23.10.1951
Neðri deild: 17. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 180 í C-deild Alþingistíðinda. (2587)
8. mál, verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm
Emil Jónsson:
Herra forseti. Háttv. hlustendur. Hæstv. viðskmrh. hóf mál sitt á þeirri mjög óheppilegu fullyrðingu, að atvinnuleysi væri nú ekki til á Íslandi. Er alveg furðulegt, að hann skuli leyfa sér að taka sér í munn þau orð, þegar vitað er, að nálega í hverjum einasta kaupstað og sjávarþorpi þessa lands ganga menn nú svo tugum og hundruðum skiptir atvinnulausir. Þótti mér það ekki spá góðu um heiðarlega málsmeðferð af hálfu hæstv. ráðh. að byrja svona. — Hann sagði einnig, þessi hæstv. ráðh., að Alþfl. heimtaði nú innflutningshöft og skömmtun, þrátt fyrir það, að því var yfirlýst af frummælanda hér í kvöld, að Alþfl. óskaði eftir hvorugu þessu.
Hv. 2. þm. Reykv., Einar Olgeirsson, vildi kenna Alþfl. um stjórnarstefnuna til þessa dags, þó að vitað sé og því marglýst yfir, að Alþfl. er stj. í grundvallaratriðum ósammála. Þetta kom mér að vísu ekki á óvart, þetta er venjuleg málsmeðferð kommúnista, og ég skal ekki heldur hér, frekar en ég er vanur, elta ólar við að svara öfgum, firrum og öfugmælum þeirra félaga; en ég get þó ekki stillt mig um að benda á eitt atriði í ræðu Einars Olgeirssonar í viðbót. Það var eftirtakanlegt, að í hans löngu ræðu kom það hvergi skýrt fram, hvort hann er með eða móti máli því, sem hér liggur fyrir, um lagasetningu til að binda endi á okrið. Það skyldi þó aldrei vera vegna þess, að kommúnistar hafa nú upp á síðkastið sjálfir stofnað allmörg heildsölufyrirtæki til að einoka viðskiptin við löndin austan járntjalds og að Einar Olgeirsson eigi þar hagsmuna að gæta?
Hv. þm. V-Húnv., Skúli Guðmundsson, gerði það að einu höfuðefni sinnar ræðu, að Alþfl. hefði staðið illa í ístaðinu fyrir samvinnufélögin, meðan hann var í stjórn með Framsfl. Þetta er illa og ómaklega mælt, því að hann reyndi, eftir því sem hann frekast gat, að auka hlut þeirra í hinum takmarkaða innflutningi. Innflutningur samvinnufélaganna á ýmsum vörum gerði meira en tvöfaldast á þessu tímabili, og í mörgum öðrum vöruflokkum stóð Alþfl. einnig að hlutfallslegri innflutningsaukningu samvinnufélaganna, þó að vitanlega væri ekki hægt með hinum takmarkaða innflutningi að fullnægja öllum þörfum. Hins vegar vildi Alþfl. aldrei ganga inn á að gera skömmtunarseðlana að innflutningsleyfum, eins og nokkrir forustumenn Framsfl. á þingi vildu, en um það atriði er líka vitað, að forsvarsmenn S. Í. S., sumir að minnsta kosti, vildu það ekki heldur.
Mér finnst einkum þrjú atriði athyglisverð í sambandi við verðlagsmálin:
1) Hin óhóflega hækkun álagningar á einstökum vörutegundum.
2) Hin almenna hækkun á flestöllum vörum.
3) Andúð, eða réttara sagt, bein andstaða stjórnarflokkanna beggja gegn því, að sett verði með lögum ákvæði um hámarksálagningu eins og áður var.
Ég skal fara nokkrum orðum um hvert þessara atriða.
Í skýrslu verðgæzlustjóra kemur greinilega fram, að álagningin á einstaka vöruflokka hefur hjá nokkrum heildsölum verið svo gífurleg, að það er ekki hægt að kalla hana annað en beint okur. Þegar álagningin tvöfaldast, þrefaldast, tífaldast og jafnvel þrettánfaldast, þá er ekki hægt að hafa um hana annað orð. Með skýrslu þeirri, sem hæstv. viðskmrh. las nú upp, vildi hann raunar reyna að bera af sér hina geysiþungu ádeilu, sem fólst í fyrstu skýrslu verðgæzlustjóra um málið. En þetta tekst ekki. Það hefur ekkert komið fram, sem hnekkir því, að sú skýrsla sé rétt. Og þó að nú hafi ekki tekizt að finna sömu háu álagninguna og þá, sannar það ekki neitt. Hin margnefnda okurálagning hefur átt sér stað, og hún getur átt sér stað aftur hvenær sem er, þegar það frelsi í verzlunarmálum hefur verið innleitt fyrst af öllu að nema á brott allar hömlur á álagningu. Það verða ávallt til menn, sem nota sér það, þegar færi gefst. Hér eiga að vísu ekki allir óskilið mál. En það er þekkt fyrirbæri alls staðar, að þegar framboð á vöru er ekki nægilega mikið til að fullnægja eftirspurn, er ávallt tilhneiging hjá þeim, sem selja, til að hækka verðið.
Þó að verzlun okkar hafi nú að nafni til verið gefin frjáls að nokkru leyti, þá er það því miður fullvíst, að ekki verður um sinn hægt að flytja inn nægilegt magn af öllum vörum til að fullnægja allri eftirspurn. Ber þar margt til, en ég skal aðeins nefna eitt atriði.
Á meðan stærstu þjóðir veraldar vígbúast eins og nú, er ekki framleitt nægilega mikið af ýmsum vörum, sem almenningur þarf að nota og vill kaupa. Þetta hafa mestu fríverzlunarþjóðir heimsins skilið, t. d. bæði Bretar og Bandaríkjamenn. Þó að frjáls verzlun sé mjög í heiðri höfð t. d. í Bandaríkjunum, eru þar í gildi mjög ströng ákvæði um hámarksverð á ýmsum hlutum, sem talin er hætta á að annars mundi verða lagt óhóflega mikið á. Frjáls verzlun er nefnilega eitt, og ráðstafanir gegn okri er allt annað, þó að hér sé reynt eftir megni að rugla þessu tvennu saman. Það hlýtur því að vera alger lágmarkskrafa neytenda, að stjórnarvöldin tryggi þá gegn okri á þessum vörum.
Annað atriði, mjög athyglisvert, sem ég minntist á í upphafi, er það, að svo virðist af skýrslu verðgæzlustjóra, að samtök hafi átt sér stað um almenna verðhækkun á æðimörgum nauðsynjavörum. Nú má vitaskuld alltaf um það deila, hvort álagningin hafi verið nægileg eða ekki, og líka um hitt, hversu mikið hafi átt að hækka hana, ef hækkunar hefur verið þörf. En samtök um sömu álagningu hjá öllum, sem verzla með ákveðna vöru, hefur í sér fólgna mjög greinilega hættu fyrir neytendur. Það hefur jafnvel verið á orði haft, og kemur enda fram í skýrslunni, að KRON hafi verið með í þessum samtökum. Þessu hefur nú að vísu verið mótmælt, en grunsamlegt er það, þegar sama varan er alls staðar seld með sömu álagningu, þó að erfitt kunni að reynast að sanna, að samtök hafi átt sér stað. Með þess háttar aðgerðum verður lítið úr þeirri tryggingu, sem neytendur eiga að hafa fyrir hæfilegri álagningu gegnum hina frjálsu samkeppni. Gegn slíku dugir ekki neitt nema lögbundin verðlagsákvæði.
Þá kem ég að þriðja atriðinu: hinu einkennilega fyrirbrigði, að báðir stjórnarflokkarnir, Sjálfstfl. og Framsókn, skuli ekkert í þessu máli vilja gera, nema hvað Tíminn hefur imprað á því lítils háttar, að nöfn hinna seku þyrfti að birta, en ekki einu sinni það hefur fengizt gert.
Afstaða Sjálfstfl. til málsins kemur út af fyrir sig ekki á óvart. Í þeim flokki eru heildsalarnir flestir og aðrir þeir, sem ný verðlagsákvæði mundu valda minni gróða og meira aðhaldi. Þaðan er því tæpast hjálpar né aðstoðar að vænta í þessu máli. Þess arna mættu þó neytendur vera minnugir, að þegar í odda skerst milli þeirra og heildsalanna, þá ljær Sjálfstfl. ekki máls á því að stöðva okrið, ekki einu sinni að skýra frá því, hverjir misnota trúnaðinn, svo að öll verzlunarstéttin liggur undir ámæli, og margir vafalaust að ósekju.
Hitt vekur svo meiri furðu, að Framsfl., sem hingað til hefur látið svo sem honum væri annt um hag neytendanna, fæst ekki heldur til að taka í sig kjark og krefjast aðgerða. Hann lætur sér nægja að skrifa svo að segja daglega í Tímann um okrið og fordæma það í orði, en hreyfir hvorki hönd né fót á þingi til að fá því aflétt. Og hann gerir raunar meira. Einn mjög skrifandi blaðamaður Tímans, sem hefur að sérgrein að skrifa um brask og okur í alls konar myndum, skrifaði nú fyrir skömmu um verzlunarokrið og fordæmdi það réttilega. En hann kom í leiðinni líka inn á húsnæðisokrið, sömuleiðis réttilega, gleymandi þó því, að það var Framsfl. eða framsóknarmenn, sem námu í burtu síðustu og raunar einu fyrirstöðuna fyrir þeirri starfsemi með afnámi húsaleigulaganna nú fyrir skömmu. Það er sitt hvað orð og athafnir.
Ég hef verið að leita að því í huganum, hvaða ástæður kynnu að liggja til þess, að Framsfl. fæst ekki til að tryggja neytendur fyrir of háu vöruverði með því að lögleiða hámarksálagningu, og ég hef fundið tvær hugsanlegar skýringar. Hin fyrri er sú, að mér er kunnugt um, að ýmis kaupfélög töldu álagninguna of lága eins og hún var, á meðan hún var bundin, og að af þeirra hálfu voru gerðar ítrekaðar tilraunir til að fá hana hækkaða. Það eru þess vegna fullar líkur fyrir því, að samvinnufélögin orki á framsóknarforustuna í þessu máli ekki ósvipað og heildsalarnir á Sjálfstfl. og að hann vilji af þessum sökum gefa kaupfélögunum frjálsar hendur.
Önnur ástæða, sem ég hef getað hugsað mér fyrir þessari afstöðu Framsfl., er svo sú, að þetta sé bein afleiðing af stjórnarstefnunni. Hinum frjálsa innflutningi á vörum, sem mikið er talað um, sé ekki hægt að halda, nema vörurnar séu svo dýrar, að almenningur geti ekki keypt þær, og þess vegna sé stjórnarliðinu ósárt um, þó að vöruverðið hækki. Af sömu ástæðum er rekstrarfé kaupmanna líka mjög takmarkað, til að þrengja innflutningsmöguleika. Hátt vöruverð dregur úr innkaupamöguleikum almennings, og takmörkun á rekstrarfé færir verzlunina úr höndum hinna smáu og févana og yfir á hendur þeirra stóru og fésterku. Með þessu móti og með stórfelldum fjárframlögum frá efnahagssamvinnustofnuninni o. fl. hefur tekizt að halda innflutningnum frjálsum að nokkrum hluta, að koma upp vörubirgðum í búðum af einstaka vörutegundum, sem ekki voru hér til áður, meira og minna þörfum.
Afleiðingarnar af þessari pólitík ríkisstj. hafa ekki heldur látið á sér standa. Vísitala framfærslukostnaðar hefur hækkað um 50% á réttu 1½ ári. Til samanburðar má geta þess, að vísitalan hækkaði á rúmum 5 árum, frá október 1944 til ársloka 1949, um rétt rúm 25%. Með öðrum orðum: á 1½ ári hefur núv. ríkisstj. tekizt að hækka vísitöluna helmingi meira en hún hækkaði samtals næstu 5 ár á undan. Dýrtíðin hefur því vaxið með rúmlega sexföldum hraða í tíð núv. stjórnar, miðað við meðaltal næstu 5 ára á undan. Áhrif þessarar hækkunar vöruverðsins hafa vitanlega orðið þau, að kaupgjald hefur hækkað, þó að ekki hafi það hækkað jafnmikið; framleiðslukostnaður hvers konar hefur vaxið, atvinna dregizt saman og atvinnuleysi, sem um langan tíma hefur verið hverfandi lítið hér á landi, hefur skotið upp kollinum á ný og er nú víða að verða lítt viðráðanlegt vandamál sveitar- og bæjarfélaga. Og ríkisstj. hreyfir ekki hönd né fót, ekki einu sinni til að fyrirbyggja okur á neyzluvörum, segir allt í lagi, því að frjáls verzlun og verðmyndun sé nú að komast á hér, og þá sé allt harla gott.
Ef þetta þykir lítil skýring eða afsökun í veikasta lagi af hálfu ríkisstj., er svo alltaf hægt að halda því fram, að ástandið sé að minnsta kosti betra en það var, þegar biðraðir og svartur markaður hafi verið einkennandi fyrir verzlunarástandið í tíð fyrrv. stjórnar, og Alþfl. svo eignaður heiðurinn af því ástandi. Um þetta er það að segja, að þegar tillit er tekið til hinnar geysilegu fjárfestingar, sem átti sér stað þau ár, þegar um og yfir þriðjungur þjóðarteknanna fór til fjárfestingar, þá er það sannarlega ekki að undra, þó að neyzluvöruinnflutningurinn yrði í knappara lagi. Og þó má segja, að ekki væri skortur á neyzluvörum, svo að verulegu næmi nema á tveimur vöruflokkum, vefnaðarvöru og skófatnaði, að nokkru leyti. Og þessu hefði verið hægt að þoka nokkuð til betri vegar, ef nægur vilji hefði verið fyrir hendi hjá samstarfsflokkunum í fjárhagsráði, og ríkisstj. Alþfl. vildi auka nokkuð innflutninginn á þessum vöruflokkum, en fékk því ekki ráðið, fyrir framsóknarmönnum sérstaklega. Stjórnarstefnan var þá fyrst og fremst sú að tryggja atvinnu handa öllum og halda verðlagi niðri með ströngum verðlagsákvæðum. Þessu hefur nú verið snúið við, með því að láta verðlagið afskiptalaust og með þeim árangri, að atvinnuleysið hefur haldið innreið sína.
Mér er kunnugt um útgerðarfyrirtæki, sem eiga nú örðugra uppdráttar en þau áttu fyrir gengislækkun. Tilkostnaður hefur vaxið meira en sem nemur gengishagnaðinum. Og hvað er þá unnið? Mér hefur líka verið sagt, að nú hafi togaraeigendur leitað til ríkisstj. og í fyrsta sinn farið fram á sams konar gjaldeyrisfríðindi og vélbátunum voru veitt á þessu ári. Allt stefnir því með ört vaxandi hraða í sömu átt. Hin frjálsa verðmyndun, eins og það er svo fallega orðað, dregur með vaxandi hörku úr kaupgetu og afkomu almennings, en hún virðist líka vera að sliga útflutningsatvinnuvegina með vaxandi þunga.
Það frv., sem hér er flutt, er tilraun til þess að gera þá fyrstu og sjálfsögðustu ráðstöfun gegn vaxandi dýrtíð, sem hægt er að gera. Það á að verja neytendur fyrir okri á vörum, sem mikil eftirspurn er eftir, og koma í veg fyrir samtök um álagningu til að halda uppi verði. Hvern getur þetta skaðað, og hví má ekki samþykkja frv.? Hvaða ástæður liggja til þess, að ekki má lögfesta þetta? Vilja ekki fulltrúar stjórnarflokkanna, sem eftir eiga að tala, svara því?
Ég vil að lokum aðeins segja þetta: Hæstv. viðskmrh. sagði, að Alþfl. mundi vera sár yfir því að fá ekki að vera í núv. ríkisstj., eins og hann orðaði það. En það skal ég segja ráðherranum, að þetta sárnar Alþfl. ekki. Það veit sá, sem allt veit, að í svona stjórn mundi Alþfl. aldrei taka þátt.