þessu frv. að hjálpa alþýðu í baráttu hennar við dýrtíðina, — skapa henni betri aðstöðu í baráttunni við þá, sem dýrtíðinni valda. Það er þess vegna eðlilegt, að slíkar ráðstafanir sem þessar, er hér er lagt til að gerðar séu gegn dýrtíðinni, séu athugaðar nokkuð í ljósi reynslunnar og jafnframt sé litið á, hvort aðrar ráðstafanir væru ekki líka nauðsynlegar gegn dýrtíðinni og hver sé reynsla þjóðarinnar í þeirri baráttu síðasta áratuginn, því að af þeirri reynslu verður þjóðin að læra, ef hún ætlar nú að grípa til ráðstafana, sem eiga að duga henni að nokkru í viðureigninni við þann vágest.
Það er hægt að berjast gegn því dýrtíðarböli, sem þjáir almenning, á tvennan hátt: Í fyrsta lagi með því að reyna að draga úr dýrtíðinni sjálfri eða hindra eftir mætti vöxt hennar. Í öðru lagi með því að auka eftir mætti viðnámsþol alþýðu gegn dýrtíðinni, þannig að atvinna og launakjör alþýðu séu það góð, að vöxtur dýrtíðar þjái hana ekki, jafnvel að lífskjör hennar batni þrátt fyrir vaxandi dýrtíð.
Ef litið er yfir dýrtíðina síðustu 10 ár og aðstöðu íslenzkra heimila til þess að þola hana, má glöggt aðskilja tvö tímabil á þessum áratug með ólíkri þróun:
Fyrra tímabilið nær frá 1941 til ársloka 1947. Þetta tímabil einkennist af markvissri og árangursríkri sókn íslenzkrar alþýðu til að bægja afleiðingum dýrtíðarinnar frá sér, hindra það, að dýrtíðin verði alþýðuheimilunum óbærilegt böl. Alþýðan bægði dýrtíðinni frá sér á þessum árum með því að knýja fram meiri hækkun á launum sínum en dýrtíðinni nam og bæta þannig lífskjör sín stórum, þrátt fyrir vaxandi dýrtíð. Sósfl. hafði á þessu tímabili forustuna í Alþýðusambandi Íslands og ásamt einingarsinnum meiri hluta í stjórn þess. Enn fremur tók Sósfl. sem kunnugt er þátt í ríkisstj. landsins mikinn hluta þessa tímabils. Eitt höfuðatriðið, sem verkalýðssamtökin undir forustu Sósfl. knúðu fram á þessu tímabili, strax með verkföllum 1942, var, að kaupgjaldið skyldi greitt með fullri vísitöluuppbót mánaðarlega. Með því ákvæði var skapað það aðhald fyrir hvaða ríkisstj. sem var að hún yrði að berjast eftir mætti gegn dýrtíðinni, ella ætti hún launahækkun frá verkalýðnum vísa. Ríkisstjórn landsins hafði hitann í haldinu, hún gat ekki leyft sér að láta dýrtíðina vaxa bara á kostnað verkalýðsins. Slíkt var þá útilokað.
Þannig gekk í 6 ár. Vísitalan var í desember 1941 175 stig. Hún var í desember 1947 orðin 330 stig. Vísitalan hafði hækkað um 155 stig á 6 árum. Á sama tíma hafði kaupmáttur launanna ekki aðeins stigið í sama hlutfalli og vísitalan og dýrtíðin, heldur meira. Samkvæmt þeim útreikningum, sem Jónas Haralz og Ólafur prófessor Björnsson framkvæmdu 1948 fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, óx kaupmáttur tímakaups Dagsbrúnarmanna miðað við dýrtíðina á sama tíma úr 97 í desember 1941 upp í 156 í desember 1947, eða með öðrum orðum: Kaupmáttur tímakaupsins hafði aukizt um 60% á þessum sex árum fram yfir það, sem dýrtíðin hafði vaxið. Þannig höfðu íslenzk heimili fyrir harða og sigursæla baráttu verkalýðssamtakanna undir forustu sósíalista og einingarmanna í Alþýðusambandsstjórn hrundið af sér vágesti dýrtíðarinnar, bætt lífskjör stórum, bæði í krafti hækkaðra launa og aukinnar atvinnu.
Í desember 1947 verða straumhvörf. Þessu tímabili, sem ég hef lýst, lýkur. Hinir þrír samábyrgu flokkar, íhald, Framsókn og Alþfl., höfðu tekið við völdum í febrúar 1947. Fyrsta stjórn Alþfl. hafði verið mynduð. Framsókn var nú komin í stjórn í stað Sósfl., Framsókn, sem í sex ár hafði gengið með verðbólguna á heilanum og dýrtíðina á vörunum. Og nú skyldi ráðið niðurlögum dýrtíðardraugsins. Það var heitstrenging og stefnuskrá stjórnarinnar.
Þessi fyrsta stjórn Alþfl. hafði þá um vorið hækkað alla tolla og aukið þannig dýrtíðina. Hún hafði brennimerkt það sem glæp, ef alþýðan reyndi að velta þeirri auknu dýrtíð af sér með launahækkunum. En alþýðan gerði það samt með verkföllunum sumarið 1947. Í desember 1947 var svo af hendi þessara samábyrgu dýrtíðarflokka undir forustu Alþfl. gripið til ríkisvaldsins til að kúga alþýðuheimilin með löggjafarvaldi til að þola dýrtíðina, án þess að mega velta henni af sér. Það var með lögum bannað að greiða hærri vísitölu á kaupgjald en 300. Allir dýrtíðarflokkarnir, íhald, Framsókn og Alþfl., samþ. það. Sósfl. greiddi einn atkvæði á móti. Þar með var afnumið það aðhald að ríkisstjórn. að hún gæti ekki hækkað dýrtíðina bara á kostnað verkalýðsins.
Síðan eru liðin tæp 4 ár. Þessi 4 ár hafa þessir þrír flokkar mestmegnis verið samábyrgir um þær ráðstafanir, sem valdið hafa vexti dýrtíðarinnar, — alltaf samábyrgir um orsakirnar, en Alþfl. stundum fengið að skammast út í afleiðingarnar af orsökum, sem hann var meðábyrgur um, svo sem t. d. þegar gengislækkunin var sett á samkvæmt Marshallsamningnum, 2. gr., sem Alþfl. var með, en þóttist svo vera móti afleiðingum samningsins, gengislækkuninni.
Stefna valdhafanna á þessum fjórum árum gagnvart dýrtíðinni og alþýðuheimilunum hefur verið tvenns konar: Í fyrsta lagi að síauka dýrtíðina, — venjulega með kjörorð um baráttu gegn dýrtíðinni á vörunum. — Og í öðru lagi að síminnka burðarþol almennings til að geta borið dýrtíðina, og hefur ekki hvað sízt verið legið á því lúalagi að draga úr kaupgjaldinu eftir að ríkisstj. 1947 fékk frjálsar hendur um aukna dýrtíð án þess að þurfa að óttast sjálfkrafa uppbætur á dýrtíðina til verkalýðs og annarra launþega.
Og hver er nú árangurinn af 4 ára starfi hinna samábyrgu í anda dýrtíðarinnar og bandi Marshalls? Sú dýrtíðarvísitala, sem var 330 stig í desember 1947, er nú, eftir tæp 4 ár, orðin 574 stig, eða hefur hækkað um 244 st. (Ef reiknað væri með húsaleiguvísitölunni til viðbótar, kæmu út þau 612 stig, sem hv. 3. landsk., Gylfi Þ. Gíslason, minntist á í ræðu sinni.) Á 6 árum, frá 1941 til 1947, hafði hún hækkað um 155 stig, og þá ætlaði Framsókn af göflum að ganga yfir, hve skelfilega hún hækkaði, en nú hefur hún á 4 árum hækkað um 244 stig, og þá þegir Framsókn.
En hvað líður burðarþoli og viðnámsþrótti alþýðuheimilanna á þessum fjórum árum? Við munum, að lífskjör alþýðu höfðu á árunum 6, 1941-'47, batnað stórum, kaupmáttur dagkaupsins einn vaxið um 50% og atvinna stóraukizt, svo að atvinnuleysi var ekki til. Hvernig er ástandið á því sviði eftir fjögurra ára stjórn hinna þriggja samábyrgu? Kaupmáttur tímakaups Dagsbrúnarverkamanns hefur ekki verið reiknaður út með sama hætti og þeir Ólafur Björnsson og Jónas Haralz gerðu 1948, en ef við miðum hann við það, sem hinir samábyrgu miða allt við, dollarinn, þá lítur dæmið svona út:
Í des. 1947 var tímakaup Dagsbrúnarmanns kr. 9.13, eða 1.40 dollarar. 1. maí 1951, áður en verkalýðssamtökin undirforustu Dagsbrúnar og annarra dugandi verkalýðsfélaga Rvíkur lögðu út í víðtækasta verkfall, sem háð hefur verið á Íslandi, var tímakaup Dagsbrúnarmanns kr. 11.37, eða 0.69 dollarar. Það hafði lækkað um helming. Með fjögurra ára kúgunarráðstöfunum ríkisstj. hafði helming kaupmáttar verið rænt af tímakaupi hvers verkamanns. Þannig hafði verið dregið úr viðnámsþoli alþýðuheimilanna gegn dýrtíðinni, þannig hafði dýrtíðarbölið verið tvöfaldað á íslenzkum heimilum á þessu Marshalltímabili. — Og ekki nóg með það. Þar að auki hafði atvinnuleysinu verið hleypt á þjóðina, beinlínis verið skapað og skipulagt um allt land með ráðstöfunum ríkisstjórnar og fjárhagsráðs, þannig að dýrtíðin verður nú margfalt tilfinnanlegri, þegar fjöldinn af fyrirvinnum heimilanna hefur ekki vinnu nema samtals 2/3 hluta ársins allt niður í 3–4 mánuði. Og til þess að reyna eftir mætti að hindra aðgerðir verkalýðs og launþega til að velta af sér dýrtíðinni, hafa svo hinir þrír samábyrgu gert samsæri sín á milli um að ná Alþýðusambandinu á sitt vald og lama það í baráttunni, eins og reynslan sýnir.
Þetta er þá ávöxturinn af 4 ára samstarfi hinna samábyrgu.
Alþýða Íslands stynur undir verstu dýrtíð, sem hún hefur nokkru sinni þekkt, — hefur orðið að þola ægilega kauplækkun og býr nú við sívaxandi atvinnuleysi, sem, ef áfram er haldið núverandi stjórnarstefnu, leiðir til hörmungarástands í vetur.
Og nú kemur Alþfl. og segist skuli bjarga okkur undan ógnum dýrtíðarinnar. Það sé bara að láta fjárhagsráð íhaldsins, Framsóknar og Alþfl. ákveða verðlagið í landinu. Það er lóðið. Það er þetta ráð, sem hefur ákveðið verðlagið síðustu 4 ár, sem verðlagið hefur hækkað örast og mest. Það eru, eins og kunnugt er, fyrst og fremst innfluttu vörurnar, sem þarna er um að ræða. Við skulum athuga, hvernig verðmyndunin nú fer fram á þeim, hvað hægt væri að hafa áhrif á í þeim efnum og hver reynslan er af fjárhagsráði og ríkisstj. íhalds og Framsóknar um slík afskipti.
Við skulum þá fyrst athuga sjálf innkaupin nú, eftir að íhald og Framsókn eru búin að sýna höfuðstefnu sína um hækkun á verði út. lendu vörunnar með gengisfellingu íslenzku krónunnar. Hvernig væri helzt von til ódýrra innkaupa, miðað við núverandi valdaaðstöðu í Landinu og þar með útilokun allrar þjóðnýtingar á innflutningsverzluninni? Ætli væri ekki helzt nokkurs árangurs að vænta af raunverulegri samkeppni um verðlagið, ef kaupfélög og smákaupmenn hefðu það fé milli handa, að þessir aðilar gætu keypt af hinum ýmsu heildsölum og SÍS án þess að vera þeim háðir eða skuldbundnir og látið þessa aðila, sem umboðin hafa og samböndin erlendis, keppa vægðarlaust sín á milli um að bjóða sem bezt. Til þess að svo væri, þyrftu bankarnir að veita lánsfé beint til kaupfélaga og kaupmanna, sem þá mundu og keppa sín á milli um verð og gæði.
En hver er stefna ríkisstj. í þessum málum um að gera fólkinu sem hægast um innkaup vörunnar, svo að hún geti orðið sem ódýrust í útsölu? Stefna ríkisstj. og fjárhagsráðs hennar, þ. e, stefna íhaldsins og Framsóknar í þessum málum, kemur mjög greinilega fram í tvennu: annars vegar lánsfjárbanninu, hins vegar bátaútvegsgjaldeyrinum.
Við skulum athuga lánsfjárbannið fyrst. Um tilveru þessa banns við að lána fé þarf ekki að fjölyrða. Allir, háir sem lágir, fátækir sem ríkir, verða nú fyrir barðinu á því. Því fer svo fjarri, að ríkisstj. reyni að stuðla að því, að kaupfélög og kaupmenn fái fé til þess að geta knúið fram sem hagstæðust innkaup, að ríkisstj. þvert á móti bannar bönkunum að lána þessum smáu, — og ekki aðeins þessum smáu, heldur megninu af þeim stóru líka, — þeim, sem ekki eru í náðinni í innsta hringnum.
Það er rétt fyrir alla þá aðila, sem nú verða að þola lánsfjárneitanir í bönkunum eða lána bönkunum 25, 50% og upp í 100% af andvirði vöru upp í ábyrgð til þess að fá að kaupa hana inn, að athuga, hver hefur sett á allt þetta bann og þessar lánsfjárhindranir, sem eru að drepa verzlun og viðskipti og allt atvinnulíf. Það upplýstist hér í Nd., í umr. um þá till., sem ég hef lagt fram um að rannsaka afskipti dr. Benjamíns Eiríkssonar af lánveitingum bankanna, að fyrirmælin um lánsfjártregðuna. sem nú þjakar viðskiptin og sligar atvinnulífið, eru frá ríkisstj., frá ráðherra Sjálfstfl., Birni Ólafssyni, banka- og viðskiptamálaráðherra. Þetta skauzt víst óvart upp úr ráðh. í áfergju hans að verja Benjamín Eiríksson, og síðan hefur hann helzt ekki viljað koma inn í d. til að ræða málið.
Það er rétt fyrir atvinnurekendur og kaupmenn, bændur og aðrar starfsstéttir, menn, sem nú er smám saman verið að koma í rekstrarþrot eða greiðsluþrot, að muna það, að lánsfjárkreppan er samkvæmt þessu ekki Landsbankanum að kenna, því síður Útvegsbankanum eða Búnaðarbankanum, heldur beinlínis ráðherrum Sjálfstfl. og þá fyrst og fremst Birni Ólafssyni. Það eru járngreipar ráðherranna í Sjálfstfl., sem læsa bönkunum. Það er ráðstöfun þeirra stærstu í Sjálfstfl. til þess að drepa þá smáu og þá ef þeim stóru, sem ekki eru í náðinni hjá coca-cola-klíkunni.
Og það er rétt fyrir alla alþýðu að athuga um leið, hver er að verða afleiðingin af þessari lánsfjárkreppu, sem forkólfur íhaldsins, Björn Ólafsson, hefur leitt yfir atvinnurekendur almennt, jafnt iðnrekendur, kaupmenn sem alla aðra, bændur og búalið, iðnaðarmenn og verkamenn. Nú þegar er búið að segja upp fjölda af föstu starfsfólki frá nýári, þótt það hafi unnið árum saman. Lokun fjölda iðn- og verzlunarfyrirtækja stendur fyrir dyrum. Almennt atvinnuleysi er þegar komið á víða um land, og nú á það að skella yfir Reykjavík eftir nýár. Með stöðvun fjölda fyrirtækja, með efnahagslegu hruni fjölda smáatvinnurekenda og ýmissa stærri atvinnurekenda, með eyðileggingu á efnahag millistétta og verkamanna ætlar hin pólitíska fjárglæfraklíka íhaldsins, coca-cola-valdsins, að ná yfirráðum fjölda smáfyrirtækja, húsa og annarra eigna í sínar hendur fyrir smánarverð, en skapa um leið almennt atvinnuleysi sem hinn æskilegasta grundvöll að nýrri árás á kaupgjaldið.
Það þarf ekki að eyða frekari orðum að því, sem hér var um rætt. Ríkisstj. mun ekki aðstoða við að kaupa ódýrt inn, sízt hjálpa þeim smáu til að fá ódýrt lánsfé, en hún mun fyrirskipa að gera öll innkaup sem erfiðust og dýrust.
Á einu sviði fær hún hvað bezt að sýna þá stefnu sína, í meðferðinni á bátaútvegsgjaldeyrinum. Strax og þingi lauk s. l. vetur gaf fjárhagsráð ríkisstj. út reglugerð, sem átti víst að sannfæra fólk um blessun þeirrar frjálsu verzlunar, sem ríkisstj. hefur velþóknun á. Þar var ákveðið, að tilteknar vörur, svo nefndar bátaútvegsgjaldeyrisvörur, mætti enginn flytja inn nema greiða 25–50% gjald í sérstakan sjóð eða hafa fengið leyfi hjá sérstakri nefnd með því að greiða jafnvel enn þá meira. Það er þessi ráðstöfun um einokun þessara vara, sem gerði mestallt það okur mögulegt, sem rætt hefur verið um. Ríkisstj. þóttist með þessari ráðstöfun vera að hjálpa bátaútveginum, en svo var bara alls ekki. Höfuðgróðinn á þessari einokunarráðstöfun ríkisstj. rann til vissra máttarstólpa íhaldsins, sem fengu aðstöðuna til að arðræna með því bæði smákaupmenn og almenning.
Rannsókn, sem farið hefur fram á verðmyndun nokkurra af þeim vörum, sem tilheyra þessum flokki bátaútvegsgjaldeyrisins, sýnir eftirfarandi:
Innkaupsverð 1.958.000 kr.
Bátaútvegsgjaldeyrisálagning 738.000 kr.
Verzlunarálagning 2.413.000 kr.
Tollar, fragt, söluskattur 2.391.000 kr.
7.500.000 kr.
Með öðrum orðum: Af vörum, sem kosta í útsölu 7½ millj. kr., fær sjálfur bátaútvegurinn í álagningu aðeins 738 þús., en verzlunarálagning er 2.4 millj., og svo er eftir Eysteins hlutur. söluskattur, tollar etc., 2.4 millj. Kaupgjald sjómannanna, er afla gjaldeyrisins, sem útlenda varan er keypt fyrir, er undir 1 millj. kr., en varan kostar í útsölu 7½ millj. Undrar nú nokkurn, þó að kaupgetan hjá almenningi hrökkvi skammt og öll verzlun sé að dragast saman og stöðvast?
En stefna ríkisstj. og fjárhagsráðs hennar er augljós: vægðarlaus verðhækkun og okur á almenningi undir yfirskini hjálpar við bátaútveginn.
Og þó er ekki öll sagan sögð með þessu. Ríkisstj. og fjárhagsráð hennar gengur svo langt í þessari einokunar- og okurstarfsemi sinni gagnvart almenningi, að hún skirrist ekki við að brjóta lög. Reglugerð sú, sem fjárhagsráð gaf út 8. marz s. l. um bátaútvegsgjaldeyrinn, eftir ósk ríkisstj., styðst ekki við nein lög og er sjálf brot á lagaákvæðunum um fjárhagsráð, þar sem ákveðið er, hvernig gjaldeyrisleyfi skuli útgefin og við hvað útgáfa þeirra miðist. Þessi reglugerð fjárhagsráðs og ríkisstj. er lögbrot og ég skora hér með á hæstv. viðskmrh. að tilgreina, hvaða lagagrein það sé, sem heimili ríkisstj. að veita slíka álagningu á einstakar vörur einstökum mönnum til handa, sem fólust í reglugerð hennar frá 8. marz. — Hér er ekki til umr., hvort bátaútvegsgjaldeyririnn sé nauðsynlegur, sanngjarn eða réttlátur, um það ætla ég ekki að ræða, en aðeins um hitt: er hann löglegur? Eða eru ríkisstj. og fjárhagsráð búin að láta taka gjöld af almenningi, sem nema milljónatugum, og búin að gefa gæðingum sínum í verzlunarstétt aðstöðu til að græða milljónatugi, allt með lögbrotum?
Ég vona, að hæstv. viðskmrh. láti ekki á sér standa að svara nú frammi fyrir almenningi. Hann var aðvaraður um þetta lögbrot s. l. vetur, áður en hann framdi það, og skeytti því engu. Hann hefur verið spurður nú á þingi, en hliðrað sér hjá að svara því. Því verður ekki á móti mælt, að það er þessi reglugerð um bátaútvegsgjaldeyrinn, sem gefið hefur okrurunum tækifærið og valdið til að okra á fólkinu, á smákaupmönnunum og almenningi.
Þess hefur verið krafizt, að nöfn hinna seku væru birt, — nöfn þeirra, sem valda þessu okri á almenningi, gera sér gull úr neyð fólksins. Það er rétt að verða við þeirri kröfu. Og þá ber að nefna fyrst nafn þess manns, sem brotið hefur lögin til þess að gera það mögulegt að okra á fólkinu, — þess manns, sem traðkað hefur lög og vald Alþ. undir fótum og þrátt fyrir allar aðvaranir um lögleysi athafna hans hleypt okrurunum inn um lögbrotahliðið, sem hann bjó til handa þeim. Og „nú kem ég að því gullna nafni“ — það er hæstv. viðskmrh., Björn Ólafsson.
Ég efast ekkert um, að hann hafi framið lögbrotin í góðum tilgangi. Ég efast ekkert um, að drjúgur hluti af okurgróðanum, sem náð er af almenningi með lögbrotum ráðherrans, fari beina leið í kosningasjóð Sjálfstfl. og verði varið til þess við næstu kosningar að fá þá, sem nú hafa verið féflettir, til þess að kjósa okraraflokkinn aftur. Ég efast ekki heldur um, að hæstv. ráðh. hefur haft góða og dýra ráðunauta við að sjóða saman þennan lögbrotalista sinn. Flaug ekki Benjamín tvisvar vestur í vetur til að fá leyfi til að setja hann saman? Hvað kostar Benjamín á ári? Eru það ekki 60 þús. kr., sem goldnar eru á ári fyrir þennan sérfræðing í lögbrotum og afglöpum? Tvisvar sinnum þrjátíu þúsund — þetta er að hækka í verði. Og hæstv. ríkisstj. er öll samsek viðskmrh. um þetta lögbrot. Það er hún sem heild, sem hefur óskað eftir því, að þessi lögbrot væru framin. Og það er hún, sem hefur samtímis bannað neytendasamtökum landsins og smákaupmönnum að kaupa vöruna, sem okrað var á, beint og frjálst inn í landið.
Það er þess vegna hlægilegt, já, beinlínis viðurstyggileg hræsni, þegar Björn Ólafsson er að áminna okrarana með uppgerðarvandlætingu, eins og á Varðarfundi í gær. Það er rétt eins og maður, sem brotið hefur upp hliðið fyrir úlfum inn á kindarétt, sé að áminna úlfana á eftir.
Svona er þá myndin af því, hvernig ríkisstj. og fjárhagsráð hennar fer að aðstoða fólkið við að fá vörurnar sem ódýrastar. Á ég að halda áfram að lýsa því, hvernig ríkissjóðurinn svo tekur við með sínar álögur, söluskatta, tolla o. s. frv.? Þess þarf ekki, það finnur hvert mannsbarn í landinu, hvernig verið er að sliga þjóðina undir ofurþunga þeirrar byrði, sem ríkisstj. hefur lagt henni á herðar.
Og jafnhliða gerir svo þessi ríkisstj. allt, sem í hennar valdi stendur, til þess að draga úr burðarþoli almennings, — lækkar launin eftir mætti, minnkar atvinnuna svo gífurlega, að til hörmunga horfir um allt land, og bannar fólkinu samtímis í krafti einokunarfjötra sinna á atvinnulífinu að reyna að bjarga sér sjálft.
Og þá kemur svo spurningin, sem óhjákvæmilega kemur upp í sambandi við þetta frv. Er þessari ríkisstj. og fjárhagsráði hennar treystandi til að hafa með höndum verðlagningu vörunnar í landinu? Ég segi nei. Mér liggur við að segja: Látið þið þessa ríkisstj. og hennar fjárhagsráð ekki koma nærri nokkrum sköpuðum hlut, sem hægt er að bjarga frá krumlum hennar. — Látið þið hana ekki koma nærri atvinnulífinu, hún stöðvar það! Látið þið hana ekki snerta við útflutningnum, hún bannar hann eða dregur hann saman eins og hún þorir! Látið þið hana ekki koma nærri innflutningnum, hún skipuleggur okrið á honum! Varið ykkur, ef hún segist ætla að fara að ráða við dýrtíðina — hún margfaldar hana! Lofið þið fólkinu að vera í friði fyrir þessari ríkisstj. og öllum hennar ráðum, gefið þið fólkinu frelsi til þess að mega í friði fyrir ríkisstj. framleiða, flytja út og flytja inn, byggja hús og skapa atvinnutæki, — lofið því í friði fyrir ríkisstj. og öllum hennar boðum og bönnum að bjarga sér sjálft. — Og þar með ætla ég síður en svo að neita því, heldur þvert á móti að undirstrika, að ríkisstj. gæti með afskiptum sínum af kjörum fólksins hjálpað því stórkostlega í lífsbaráttunni. En til þess þarf ríkisstj., sem vill vinna fyrir fólkið, en ekki gegn því, eins og þessi ríkisstj. hefur gert á öllum sviðum. En að skapa slíka ríkisstj., sem vinnur fyrir fólkið, — það getur enginn nema fólkið sjálft, ef það í kosningunum gætir þess að láta ekki blekkjast til þess að kjósa fjendur sína, sem með fagurgala lýsa stríði á hendur fjárplógsstarfsemi, til þess að fá vald til að fórna fólkinu fyrir fjárplógsstarfsemina á eftir, — og ef fólkið gætir samtaka sinna, þessara vopna þess í lífsbaráttunni, og lætur þau ekki falla í ræningjahendur, sem nota þau gegn því, er mest á ríður. En ríkisstj. fólksins sjálfs væri vissulega eitt sterkasta vopn alþýðunnar gegn dýrtíðinni, rétt eins og núverandi afturhaldsstjórn þrengstu auðvaldsklíkunnar í Reykjavík er skæðasta vopnið til að vega að lífskjörum fólksins með.
Ég álít þess vegna, meðan völdum núverandi dýrtíðarstjórnar og dýrtíðarflokka ekki er hnekkt, að neytendasamtök fólksins og heilbrigð samkeppni kaupfélaga og smákaupmanna er báðir væru algerlega lausir við núverandi einokun ríkis og banka á útflutningi og innflutningi, mundi vera skásta fyrirkomulagið, sem völ væri á, til að hafa hömlur á verðlagi neytendum í hag.
Þó ber því ekki að neita, að á nokkrum sviðum mundi slíkt verðlagseftirlit fólksins sjálfs ná skammt. Það er á sviði þeirra vara, sem einokunarhringar auðvaldsins hafa sölsað undir sig. Þar þyrfti að beita valdi hins opinbera, til þess að firra almenning ósvífnu arðráni.
En mundi þá verðlagsákvörðun fjárhagsráðs ríkisstj. vera trygging fyrir fólkið gegn því, að slíkir auðhringar féflettu það? Því fer fjarri. Reynslan sýnir hið þveröfuga. Eða hvað finnst almenningi um, hve vel ríkisstj. og fjárhagsráð hafi verndað almenning gegn olíuhringunum t. d.? Ég þarf ekki nema að nefna olíumál, svo að almenningur skilji.
Hæstv. ríkisstj. og fjárhagsráð hennar eru eins konar sameign eða erfðafesta verstu auðhringanna og okraranna í landinu, þar sem þeir eru að reyna að samræma hagsmuni sína og aðferðina við að féfletta fólkið. Að treysta slíkri ríkisstj. Sjálfstfl. að varðveita neytendur er eins og að treysta úlfinum að gæta lambsins.
En hitt er svo annað mál, að það væri hægt að skapa sérstakt vald til þess að vinna að þessum miklu hagsmunamálum almennings. Það væri hægt að láta samtök húsmæðra, verkamanna, sjómanna og ýmissa annarra, sem hagsmuna eiga að gæta, útnefna sérstaka verðlagsnefnd, t. d. svipað og verðgæzlunefndin var samsett, en bara miklu valdameiri og þá fyrst og fremst með valdi til verðlagningar. Ef slík samtök fólksins sjálfs fengju slíkt verðlagsvald í hendur, mætti vænta nokkurs árangurs í baráttunni við dýrtíð og okur, enda hefur ríkisstj. alltaf haft ímugust á slíkri nefnd og ætíð drepið þær till., sem fluttar hafa verið um að koma slíku valdi í hendur fólksins sjálfs. En ef slíkar till. næðu fram að ganga, þá væri vissara fyrir almenning að athuga, að fulltrúar hinna samábyrgu um dýrtíðina næðu ekki tangarhaldi á slíkri nefnd og eyðilegðu starf hennar og baráttu eins og komið hefur fyrir.
Ég mun nú, þegar þetta frv. kemur til fjhn., freista þess að fá fram á því þær breyt., er tryggðu, að það gæti orðið fólkinu að verulegu gagni í baráttu þess við dýrtíð og okur ríkisstj. og skjólstæðinga hennar.