18.10.1951
Neðri deild: 14. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 237 í C-deild Alþingistíðinda. (2665)
56. mál, raforkulög
Flm. (Ingólfur Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. er shlj. frv., sem flutt var seint á þingi 1950, en það frv. náði ekki fram að ganga. Frv. fer fram á, að aukið verði framlag ríkisins til raforkusjóðs úr 2 millj. kr. í 4 millj. kr. Með raforkul. frá 1946 var ákveðið, að framlag ríkisins væri 2 millj. kr. Var það ekki svo lítil upphæð miðað við þáverandi verðlag. Tekjur ríkissjóðs voru á fjárl. fyrir árið 1947 áætlaðar 127½ millj. kr., en fyrir árið 1952 360 millj. kr. Ef fjárl. hækka í meðferð þingsins, svo sem raun hefur orðið á undanfarið, mætti ætla, að fjárl. 1952 verði þrisvar sinnum hærri en 1946. Verður þá framlagið nú miðað við framlag til raforkusjóðs 1946, þá 2 millj. kr., nú 600–700 þús. kr. Miðað við dýrtíð og gengisbreyt. hefur og kaupmáttur framlags þessa minnkað mjög, — enn meir en ef miðað væri við fjárl.
Hlutverk raforkusjóðs er geysivíðtækt. Með stofnun raforkusjóðs hefur verið komizt lengst í raforkumálunum, sem komizt hefur verið. Hefur raforkusjóður lánað fé út um land, en með því framlagi, sem sjóðurinn fær nú, getur hann ekki gegnt því hlutverki, sem honum var ætlað 1942 og 1946. — Í 35. gr. l. um lán úr raforkusjóði segir svo:
„Úr raforkusjóði má veita rafmagnsveitum ríkisins:
1. Lán, sem veitast til allt að 30 ára, til að koma upp tilteknum mannvirkjum;
2. rekstrarlán og bráðabirgðalán til skemmri tíma, þar á meðal til að greiða rekstrarhalla. sem verða kann af mannvirkjum hin fyrstu árin, eftir að þau eru gerð.
3. Ef einstakir bændur eða fleiri saman reisa vatnsraforkustöðvar til heimilisnota utan þess svæðis, sem héraðsrafmagnsveitum er ætlað að ná til í náinni framtíð, er heimilt að lána þeim úr raforkusjóði allt að 2/3 kostnaðar með 2% vöxtum og 30 ára afborgun, enda séu stöðvarnar vel gerðar að dómi rafmagnseftirlits ríkisins.
Þetta er hlutverk raforkusjóðs. Nokkurs misskilnings hefur gætt í sambandi við hann hjá hv. þm. Heyrzt hafa raddir um það, að raforkusjóður væri aðeins í sambandi við stærri virkjanir. En eins og ég sagði áðan, hefur raforkusjóður lánað til einstakra bæja og veitna úti um land allt. Hefur hann og heimild til lána til stærri veitna, sem ná til heilla landshluta. Hefur hann því hlutverki að gegna um land allt. Ætti því mál þetta að vera brýnt hagsmunamál allra landsmanna. Hér er lagt til, að framlag ríkissjóðs verði aðeins tvöfaldað, enda þótt 4 millj. kr. nú jafngildi ekki 2 millj. 1946. en við höfum ekki treyst okkur til að ganga lengra. Þessu máli er því mjög stillt í hóf. Við flm. þessa frv. höfum lagt það það snemma fyrir, að hægt sé að láta það ganga fram, svo að hækkun framlags ríkisins á að geta komið fram á fjárl. þeim, er nú liggja fyrir þinginu, þ. e. a. s. á næsta ári.
Vænti ég þess, að hv. þm. taki máli þessu betur nú en þeir gerðu á síðasta þingi; þeim sé og ljós sú staðreynd, að raforkuframkvæmdir í landinu stöðvast, ef framlag ríkisins verður ekki hækkað á þeim fjárl., sem nú liggja fyrir þinginu. Þetta mál er mjög mikið sanngirnismál, og vildi ég leyfa mér að mælast til, að n. hraði afgreiðslu þess eftir megni. Að svo mæltu legg ég til, að málinu verði vísað til 2. umr. og hv. fjhn.