13.12.1951
Neðri deild: 43. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 234 í C-deild Alþingistíðinda. (2651)
53. mál, framlag til veðdeildar Landsbanka Íslands
Pétur Ottesen:
Ég hef undrað mig á því, hversu langan tíma það hefur tekið að afgr. þetta mál í landbn. Það er nú komið upp í tvo mánuði síðan málinu var vísað til n. Mér virðist málið svo einfalt, að það hafi tekið óeðlilega langan tíma hjá n. að komast að niðurstöðum í afgreiðslu þess.
Frsm. n. hefur gert grein fyrir því, að þörf þessa máls er ótvíræð, og ekki hefur borið á því, að ríkisstj. hafi viljað bregða fæti fyrir frv. eða hafi neitt við það að athuga, að 5 millj. kr. verði varið til veðdeildar Búnaðarbanka Íslands.
Það verður að teljast miður, að það, sem valdið hefur þessum mikla drætti í málinu, er það, að annað mál hefur verið hér á ferð, sem snertir beint þetta frv. Þetta frv. er nú samt algerlega sjálfstætt og þurfti því ekki að tefjast vegna annars máls, þar sem það felur engar breyt. í sér á l. um Búnaðarbanka Íslands, nema að bæta við veðdeild bankans. Hins vegar er annað mál á döfinni hér, sem fer allmikið inn á önnur svið og mundi valda skiptum skoðunum, en óeðlilegt er að láta slíkt mál tefja afgreiðslu þessa máls. En þótt þetta hafi nú dregizt úr hömlu, þá vænti ég góðrar samvinnu um að afgr. þetta mál, sem hér liggur fyrir, og þær brtt., sem liggja nú fyrir við það. Brtt. þær, sem n. flytur við frv., eru þess eðlis, að þær styrkja grundvöll málsins. Vænti ég þess, að málið verði sem fyrst afgr., en ágreiningur um aðrar till. verði ekki til farartálma þessu máli.