05.11.1951
Neðri deild: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 249 í C-deild Alþingistíðinda. (2693)
86. mál, sýsluvegasjóðir
Jón Pálmason:
Mér þykir ástæða til að segja nokkur orð um þetta mál. — Þegar breyt. var gerð á vegalögum 1947, var felld niður skylda ríkisins til að borga á móti framlagi sýslusjóðs. Var þetta þá gert í sparnaðarskyni fyrir ríkissjóð. Síðan þetta gerðist hafa orðið svo gífurlegar hækkanir á öllum kostnaðarhliðum við vegagerð, að sýslusjóðirnir eru orðnir mjög illa staddir. Þetta frv. stefnir vissulega í rétta átt, en fullnægir þó hvergi þeirri þörf, sem hér er fyrir hendi, ef vegalögin verða ekki opnuð. Ég vil því víkja þeim orðum að hæstv. samgmrh., að ef vegalögin verða ekki opnuð eitthvað nú þegar, þá verði að stíga lengra skref til móts við sýsluvegasjóðina, ef þeir eiga að vera færir um að anna því hlutverki, sem þeim er ætlað. En því tek ég þetta fram hér núna, að þessi tvö frv., frv. það, sem hér er til umr., og frv. um breyt. á vegal., sem alls ekki má rugla saman og koma hvorugt í staðinn fyrir hitt, eru þó svo samofin, að taka verður tillit til hvors um sig við afgreiðslu hins. Það fyrra er fram komið í samræmi við það síðara og til fyllingar á því. Og ég vildi láta þessi orð falla til að fyrirbyggja hugsanlegan misskilning í þessu sambandi.