06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (262)

2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.

Atvmrh. (Ólafur Thors):

Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð. — Hv. 3. landsk. sagði, að till. væri hættulegri en hann hélt í fyrstu. Ég get að því leyti fallizt á það, að ég taldi hana ekki hættulega í fyrstu, þó að ég veiktist í trúnni, er ég heyrði hv. þm. fagna till. Ef flokkslegir hagsmunir eru ekki látnir sitja í fyrirrúmi, getur hún aðeins orðið þeim fagnaðarefni, sem vilja, að kjör opinberra starfsmanna verði rýrð. Ég tel ekki nægilega sterk rök fyrir því að samþ. till.

Hv. 3. landsk. sagði, að flokkur hans væri að vernda ríkisstj. gegn vinum hennar og að þessi aðstaða væri einsdæmi. Hér er um það eitt að ræða að sýna opinberum starfsmönnum réttlæti og að Alþfl. þjóni því réttlæti, þó að hann sé á móti ríkisstj. Ef það er einsdæmi í sögu Alþfl., að hann geri það, þá hann um það. En ég tel, að hann verðskuldi betri eftirmæli.