12.10.1951
Neðri deild: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 198 í C-deild Alþingistíðinda. (2608)

15. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Gallar núgildandi skattalaga eru margir. Einn þeirra er sá, að skattur er lagður á samanlagðar tekjur hjóna. Enn fremur er óeðlilega lítill munur gerður á skatti hjóna annars vegar og einhleyps fólks hins vegar. Úr þessum tveimur göllum er þessu frv. ætlað að bæta. Samsköttun á tekjum hjóna er óeðlileg og sérstaklega ranglát, þegar skattstiginn er mjög hár eins og hér. Gift kona, sem hefur sjálfstæðar tekjur, verður í rauninni að greiða hærri skatt af þeim tekjum en greiddur er af tekjum mannsins. Þetta er óverjandi ranglæti gagnvart hinni vinnandi konu og óheppilegt frá þjóðhagslegu sjónarmiði. Það getur jafnvel freistað fólks til að giftast ekki, til þess að spara skatt- og útsvarsgreiðslu.

Ég vil leyfa mér að nefna nokkrar tölur til að sýna þau áhrif, sem þessi samsköttun á tekjur hjóna hefur. Það er algengt að heyra deilt um þessi mál, án þess að menn geri sér grein fyrir því, hver áhrif gildandi reglur hafa. Í fyrsta lagi skal gert ráð fyrir því, að hvort hjónanna um sig vinni og afli sjálfstæðra peningatekna. Bæði hafa jafnt kaup, 20 þús. kr. hvort. Samkvæmt núgildandi reglum verður skattur og útsvar þessara hjóna 7189 kr. Ef þau væru ógift, mundu skattar og útsvar hvors vera 2254 kr. eða beggja 4508 kr. Þau greiða þannig 2681 kr. meiri skatt og útsvar af þessum lágu tekjum, ef þau eru gift, heldur en þau mundu gera, ef þau væru ógift. Skattur þessara tveggja einstaklinga af tekjum þeirra hækkar um 59%, vegna þess að þau giftast, ef aðstaðan er að öðru leyti óbreytt. — Ég skal taka annað dæmi. Ef eiginmaður hefur 32 þús. kr. tekjur, en kona hans 18 þús., þá eru skattar og útsvar 11259 kr., en ef þau væru ógift, þá væru skattar og útsvar 7284 kr. eða 3975 kr. lægri. Skattar og útsvar hækkar hvorki meira né minna en um 55% við það, að þessir tveir einstaklingar ganga í hjónaband. — Þriðja dæmið: Ef eiginmaðurinn hefur 42 þús. kr. og eiginkonan 18 þús., þá eru skattar og útsvar 16800 kr., en ef þau væru ógift, þá greiddu þau samtals í skatta og útsvar 10770 kr. eða 6030 kr. minna. Skattarnir eru 53% hærri vegna þess, að þau eru gift. — Þetta er svo ranglátt, að óviðunandi er, og úr þessu verður að bæta þannig að skattleggja sérstaklega tekjur hjónanna hvors um sig, þ. e. a. s. skoða hvort hjónanna um sig sem sjálfstæðan skattþegn. En það eitt er þó ekki nóg. Það er ekki nóg að hætta að sýna þeim konum sérstakt ranglæti, sem vinna utan heimilis, því að sé þeim sýnd sú sanngirni að telja þær sjálfstæðan skattþegn, vaknar spurningin um aðstöðu þeirrar giftu konu, sem vinnur húsmóðurstörf á heimili sínu. Hún vinnur í rauninni fyrir kaupi, hún aflar í rauninni hluta af tekjum mannsins. Hún sparar heimilinu útgjöld og á því í rauninni hluta af tekjum þess, og þetta á jafnt við hvort sem maðurinn er launþegi eða stundar sjálfstæðan atvinnurekstur.

Athugum þessu til skýringar skattgreiðslu ógifts karls og konu, sem hvort um sig hefði 15 þús. kr. tekjur, það verða að teljast hreinar þurftartekjur, en gerum ráð fyrir, að þau geti lifað af þessum tekjum með því að halda sparlega á og vinna ýmis heimilisstörf í eigin þágu, t. d. að matargerð o. s. frv. Þau greiða þá hvort um sig 1410 kr. í skatta og útsvar, miðað við, að þau hafi engan barnafrádrátt. Nú skulum við gera ráð fyrir því, að þau gifti sig og skipti þannig með sér verkum, að konan taki að sér heimilisstörfin fyrir bæði. Þá fær eiginmaðurinn meiri tíma til vinnu utan heimilis, og ef við gerum ráð fyrir því, að heimilisstörfin séu jafntímafrek og jafnerfið og störf mannsins, þá eiga tekjur hans að geta aukizt um tekjur þær, sem konan hafði. Tekjur mannsins verða því 30 þús. kr. En við þessa breyt. vaxa skattar heimilisins upp í 4120 kr., þeir vaxa um 1300 kr. eða um 46%. Það borgar sig því ekki fyrir þetta fólk að koma á milli sín þeirri sjálfsögðu verkaskiptingu, að maðurinn vinni utan heimilis og afli peningatekna, en konan annist heimilisstörfin, sem annars þyrfti að greiða öðrum. Ríkisvaldið refsar í rauninni þessu fólki fyrir það að giftast og koma í sambandi við það á þeirri verkaskiptingu, sem er sjálfsögð og eðlileg afleiðing af hjónabandi, — refsar því með því að hækka skatta og útsvör um 46%. Úr þessu verður að bæta með því að skipta tekjum hjóna. Konan aflar raunverulega nokkurs hluta teknanna, þó að hún vinni ekki beinlínis fyrir peningum. Alveg eins og fólk, sem stundar sjálfstæða atvinnu, á ekki að gjalda þess, að það giftist, á það ekki heldur að gjalda þess, að það stofnar heimili og skiptir með sér verkum.

Skýrast kemur þetta sama atriði fram, ef athuguð er aðstaða þess, sem stundar sjálfstæðan atvinnurekstur. Athugum aðstöðu ógifts bónda, sem rekur bú sitt með aðstoð ráðskonu. Hann má draga kaup ráðskonunnar frá heildartekjum búsins sem kostnað, en hún greiðir auðvitað skatt af kaupi sínu sérstaklega. Raunverulegar tekjur búsins vaxa ekki neitt, þótt þau giftist, bóndinn og ráðskonan, en skatt- og útsvarsgreiðsla búsins stóreykst. Miðað við, að tekjur hvors um sig séu 20 þús., meðan konan er ráðskona, aukast opinber gjöld um 44%. — Hið sama á auðvitað við um verzlun, sem hjón reka sameiginlega, og hvaða annan atvinnurekstur sem er.

Úr þessu verður að bæta með því að skipta tekjum hjóna eða heimills, annars eru hjónin látin gjalda hjónabandsins og þeirrar verkaskiptingar, sem af því leiðir. Að öðrum kosti er ekki litið á störf húsmóðurinnar, hvort sem er í bæ eða sveit, sem launaverð störf, en þau eiga allt annað sjónarmið skilið. Eðlilegast er að skipta tekjum hjóna í jafnar upphæðir að vissu marki, en ætla konunni vissan hlut teknanna, ef þær fara fram úr því marki.

Það er markmið frv. að koma fram leiðréttingu á skattal., sem nauðsynleg er og í samræmi við það, sem nú hefur verið sagt. Samkvæmt frv. verður gift kona sjálfstæður skattþegn, og reglurnar, sem gert er ráð fyrir, eru þessar:

1. Ef aðeins annað hjóna vinnur utan heimilis, skal tekjum þess skipt til helminga milli þeirra, en tekjur þess, sem ekki vinnur utan heimilis. skulu þó aldrei taldar hærri en 18 þús. kr. Markið 18 þús. kr. er valið af handahófi, og má að sjálfsögðu athuga till., sem fram kæmu um breyt. á því.

2. Ef bæði hjóna vinna utan heimilis, en tekjur hvors um sig eru lægri en 18 þús. kr.. skal sameiginlegum tekjum þeirra skipt jafnt milli þeirra.

3. Ef bæði hjóna vinna utan heimills og tekjur annars eru hærri en 18 þús. kr., en hins lægri, skal bætt við tekjur þess, sem tekjulægra er, svo miklu af tekjum hins, að tekjur hins fyrrnefnda verði allt að 18 þús. kr., en þó aldrei hærri en tekjur hins.

4. Ef bæði hjóna vinna utan heimilis og tekjur hvors eru hærri en 18 þús. kr., skal hvort um sig greiða skatt af þeim tekjum, sem það aflar. Tekjuhámarkið 18 þús. kr., sem giftri konu á að reikna af tekjum mannsins, er sett til þess að koma í veg fyrir, að hátekjum sé skipt og misnotaðar þær meginreglur, sem frv. byggist á. Enn fremur eru í frv. nokkur önnur ákvæði til þess að koma í veg fyrir hugsanlega misnotkun á meginreglunum. Þá er gert ráð fyrir því, að tekjur, sem annað hjóna aflar með vinnu hjá hinu eða í fyrirtæki, sem það á eða er meðeigandi að, skuli ekki taldar sértekjur, og er augljóst, hvaða misnotkun hér er verið að koma í veg fyrir. Þó þyrfti að athuga þetta nánar, því að um getur verið að ræða rekstur, sem ekki væri óeðlilegt að telja konuna eða manninn geta haft sértekjur í sambandi við, en það atriði má íhuga á síðara stigi málsins.

Þá er æskilegt að athuga barnafrádráttinn sérstaklega, en eins og frv. var upphaflega, þá var ráð fyrir því gert, að heimilisfaðirinn nyti barnafrádráttarins, en eðlilegast er, að hjónum sé í sjálfsvald sett, hvort þeirra skuli njóta barnafrádráttar vegna hvers um sig af börnum þeirra, og hef ég flutt brtt. um þetta á þskj. 72. Væri þetta ekki svo, gæti þannig farið, að tekjur mannsins yrðu lægri en tekjur konunnar, ef um lágar tekjur er að ræða.

Samþykkt þessa frv. er alls ekki eingöngu hagsmunamál þeirra kvenna, sem vinna utan heimilis. Það bætir að vísu úr órétti, sem þær konur hafa verið beittar, en samþykkt frv. mundi gera miklu meira. Það leggur til, að störf húsmæðranna á heimilunum verði metin svo sem vert er til sjálfstæðra tekna og skatts, þ. e., gert er ráð fyrir því, að húsmóðirin verði sjálfstæður skattþegn eins og húsbóndinn og greiði hvort um sig skatt af sínum tekjum. Þeim, sem kynnu að halda því fram, að þetta skipulag sé ekki framkvæmanlegt, vil ég benda á, að það tíðkast hjá einni stærstu menningarþjóð veraldar, Bandaríkjamönnum, skattalög þeirra byggja á þeirri meginhugsun, sem hér liggur til grundvallar, nema hvað enn þá lengra er gengið. Þar gildir sú regla, að hjónum er heimilt að skipta jafnt á milli sín sameiginlegum tekjum, hversu háar sem þær eru, svo að þar er möguleiki á að skipta stórtekjum. Svo langt hef ég ekki talið æskilegt að gengið yrði hér á landi, fyrst og fremst vegna þess, að það mundi hafa í för með sér meiri lækkun á skatttekjum ríkissjóðs en þetta frv. hefur í för með sér.

Ég hef orðið þess var, að sumir óttast aukna skriffinnsku, ef slíkt frv. sem þetta yrði samþ., þannig að skatteyðublöðum fjölgaði verulega. En það er á misskilningi byggt, að skatteyðublöðum þyrfti að fjölga nokkuð, þó að frv. yrði samþ. Það er vandalaust að nota sama skatteyðublaðið fyrir hjón, jafnvel þó að tekjur skiptist, þau gætu talið fram á sama skatteyðublaðinu, þannig að því væri skipt í tvo hluta. Aukin skriffinnska þyrfti því ekki að hljótast af þessu.

Samþykkt þessa frv. hefði í för með sér lækkun á skatti hjóna frá því, sem nú er, og þá kem ég að öðru atriðinu, sem ég nefndi í upphafi að væri galli á núgildandi skattalögum og nauðsynlegt væri að breyta. Ég skal nefna fáein dæmi til viðbótar um áhrif þessa frv. á skattgreiðslu hjóna, ef annað þeirra vinnur utan heimilis.

Gerum ráð fyrir, að hjón hafi 30 þús. kr. tekjur, þ. e. a. s. það, sem vinnur utan heimilis. Skattar og útsvar af þessum tekjum nema 4120 kr. En ef tekjunum er skipt samkvæmt reglum frv., lækka skattar og útsvör í 2825 kr., lækkunin nemur 1295 kr. Skattar og útsvar hjóna með 40 þús. kr. tekjur lækka um 1980 kr., ef frv. er samþ., og mætti nefna fleiri dæmi um aðra tekjuhæð, þó að ég sjái ekki ástæðu til þess að sinni. En slík lækkun á skatti hjóna miðað við skattgreiðslu einhleyps fólks er fyrir löngu orðin bráðnauðsynleg. Nú greiðir einstaklingur í skatta og útsvar af 30 þús. kr. 4690 kr., en hjón 4120 kr. af sömu tekjum, m. ö. o., 570 kr. lægri opinber gjöld heldur en einstaklingur.

Í þessu er fólgið svo augljóst ranglæti, að við svo búið má ekki lengur standa. En til þess að leiðrétta þetta er ekki nóg að hækka persónufrádráttinn, sem þó er nauðsynlegt. Það eina, sem dugir, er að skipta tekjum hjóna við skattálagningu. Ég álít, að hér sé um mikið réttlætismál að ræða, réttlætismál, sem snerti ekki eingöngu allar giftar konur, heldur og alla heimilisfeður. Ég álít rétt að létta skatti af hjónum, miðað við einstaklinga, enda er fjármálum ríkisins ekki stefnt í voða með þeirri ráðstöfun. Og sú lausn, sem hér er bent á, er að mínum dómi hin eina lausn á þessu réttlætismáli. sem er í samræmi við nútímaskoðun manna á þjóðfélagsaðstöðu giftra kvenna. Ég er því sannfærður um, að því fyrr sem þetta mál nær fram að ganga, því betra, og ég leyfi mér að vænta þess, að hv. þingmenn hugleiði það rækilega og láti það ná fram .að ganga á þessu þingi. — Ég óska svo að lokum eftir því, að þessu máli verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og fjhn.