15.10.1951
Neðri deild: 12. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 228 í C-deild Alþingistíðinda. (2643)
43. mál, verkamannabústaðir
Flm. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Herra forseti. Það er viðurkennt, að eitt af þýðingarmestu úrlausnarefnum hvers þjóðfélags á þessum tímum sé að gera skynsamlega gangskör að því, að fólkið, sem byggir löndin, geti átt þess kost að eignast sómasamlegt þak yfir höfuð sitt og sinna. Hins vegar hefur þetta úrlausnarefni reynzt talsvert vandasamt, enda hefur það verið svo sums staðar þar, sem er hin svokallaða frjálsa samkeppni og einstaklingarnir hafa átt að ráða bót á böli húsnæðisleysisins, að það hefur farið í verulega miklum handaskolum. Þess vegna hefur það orðið mönnum æ ljósara eftir því, sem tímar líða fram, að almannavaldið, þ. e. löggjafarvaldið og fjárveitingavaldið, hefur orðið að hrinda þessu máli áfram, sérstaklega til þess að auðvelda mönnum, sem ekki eiga mikils úrkostar, að koma upp ódýrum og hagfelldum íbúðum fyrir sig og sína. Merkilegt spor í þessu efni var stigið með setningu laga um verkamannabústaði frá 1929. Og jafnvel þó að skort hafi á, að gerðar hafi verið hliðarráðstafanir til þess að hægt væri að framkvæma þessi lög, hafa þau samt komið að miklu gagni. Það hefur verið víða byggt mjög eftir þessum lögum, og t. d. má benda á, að þar, sem saman hefur farið áhugi og félagshyggja manna, sem að þessu hafa staðið og velvilji bæjarfélaganna sjálfra, þá hefur mönnum orðið mikið ágengt í þessum efnum. Til dæmis um þetta má nefna Hafnarfjörð, þar sem nú er svo komið, að um 8% af íbúum bæjarins búa í verkamannabústöðum og þeim góðum og tiltölulega ódýrum.
Ekki sízt eftir að síðasta stríði lauk hefur það orðið mjög vandasamt og örðugt viðfangsefni víða að hjálpa mönnum til að byggja yfir sig og sína. Og ekki hvað sízt hefur það verið örðugt í þeim löndum, þar sem stríðið og eyðilegging þess hefur komið mjög við sögu, því þótt íbúðarhúsin hafi ekki verið eyðilögð af stríðsástæðum, þá hnigu mörg rök í þá átt, að stöðvun yrði á byggingu íbúðarhúsa þar. En í svo að segja öllum löndum í kringum okkur hafa verið teknir upp skipulagsbundnir hættir um það að bæta úr böli húsnæðisleysisins.
Ég sagði áðan, að l. um verkamannabústaði hefðu verið mjög nytsöm, og hafa þau verið ein af þýðingarmestu l. frá síðustu áratugum. En þau eru samt ekki einhlít, vegna þess að tilfinnanlegur skortur hefur verið á fjármagni til þess, að byggingarsjóður verkamanna gæti veitt lán handa félagsmönnum til þess að byggja hús.
Ég vék að því áðan og vil ítreka það og benda til þess, sem segir í grg. frv., að það hefur reynzt svo í framkvæmd, að verkamannabústaðirnir hafa verið ódýrastir og hentugastir allra þeirra íbúða, sem alþýða manna við sjóinn hefur byggt á síðustu áratugum. Þetta sést vel, þegar borin er saman hér í Reykjavik sú raunverulega leiga þeirra, sem búa í verkamannabústöðum, og hinna, sem búa í annars konar húsum í eigu einstaklinga, þar sem húsaleigan er miklu hærri, en húsnæðið verra yfirleitt. Og það er ekki vafi á því, að þörfin vex, en minnkar ekki, til aðstoðar almannavaldsins um að styðja að því að koma upp ódýrum og hentugum íbúðum.
Um það er getið í þessu frv., að í árslok 1948 bjuggu 2158 manns í bröggum, þar af 869 börn, og í árslok 1949 voru íbúar þessara hermannaskála 2170 manns og þar af 924 börn. Og samkvæmt athugun, sem gerð var á fyrri hluta þessa árs, kom í ljós, að íbúar herskálanna voru 1709 og þar af tæplega 800 börn. Nú er það svo, að herskálarnir hér í Reykjavík og víðar annars staðar eru ekki einu heilsuspillandi og lélegu íbúðirnar. Því miður er það svo hér í Reykjavík og ekki sízt sums staðar annars staðar á landinu við sjávarsíðuna, að það eru fleiri íbúðir en herskálarnir, sem eru mjög lélegar og heilsuspillandi íbúðir. Það var maður í morgun að ræða við mig í sambandi við byggingu verkamannabústaða í kaupstað úti á landi, og hann gat þess, að einn af þeim, sem þar klifa þrítugan hamarinn um að reyna að fá íbúð í þessum verkamannabústöðum, byggi í litlu, gömlu húsi, þar sem allt húsið væri ekki meira en eins og mjög lítil stofa í húsi hér í Reykjavík. En það, sem verra var í þessu efni, var, að eigandi hússins óttaðist, að ef óveður skylli á, þá fyki húsið af grunninum og út í sjó. Svo illa er um það búið og það hrörlegt. Ég get þessa sem táknræns dæmis, en slík dæmi munu furðu mörg finnast, bæði hér í Reykjavík og úti um land. Það þarf því ekki fleiri orðum um það að eyða, að nauðsynin er brýn á því, að almannavaldið hjálpi til að byggja ódýrar og hentugar íbúðir yfirleitt. Og þá er aðeins spurningin, hvaða leið í því efni er skynsamlegust. Ég hef fært rök að því, að reynslan hefur sýnt að bygging verkamannabústaða sé það hagkvæmasta, sem gert hefur verið í þessum efnum.
Þá kemur að því atriði: Hvað er hægt að gera til þess að lögin um verkamannabústaði verði framkvæmd í miklu stærri stíl en á undanförnum árum? Og um það fjallar þetta frv. Það var flutt sams konar eða líkt frv. um þetta efni árið 1949, nema hvað tölur hafa breytzt. Var það flutt af Alþfl. hér í hv. þd. Þar var líka lagt til, að sett væru í lögin ákvæði, sem tryggðu, að hægt væri að byggja 200 íbúðir eftir l. um verkamannabústaði á næstu tveimur árum. Þá þurfti til þess ásamt því, sem íbúðarhúsaeigendur legðu fram, sem er allt að 25 og jafnvel 30%, um 14 millj. kr. Nú er svo málum komið, að til þess að framkvæma þessa áætlun, sem er ekki síður nauðsyn á að framkvæmd verði í dag en fyrir tveimur árum, þarf 25 millj. kr. Veldur því ekki hvað sízt gengislækkunin og þá líka ástandið á vörumarkaðinum erlendis, sem gerir það að verkum, að byggingarkostnaður í Reykjavík hefur hækkað sem nemur frá 50–60% og upp í 100% á einu til tveimur árum. Þetta kemur ljóst fram og er vel rökstutt í grg. þessa frv. Þar sést, að 70 fermetra íbúðir, sem Byggingarfélag verkamanna í Reykjavík hafði nýlokið við að byggja, er frv., sem ég gat um. var flutt 1949, höfðu kostað um 108 þús. kr. 80 fermetra íbúðir, sem nú eru í smíðum, munu kosta um 160 þús. kr., en slíkar íbúðir mundu kosta um 200 þús. kr., ef byrjað væri á þeim nú. Nú eru þetta að vísu örlítið stærri íbúðir, 80 fermetra í stað 70 fermetra, sem munu nú kosta um 200 þús. kr., í stað þess sem 1949 kostuðu 70 fermetra íbúðirnar 108 þús. kr. En af þessu sést þó, hve gífurlega byggingarkostnaður hefur hækkað. En jafnvel þó að byggingarkostnaður hafi hækkað, má það ekki verða til þess, að hætt verði við að reyna að ráða bót á þessu vandasama og mikilsverða máli. Það er ekki síður þörf á því nú en fyrir tveimur árum, og þörfin hefur heldur vaxið en minnkað á því tímabili á að leggja hönd á plóginn og gera ráðstafanir til þess að afla fjár til að byggja verkamannabústaði í landinu yfirleitt. Og þess vegna er þetta frv. flutt, þar sem gert er ráð fyrir, að á árunum 1952–55 verði varið árlega 25 millj. kr., að meðtöldum þeim tekjum, sem
byggingarsjóður verkamanna hefur, til þess að byggja verkamannabústaði hér á landi. Það er gert ráð fyrir, að þessi upphæð nægi til þess að byggja um 200 íbúðir á ári, og það er bent á það í 2. gr. frv., hvernig fé þetta skuli útvegað, að það verði gert með þeim hætti, að ríkisstj. skuli setja reglur um lánveitingar þeirra stofnana og tryggingarfélaga, sem ávaxta fé í verðbréfum eða útlánum á annan hátt. Og það er bent á það í grg., að þær stofnanir, sem starfa þannig hér á landi, verja miklu meira fé árlega til verðbréfakaupa til að tryggja sína auknu varasjóði, en hér er lagt til í frv. að þessar stofnanir verji til kaupa á skuldabréfum þeim, sem um ræðir í þessu frv. — Það er sömuleiðis lagt til í frv., að ríkisstj. sé heimilt að ákveða svo í reglugerð, að þessum fyrirtækjum skuli skylt að ráðstafa ákveðnum hluta þess fjár, sem þau verja til verðbréfakaupa 1952–1955, í þessu skyni, þ. e. til kaupa á skuldabréfum, er byggingarsjóður verkamanna gefur út. Við flm. þessa frv. álítum, að hér sé um raunhæfar ráðstafanir að ræða og að það muni vera unnt með góðum vilja ríkisstj. að fenginni slíkri lagaheimild að setja þær reglur, sem þörf er á, til þess að lánsfé þetta verði hægt að fá. — Það má líka benda á, að talað er mikið um hér á landi að nota jafnvirðissjóðinn til ýmissa hluta, og fram eru komnar till. um það á Alþ. að nota hann til ákveðinna lána. Hann er ekki nefndur hér í þessu frv., en hann er eitt af því, sem getur komið til álita, ef ríkisstj. hefur þá heimild, sem í frv. felst.
Ég sá mér til gleði, að hv. 8. þm. Reykv. (RÞ) hefur flutt frv. um að tryggja byggingarsjóði verkamanna 10 millj. kr. tekjur af ríkistekjunum árið 1951 eða úr jafnvirðissjóði. Ég er glaður yfir framkomu þessa frv. og þykist vita það með vissu, að ef flokkur hv. 8. þm. Reykv. stendur með þessu máli, muni það ná fram að ganga á Alþ. Og það gæti þá orðið einn þáttur í framkvæmd þess, sem gert er ráð fyrir í frv. þessu.
Það er gert ráð fyrir því í 4. gr. þessa frv., að ríkissjóður skuli kaupa skuldabréf þau, sem um ræðir í frv., af byggingarsjóði verkamanna fyrir 4.5 millj. kr. árlega á árunum 1952–55. En framlög til byggingarsjóðs munu annars eftir gildandi löggjöf vera 2.5 millj. kr. á ári.
Það þarf ekki að segja, að það sé sjáanlegt, að það ætti að vera neinn ásteytingarsteinn fyrir hv. alþm., að hér sé í þessu frv. um að ræða eitthvert sósíalistískt fyrirbæri, svo að menn fældust við að greiða atkv. með frv. af þeim ástæðum, því að borgaralegir flokkar og stjórnir í nágrannalöndunum finna mjög til þessarar ríku þarfar hjá sér, sem um getur í þessu frv. að því er okkar þjóð snertir. Það situr nú í Danmörku að vísu minnihlutastjórn, sem er studd af flokkum, sem eru nokkurs konar Sjálfstfl. og Framsfl. Danmerkur. En í prógrammsræðu forsrh. þar taldi hann það eitt aðalmálið að greiða fyrir byggingu bústaða fyrir almenning í landinu. Og margir hafa sjálfsagt tekið eftir, að hin gamla stríðshetja og stjórnmálamaður Churchill hefur nú fyrir kosningarnar í Bretlandi lofað því fyrir hönd síns flokks, að ef flokkur hans kæmist til valda, skyldu verða byggðar 300 þús. íbúðir á Bretlandseyjum. Verkamannastjórnin þar hefur ekki treyst sér til að fara hærra í þessu efni en í 200 þús. íbúðir, en Churchill býður betur. Þetta sýnir, að alls staðar þar, sem stjórnmálamenn taka eftir, hvað fólkið vill í löndunum, og taka eftir, hvar þörf fólksins er brýnust, þar er beitt sér fyrir að framkvæma íbúðarhúsabyggingar. Og jafnvel skipulagsandstæðingar eins og Churchill og aðrir slíkir hika ekki við að byggja framkvæmdir í þessum efnum á skipulagningu til að leysa vandamál þjóða sinna.
Ég vonast því til þess, að þingmeirihluti fáist fyrir þessu frv., sem hér liggur fyrir. Það er svo sem enginn byltingarblær á þessu frv. Það er raunhæft og heldur sér við jörðina, en er að mínum dómi merkileg tilraun til þess að bæta úr einhverju hinu mesta vandamáli, sem þrengir kjör fólksins í landinu, skortinum á ódýrum og hagkvæmum íbúðum. Þetta er hægt að gera, ef vilji er fyrir hendi, og ég tel, að við Alþfl.-þm. höfum bent hér á leið, sem auðgert sé að fylgja í framkvæmd og yrði til þess að bæta mjög mikið úr því böli, sem húsnæðisskorturinn er, sem nú þjáir fjölda manns hér í landinu. Ég vildi því mega vænta þess. að hv. stjórnarflokkar skelli ekki alveg skolleyrunum við þessu máli, þessari þörf, sem er svo brýn, eins og ég hef sýnt fram á. Og þeir hv. þm., sem eiga heima hér í höfuðstaðnum, vita um og þreifa á því svo að segja daglega, hvernig ástandið er að þessu leyti. Og ég skýt máli mínu sérstaklega til þeirra hv. þm., sem þekkja þetta svo vel, að þeir ljái þessu máli sitt lið.
Ég legg til, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.