06.11.1951
Neðri deild: 23. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í B-deild Alþingistíðinda. (265)
2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.
Sigurður Guðnason:
Herra forseti. Það kemur oft fram og hefur einnig komið fram hér nú, að tekjur launþega séu mismunandi og að verkamenn hljóti því að vera óánægðir, þegar þeir beri sig saman við aðra. Allir launþegar hafa þó í raun og veru sömu aðstöðu, þó að það sé svo með opinbera starfsmenn, að þeir geti ekki beitt hinu eina afli, verkfallinu.
Hv. þm. A-Húnv. talaði um, að það væri nauðsynlegt að sporna við dýrtíðinni og að það hefði verið aðalmál þingsins síðustu 10–12 árin. Ég held þó, að ekki verði spyrnt við fótum með því að ráðast á kaupgjaldið. Það þarf að leita annað.
Þá vil ég benda á það, að samkv. frv. á full verðlagsuppbót á laun aðeins að ná til þeirra, sem lægst laun hafa. Ég er viss um, að engin stj. getur gert annað en látið opinbera starfsmenn fá þessa verðlagsuppbót, vegna þess að mikill meiri hluti þeirra býr við kjör, sem eru litlu betri en hjá almenningi. Ef stinga á við fótum, verður að gera það annars staðar.