05.11.1951
Neðri deild: 22. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 250 í C-deild Alþingistíðinda. (2694)
86. mál, sýsluvegasjóðir
Flm. (Skúli Guðmundsson):
Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. A-Húnv. sagði í ræðu sinni hér áðan, vil ég láta það koma fram, að það er engan veginn minn tilgangur, að þetta frv. eigi að koma í staðinn fyrir frv. það, er hann gat um um breyt. á vegal. Ég tel mjög ríka þörf á að bæta nýjum köflum inn á ríkisvegina. Það er rétt, að kostnaður allur við vegagerðir og vegaviðhald hefur hækkað mjög. Tekjur sýsluvegasjóðanna hafa hins vegar ekki hækkað neitt að mun. Stafar það mikið af því, að ekki hefur verið látið fara fram nýtt fasteignamat, en tekjur sýsluvegasjóðanna miðast við fasteignamat, og mundi því nýtt og réttlátt fasteignamat auka tekjur sýsluvegasjóðanna. Á þessu vildi ég vekja athygli og einnig taka það fram, að ég ætlast alls ekki til, að þetta frv. sé skoðað þannig, að það geti komið í stað frv. um breyt. á vegalögunum.