19.01.1952
Neðri deild: 63. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 215 í C-deild Alþingistíðinda. (2623)
22. mál, Akademía Íslands
Frsm. minni hl. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Þetta mál hefur verið nokkuð rætt í menntmn., og hefur n. ekki getað orðið á eitt sátt um afgreiðslu þess. Minni hl. leggur til, að frv. verði samþ. með þeirri breyt., sem greinir í nál. hans.
Það er vissulega full þörf þess að gera einhverjar raunhæfar ráðstafanir til að vernda móðurmálið. Með þessu frv. er gert ráð fyrir, að nefnd skipuð hinum færustu mönnum eigi að hafa þetta með höndum. Að sjálfsögðu má um það deila, hvernig þessi nefnd eða akademía skuli vera skipuð. Það hafa verið raddir uppi um það í n., að ýmsar stofnanir tilnefndu menn í Akademíuna, en við í minni hl. höfum ekki getað fallizt á þá skoðun, en leggjum til, að það verði gert eins og í frv. segir, þ. e. a. s., forseti Íslands skipar sex fyrstu félagana, en þeir kjósa síðan þá sex, sem á vantar.
Í frv. er gert ráð fyrir, að félagar í Akademíunni fái nokkur heiðurslaun. Við í minni hl. leggjum til, að þetta verði fellt niður og meðlimir Akademíunnar starfi launalaust. Í brtt. okkar í minni hl. er gert ráð fyrir því, að starf félaga Akademíunnar skuli skoðast sem ólaunað heiðursstarf.
Ég skal taka það fram, að við í minni hl. erum ekki fyllilega ánægðir með þetta erlenda nafn á þessari stofnun og hefðum gjarnan viljað, að henni yrði valið íslenzkt heiti. Vera má, að orðið „akademía“ sé gott og gilt og samrýmist sæmilega íslenzkri tungu, enda hefur ekki enn verið bent á neitt íslenzkt orð, sem gæti komið í stað þess. Ég vona því, að þegar tímar líða fram festist þetta orð í tungunni.
Ég skal svo ekki hafa um þetta fleiri orð, en vonast til, að frv. verði samþ. með breytingu þeirri, er við í minni hl. leggjum til.