17.01.1952
Neðri deild: 60. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 260 í C-deild Alþingistíðinda. (2717)
92. mál, raforkulög
Gísli Guðmundsson:
Herra forseti. Á öndverðu þessu þingi flutti ég ásamt hv. þm. A-Sk. og hv. 2. þm. N-M. frv. um breyt. á raforkulögum. Þessu frv. var útbýtt 5. nóv. og var tekið til 1. umr. 6. nóv. og var vísað til n. sama dag. Nú er langt liðið á þingtímann, og vildi ég spyrja, hvað dveldi þetta frv. hjá n. og hvort ekki væri hægt að taka það á dagskrá fljótlega.