12.10.1951
Neðri deild: 11. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 211 í C-deild Alþingistíðinda. (2614)
15. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):
Varðandi dæmið, sem hv. þm. tekur um iðnaðarhjónin, sem hafa 80 þús. kr. tekjur og hann segir að samkvæmt reglum frv. séu skattlögð þannig, að maðurinn greiði af 62 þús., en konan af 18 þús., er það að segja, að þetta er rétt hjá hv. þm.
Það er auðvitað líka rétt, að ef hjón vinna hjá ríkinu og hafa 40 þús. kr. tekjur hvort og greiða skatt af því, þá verður skattur þeirra lægri, og hefur mér auðvitað alltaf verið þetta ljóst. En það, sem mér þykir undarlegast, er, að hv. þm. skuli nú telja þetta misrétti í skatti vera sérstakan ágalla á þessu frv. Það er rétt, að hjón, sem saman afla sér sömu tekna, greiði sama skatt, og þetta gerir hann að höfuðuppistöðu í árás á þetta frv. En hvernig stendur á því, að hann gagnrýnir ekki núverandi skipan? Hann veit að tveir einstaklingar, sem vinna hvor fyrir 30 þús. kr., greiða miklu hærri skatt, ef þeir gifta sig. Hann veit, að munurinn á skatti þessara tveggja einstaklinga eftir því, hvort þeir eru giftir eða ógiftir, er miklu meiri samkvæmt núgildandi reglum heldur en munurinn á skatti iðnaðarhjónanna og embættishjónanna, sem hann nefndi. Þetta kemur upp um þær hvatir. sem valda því, að hv. þm. fer út í ádeilur á þetta frv. Það er ekki tilfinningin fyrir misréttinu í skattabyrðinni, því að þá mundi hann jafnt finna misréttið í skattgreiðslu einstaklinganna, sem hafa sjálfstæðar tekjur, og skattgreiðslu þeirra eftir að þau eru gift. En það misrétti nefnir hv. þm. ekki og vill ekki skilja, að ákvæðið um tekjuhámarkið er sett til þess að koma í veg fyrir óeðlilega skattlækkun á hátekjum. Það, sem vinnst með því, er miklu meira en það misrétti, sem af því hlýzt. En fyrra dæmið hefur ekki mikla þýðingu, og það ranglæti, sem það átti að sýna fram á, er litið í samanburði við ranglætið í núverandi l. Ég kalla það ekki ranglæti, sem hér er lagt til, vegna þess að tekjur bændahjóna lækka, ef frv. er samþ. miðað við tekjur einhleyps bónda, það kalla ég ekki ranglæti, heldur réttlæti. Það má segja, að það sé misræmi miðað við embættismannahjón, en ég hygg, að aldrei verði fundin nein skipan á þessum málum, þar sem ekki megi finna einhverjar tvær hliðstæður, þar sem skattgreiðsla kæmi ójafnt niður. En ég fullyrði, að dæmin, sem benda má á um ósamræmi, miðað við sömu aðstöðu, eru hverfandi, ef þessi skipan er höfð, miðað við ranglætið í núverandi skattgreiðslum. Þetta er aðalatriði málsins.