12.10.1951
Neðri deild: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í C-deild Alþingistíðinda. (2611)
15. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Skúli Guðmundsson:
Ég þakka hv. 3. landsk. fyrir þær upplýsingar, sem hann gaf mér fáfróðum um sum atriði frv. — Ekki fannst mér hann fara ráðvandlega með eitt af þessum dæmum, sem ég var með, þó að það sé nú raunar smávægilegt atriði í þessu máli. Hann gerði mér þann grikk að snúa þannig við dæminu, sem ég tók upp um tvo kvænta menn við ríkisstofnun, að gera úr þeim tvær ógiftar persónur, sem síðan rugluðu saman reytum sínum, en hann hefði þá þurft að breyta tölunum, sem ég var með.
Hv. þm. sagði í sambandi við fyrstu spurningu mína, um útsvör, að það væri háttur flestra sveitarstjórna að fara eftir sömu reglu um útsvarsálagningu, þ. e. að miða við skattskyldar tekjur eins og skattar til ríkissjóðs eru miðaðir víð. Hann játaði þó, að þetta væri ekki öruggt, enda eru mörg dæmi þess, að niðurjöfnunarnefndir fari ekki eftir því, heldur öðrum reglum. Það væri þess vegna engin trygging fyrir því, þótt þetta yrði samþ., að það kæmi þessu fólki að haldi, því að niðurjöfnunarnefndirnar hafa að óbreyttum lögum á valdi sínu að taka af fólki það, sem það kynni að græða á þessari breyt. hv. 3. landsk.
Annarri spurningu minni, um það, hvort ákvæðin um sérsköttun hjóna giltu einnig, þótt hvorugt hjónanna ynni utan heimilis, svaraði hann játandi; en svo versnar, því að þegar hann svaraði þriðju spurningunni, stríddi svar hans beint á móti þessu. Þá sagði hann ákveðið, að ekki bæri að sérskatta tekjur konu, ef hún aflaði þeirra með vinnu við fyrirtæki, sem væri eign þeirra hjóna, þ. e. sem meðeigandi eða eigandi; þá skuli ákvæðið ekki gilda. Ber að skilja þetta svo, að konan geti þá reiknað sér þessar 18 þús. kr.? Það væri gott að fá það fram. Nú hlýtur hv. 3. landsk. að vera það kunnugt, jafnvel og hann er að sér í þjóðfélagsmálum, að það eru til þúsundir heimila í þessu landi, þar sem konan vinnur ekki að heitið geti fyrir tekjum utan heimilis, t. d. flest sveitaheimili landsins. Ég þekki hér dæmi um hjón, sem eru í nokkur hundruð metra fjarlægð frá þeim stað, þar sem við erum núna. Þau reka iðnaðarfyrirtæki í skúr við íbúðarhús sitt, þar sem eru notaðar vélar, og eiginkonan vinnur þarna alla daga — nema lítinn tíma, sem hún hefur til þess að matbúa fyrir hjónin — við þennan iðnað með manni sínum, og mér þykir ekki ólíklegt, að þau tvöfaldi tekjur sínar með því að vinna þannig bæði. Samkvæmt upplýsingum hv. 3. landsk. mundi slík kona fá að njóta þeirra fríðinda að mega reikna sér til skatts allt að 18 þús. kr. En segjum, að komið gæti fyrir, sem hv. 3. landsk. gæti kannske orðið mér sammála um, að þessi hjón ynnu nú fyrir meira en 36 þús. kr. á ári. Það liggur fyrir dæmi um það, að hjón hér, sem eru launafólk, eru þannig sett, að hvort um sig veitir forstöðu ríkisfyrirtæki og hefur 40–50 þús. kr. tekjur hvort, en eiga skv. frv. að fá að skattleggja allar sínar tekjur hvort fyrir sig. Mér finnst þá einkennilegt, að svo fróður maður sem hv. 3. landsk. er skuli telja með öllu útilokað, að til geti verið hjón, sem ekki vinna í annarra þjónustu, en komast þó upp fyrir 36 þús. kr. tekjur á ári sameiginlega. Það er nefnilega engum vafa bundið, að í okkar þjóðfélagi finnast hjón, og það e. t. v. ekki í allfáum tilfellum, sem ekki taka tekjur sínar í launum hjá öðrum og geta þó fengið svipaðar tekjur og launamenn. En samkv. frv. þm. mundu þessi hjón, sem ég nefndi hér við iðnaðinn, eða hjón í sveit geta með því að leggja á sig mikla vinnu komizt upp í svipaðar tekjur og ég nefndi í fyrsta dæmi mínu um embættishjónin og fengju kannske 80 þús. kr. í tekjur samtals. og yrði þá bóndinn að borga skatta af 62 þús. kr., en konan mætti aðeins telja fram 18 þús. kr.
Hv. 3. landsk. segir, að það séu furðulega íhaldssöm sjónarmið hjá mér, þegar ég held því fram, að þarna sé á óviðeigandi hátt gert upp á milli manna í þjóðfélaginu.
Ef hann kallar það mjög íhaldssöm sjónarmið að mæla gegn því, að þegnum landsins sé svo mjög ójafnt skammtað sem hann vill, má hann vel kalla mig íhaldsmann, en hann þykist víst sjálfur vera boðberi frjálslyndisins.
Eins og ég sýndi fram á áðan og kom fram af vörum þm. sjálfs, er frvgr. þannig orðuð, að tæplega er hægt að fá út úr henni það, sem hv. þm. nú segir, að eigi í henni að felast, nema í sumum tilfellum. Ég andmæli ekki frv. hans fyrir það, að ég geti ekki séð, að það sé mál að taka skattal. til endurskoðunar. Andmæli mín eru aðeins gegn frv., sem er svo vitlaust, að vansæmandi væri fyrir Alþ. að gera það að lögum. Og þess vegna vildi ég allra vinsamlegast skjóta því til hv. 3. landsk., hvort hann vildi ekki — hann er nú þegar búinn að flytja eina brtt. við frv., sjálfsagt til þess að gera það skýrara en það var — taka þennan sokkbol sinn til baka nú á þessu þingi og rekja hann upp og ef honum sýndist að prjóna eitthvað nýtt, að reyna að hafa það eitthvað áferðarfallegra en þetta frv. er. Þessu vildi ég skjóta til hans, því að jafnvel þótt fjhn. vildi taka þetta til góðrar athugunar, yrði miklu erfiðara að taka það til meðferðar, sem er þannig útbúið af hálfu flm., að ekki er hægt eftir orðanna hljóðan að sjá, hvað fyrir honum vakir í málinu. Það er lágmarkskrafa, að ákvæði frv. séu þannig, að það sé ljóst bæði fjhn. og öðrum, hvernig beri að skilja þau. Ég hefði nú viljað skjóta því til hv. þm., hvort hann vildi ekki gera þetta.
Hv. þm. taldi í sinni síðustu ræðu, að þetta um 18 þúsundirnar væri til tryggingar því, að ekki væri hægt að misnota þetta, og þannig væri komið í veg fyrir, að einstakir menn gætu hagnazt óeðlilega á þessu. En ég sýndi fram á það í dæminu um heildsalann, að hann 'mun hagnast á þessu um nærri 7½ þús. kr. Lítur út fyrir, að hv. þm. hafi gert upp við sig, að það sé ekki óhóflega mikið, en hitt sé rétt, að stemma nú stigu við því, að karl geti grætt meira á þessari sultu hans en þetta að svo komnu máli.