25.10.1951
Neðri deild: 18. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 242 í C-deild Alþingistíðinda. (2680)

71. mál, ráðstöfun fjár úr mótvirðissjóði

Flm. (Lúðvík Jósefsson):

Herra forseti. Það er kunnugt, að ástandið í sjávarþorpum landsins er orðið mjög erfitt, sérstaklega á vissum tímum árs, eins og t. d. um þetta leyti, og virðist atvinnuleysi í fjölmörgum bæjum á landinu nú fara vaxandi. Ástæður fyrir þessari erfiðu afkomu á þessum stöðum eru eflaust margar, og þó ber einna mest á því, hvernig síldarleysið hefur á undanförnum árum leikið marga þessa staði, sem byggt hafa afkomu sína að mjög verulegu leyti á síldveiðum. Og svo er ástandið orðið erfitt einnig vegna þess, hversu fiskveiðar hafa almennt á undanförnum árum gengið mjög miklu lakar en áður var. Nú er þessu þannig háttað, að á sumum stöðum á landinu stappar nærri fullkomnum vandræðum vegna atvinnuleysis. Enn þá hafa ekki fengizt neinar viðhlítandi aðgerðir frá hálfu þess opinbera til úrbóta í atvinnumálum þessara staða, en það hefur nú nýlega verið gripið til þess ráðs, þar sem vandræðin hafa verið mest, að reyna að koma vinnandi mönnum frá þessum sjávarútvegsbæjum til atvinnu hér suður á Keflavíkurflugvöll við þær framkvæmdir, sem þar er nú unnið að. En það má öllum mönnum vera ljóst, að slíkar ráðstafanir eru sannarlega vandræðaráðstafanir og neyðarbrauð fyrir nokkra vinnandi menn úti á landsbyggðinni að þurfa að leggjast í braggavíst hér suður á Keflavíkurflugvelli til þess að vinna fyrir sér og reyna að sjá heimilum sínum farborða. En þá er hitt að athuga, hvað er helzt til bragðs að taka til úrbóta í atvinnumálum hinna fjölmörgu byggðarlaga, sem atvinnuleysið er nú farið að herja verulega á.

Það er skoðun okkar flm. þessarar till., að eitt af því, sem tiltækilegast og hagkvæmast sé að gera í þessum efnum, sé það að beina rekstri togaraflota landsmanna þannig, að hann leggi upp afla sinn í verksmiðjur í þessum bæjum, þar sem atvinnuleysið er farið að færast í aukana, og það megi á þann hátt leysa atvinnumál þessara staða að mjög verulegu leyti á þann veg, sem hagstætt sé líka fyrir þjóðarheildina. Síðastliðið sumar var slík starfsemi sem þessi reynd nokkuð hér. Margir togarar veiddu þá fyrir frystihús og verksmiðjur og lögðu upp afla sinn þannig víðs vegar um landið, og var reynslan af því mjög góð. Vinnan við afla þeirra reyndist mikil á þeim tíma árs og yfirdrifin vinna fyrir flesta eða alla. Þetta hafði mikla þýðingu fyrir frystihúsin, sem hafa átt erfitt uppdráttar, en þetta breytti rekstri þeirra þannig, að tapreksturinn, sem áður hafði verið, snerist í hagstæðari rekstur. Óhætt er að fullyrða, að þetta er hagstætt fyrir togarana, því að þeir hafa á þessum tíma ekki átt völ á erlendum markaði. Þetta hefur einnig haft mikla þjóðhagslega þýðingu, því að togaraflotinn hefur aflað okkur meiri gjaldeyris með þessu en ef það hefði verið flutt út óunnið á erlendan markað. Sú reynsla, sem fengizt hefur með veiðum þessum, færir heim sanninn um það, að sjálfsagt er að grípa til þessa úrræðis á þeim stöðum, sem atvinnuleysið herjar mest, og með lítilli aðgerð af því opinbera ætti að vera hægt að koma því við. Nú er mikið atvinnuleysi, ekki sízt á Vestfjörðum, og finnst okkur sjálfsagt, að það opinbera leggi nokkuð á sig til þess að koma þessu í kring. Togararnir veiða mikinn hluta aflans úti fyrir Vestfjörðum. Sjávarþorpin þar liggja því vel við til að leggja þar upp fiskinn. Að mínum dómi ætti að vera hægt að útrýma öllu atvinnuleysi á Vestfjörðum um þetta leyti árs og á svipaðan hátt leysa úr atvinnuleysinu á Norðurlandi og Austfjörðum. En til þess að þannig sé hægt með góðu móti að reka frystihúsin og togarana á þennan hátt, þarf að gera ýmsar framkvæmdir og endurbætur á útgerðarstöðunum og gefa fleiri stöðum kost á að taka á móti aflanum. Togararnir, sem eru afkastamiklir, heimta greiða afgreiðslu á öllum sviðum, og þurfa því hafnirnar, sem þeir leggja upp á, að hafa allt það, sem þeir þarfnast til rekstrar síns.

Við flm. þessa frv. höfum því gert ráð fyrir, að ríkisvaldið komi til móts við útgerðarbæina. Með tilliti til þess, að hægt sé að koma þessum málum í framkvæmd, þá ætti að velta þeim bæjum fjárhagslegan styrk til að geta tekið á móti togaraflotanum. Á sumum stöðum mundi þurfa að auka afköst frystihúsanna, en ekki þyrfti þess alls staðar, en sérstaklega þyrfti að bæta löndunaraðstöðu togaranna í kauptúnunum og þorpunum, en af skiljanlegum ástæðum hefur öll aðstaða þar verið miðuð við löndun afla úr smærri skipum en togurum. Á öðrum stöðum mundi þurfa að koma upp olíustöðvum, svo að líka þar væri hægt að afgreiða olíu til stærri veiðiskipa, til þess að skipin fái betur borið rekstur sinn og til þess að þau þurfi ekki að leggja krók á leið sína til fjarlægra staða eftir olíu. En til þess að koma því þannig fyrir, að aðstaðan í ýmsum kaupstöðum og kauptúnum verði góð, þarf fé. Ég efast ekki um, að hv. alþm. viðurkenni, að það sé fyllilega í það leggjandi að láta nokkurt fé af mörkum í þessu skyni, til þess að skapa möguleika til atvinnurekstrar, sem jafnframt gæti leyst atvinnuvandræði þessara staða. Í þessu frv. hefur verið gert ráð fyrir því, að nokkru fé úr mótvirðissjóði yrði varið í þessu skyni, og það gerir ráð fyrir, að Alþ. skipi sérstaka fimm manna n., sem hefur yfirumsjón með því fé, sem ætlað er að gangi til hvers staðar fyrir sig. Að öðru leyti yrði féð veitt sem lán til bæjar- og sveitarfélaga til tuttugu ára með 4% vöxtum og lánin veitt til þess að gera aðstoðina sem almennasta.

Það er skoðun okkar flm., að nú þegar hafi það miklu af fé mótvirðissjóðs, þ. e. a. s. frá Marshallaðstoðinni, verið varið til framkvæmda í Reykjavík og nágrenni hennar, að sanngjarnt sé, að þessu verði varið til slíkra framkvæmda sem frv. gerir ráð fyrir í kaupstöðum og þorpum úti á landi. Af þessu Marshallfé hefur miklu verið varið til bygginga við Faxaflóa, þrjár verksmiðjur byggðar hér í Reykjavík, tvær þeirra í landi og ein, sem jafnan liggur hér í höfn, þ. e. síldarverksmiðjan í Hæringi. Þrjár til fjórar aðrar verksmiðjur hafa svo verið byggðar hér við Faxaflóa að miklu leyti fyrir Marshallfé. Nú hefur verið gert ráð fyrir að verja af þessu fé til byggingar verksmiðja bæði í Reykjavik og á Akranesi, og er þá ekki nema sanngjarnt, að nokkru verði varið, eins og frv. gerir ráð fyrir, til þess að tryggja afkomumöguleika fólks í þorpum og kaupstöðum úti á landi. — Þá er gert ráð fyrir því í þessu frv. að veita nokkuð til sveitarfélaga, sem byggja afkomu sína á landbúnaði, og sérstök ákvæði eru því í frv. um, að nokkuð af fé mótvirðissjóðs fari til þess að bæta úr ástandinu í sveitum landsins. Meðflm. minn að frv. mun ræða þetta nánar. En ég vil undirstrika það sérstaklega, að öll rök mæla með því, að þessir staðir fái þau fjárframlög, sem gert er ráð fyrir í frv., bæði til þess að koma atvinnuvegunum sem bezt fyrir á hverjum stað, og séð frá sjónarmiði þjóðfélagsins er það réttmætt að ráðast í þessar framkvæmdir. Frv. gerir þannig í rauninni ráð fyrir því, að þessi lán bæti afkomu- og atvinnumöguleika í þessum byggðarlögum.

Mér virðist ekki hafa verið bent á aðra möguleika, sem væru hagkvæmari fyrir þessa staði og fyrir atvinnureksturinn í landinu og þjóðarheildina en gert er með þessum till. Það ber einnig að athuga í þessu sambandi, að hvað við kemur togaraflotanum, þá getur þarna verið um stórfellda atvinnumöguleika að ræða fyrir þá. Það hlýtur að fara svo fyrir togaraflotanum, ef hann verður allur að sitja að Englandsmarkaðinum og leggja afla sinn upp þar, að markaðurinn mun falla og útgerðin og sjómenn verða fyrir stórtjóni. Með þessari till. mætti beita verulegum hluta flotans til veiða fyrir innlendan markað og vinna úr aflanum hér innanlands og auka þannig atvinnuna og útflutningsverðmæti aflans í stað þess að flytja hann út óunninn. Þannig mætti auka gjaldeyristekjurnar af honum.

Ég býst við, að sumir muni nú spyrja: Er þá ekki hætt við, að ekki verði markaður fyrir allan þennan frysta fisk, sem landsmenn þannig mundu framleiða? — En það er staðreynd, sem fyrir okkur liggur, að undanfarið hefur verið mun meiri eftirspurn eftir frosnum fiski fyrir erlendan markað en við höfum getað fullnægt. Við höfum orðið að neita um sölur á frosnum fiski fyrir hagstætt verð, af því að frosinn fiskur var ekki til. Ég tel því allt benda til þess, að ef togaraflotanum verður beitt á þennan hátt, sem hér er gert ráð fyrir, þá muni ekki um markaðsörðugleika að ræða fyrst um sinn.

Ástæðan til þess, að ekki er þegar búið að framkvæma margt af því, sem hér er gert ráð fyrir, er fyrst og fremst sú, að lánsstofnun sú, sem ríkir yfir fjármagninu, hefur ekki leyft að lána nægilega mikið til þessara framkvæmda. Það er nauðsynlegt, að ríkisstj. hlutist til um að ráða bót á þessu. Lánveitingar bankanna til þessa rekstrar hafa verið of knappar til þess, að hann gæti staðið undir öllum sínum kröfum.

Ég tel ekki þörf að ræða öllu meira um þetta á þessu stigi málsins, en það er skoðun mín, að fyrr eða síðar verði horfið að því ráði að reka togaraflotann til veiða fyrir innlendan, fullkominn fiskiðnað og efla þannig atvinnumöguleika manna bæði á sjó og landi. — Ég vona, að þetta frv. fái góðar undirtektir og verði að umr. lokinni vísað til allshn.