12.10.1951
Neðri deild: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 209 í C-deild Alþingistíðinda. (2612)
15. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Hv. þm. V-Húnv. gerir sér leik að því að snúa út úr einu ákvæði frv. Það gerir hann ekki af greindarskorti, heldur af allt öðrum ástæðum. Svo skilningssljór var hann að minnsta kosti ekki, þegar ég talaði um þetta mál við hann fyrir nokkru, að hann skildi ekki nokkurn veginn, hvað átt er við með þessu ákvæði. Nú, þegar hann stendur upp hér í hv. d., þá hefur skilningur hans skyndilega sljóvgazt svo mikið, að hann talar næstum eins og afglapi. Það er ástæðulaust að misskilja nokkur ákvæði frv. eins og það er. Það er samið með aðstoð ágæts lögfræðings og gaumgæfilega athugað. Hann taldi enga ástæðu til að hafa ákvæði frv. öðruvísi en þau eru, miðað við þann tilgang, sem á að ná. Ég fullyrði, að það er hótfyndni ein og af miður góðri hvöt sprottin að halda fram, að ástæða sé til þess að misskilja nokkur ákvæði þess. — Það, sem hv. þm. virðist sérstaklega vilja misskilja, er síðasta setningin, sem hljóðar svo: „Tekjur, sem annað hjóna aflar með vinnu hjá hinu eða í fyrirtæki, sem það, á eða er meðeigandi að, skulu þó ekki taldar sértekjur í þessu sambandi.“ Þessi síðasta setning getur auðvitað ekki breytt þeirri meginreglu, sem áður er búið að lýsa í gr., en hún er sú, að peningatekjur, sem hvort hjónanna um sig aflar, skuli taldar sértekjur þess, en ef aðeins annað hjónanna aflar peningatekna, þá skuli hinu reiknaður viss hluti af þeim tekjum. — Til þess að slá varnagla gegn misnotkun er síðasta setningin, því að auðsjáanlega er hugsanlegt, að einhverjum dytti í hug að misbeita þessu ákvæði, þannig að t. d. bóndi tæki konu sína á laun og segði: Hún hefur þessi laun, og þess vegna eru það sértekjur hennar, og hún á að greiða skatta af þeim samkv. meginreglu frv. — Það er til þess að fyrirbyggja þetta, sem þessi síðasta setning var sett í frv. — Nákvæmlega sama gildir um dæmið, sem hann sjálfur nefndi um hjónin, sem ynnu sameiginlega að verksmiðjurekstri nokkrum fyrir utan bæinn. Ef frv. yrði samþ., mundi sú regla gilda um þau hjón, að af sameiginlegum tekjum þeirra yrðu konunni reiknaðar 18 þús. kr., en maðurinn greiddi skatta af afganginum. Nú greiðir maðurinn skatta af tekjunum öllum, en síðasta setningin ætti að koma í veg fyrir, að annað hjónanna verði launaður starfsmaður hjá fyrirtækinu, sem gæti haft miklu hærri laun en 18 þús. kr., og skattar af tekjum fyrirtækisins þar af leiðandi orðið miklu lægri en ella, ef reglunum væri fylgt eins og þær eru nú. Það er þessi misnotkun, sem á að fyrirbyggja með þessu ákvæði, og áður hafði þm. látið sér skiljast, að slíkt mundi takast.
Þá var svo að heyra á hv. þm. sem honum fyndist þetta 18 þús. kr. hámark í frv. of lágt áætlað. Mér skildist, að allt í einu væri umhyggja hans fyrir réttlætinu orðin svo mikil, að hann teldi óeðlilegt að gera ráð fyrir, að konan gæti ekki fengið nema 18 þús. kr. fyrir sína vinnu. Ef fleiri mönnum sýnist svo, er auðvitað vandalaust að hækka hámarkið. Ég veit ekki, hvort á að skilja hann svo, að hann vilji ganga eins langt í þessu og gert er í Bandaríkjunum, þar sem alltaf er skipt til helminga, hvað há sem launin eru. Meini hann það, mundi slíkt hafa í för með sér stórkostlega skattalækkun hjá öllum hjónum, miðað við það, sem nú á sér stað. Þannig rekst eitt á annars horn hjá hv. þm., og það kemur greinilega í ljós, að það sem rekur hann á stað til gagnrýni á frv., er líklega í fyrsta lagi ólund og andúð á öllum breytingum og í öðru lagi það, að þessi þm. virðist vera í þeim hópi, sem á mjög erfitt með að sætta sig við, að nokkrar ráðstafanir verði gerðar til þess að lækka beina skatta, sem einu sinni hafa verið á lagðir. Ég er þeirrar skoðunar, að að sjálfsögðu eigi að afla tekna í ríkissjóð fremur með beinum sköttum en óbeinum, en engu að síður geta beinu skattarnir í vissum tilfellum verið þannig, að ástæða sé til þess að lækka þá. Og þótt maður sé í sjálfu sér fylgjandi beinum sköttum fremur en óbeinum, má auðvitað ekki hika við að leiðrétta misræmi í skattheimtunni, jafnvel þótt skattarnir lækki um leið á þeim, sem hafa greitt óeðlilega háa skatta. Þær reglur, sem nú gilda að því er snertir beinu skattana, sem einstaklingum er gert að greiða annars vegar og hjónum hins vegar, eru ranglátar. Það misrétti er svo gífurlegt, að ekki er hægt að bæta úr því nema með lækkun beinu skattanna, sem hjón og barnafjölskyldur eiga að greiða. Slíkt virðist hv. þm. ekki mega heyra nefnt, án þess að hann sjái ástæðu til þess að andmæla því og reyni að finna sér hvað eina til til þess að geta þjónað þessu sjónarmiði sínu.