13.12.1951
Neðri deild: 42. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 264 í C-deild Alþingistíðinda. (2726)
99. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Mér virðist vera ástæða til að athuga þetta frv., sem hér er til 2. umr. Ég ber ekki á móti því, að það er þörf á að bæta úr lánsfjárskorti landbúnaðarins. Ég get vel fallizt á, að það er brýn þörf að fá lán til frumbýlinga, eins og nefnt er í 3. gr. Nú er erfitt að fá lán til að hefja búskap, hvort heldur er til að kaupa jörð, búpening eða verkfæri. Hér liggja fyrir tvö önnur frv. um svipað efni, um að auka framlag til landbúnaðarins. Í þessu frv. er gert ráð fyrir, að stofnlánadeildin láni frumbýlingum til jarðakaupa og séu þau lán til 40 ára, en önnur lán til 10 ára. Fé það, sem stofnlánadeildin á að fá, er 1 millj. úr ríkissjóði, sem á að skila aftur á 10 árum, og gert er ráð fyrir, að deildin taki við sparifjárinnlögum. Þessi innlög, sem deildinni er ætlað að taka við, eiga að vera þannig, að þau séu skattfrjáls. ekki sé skylt að telja þau fram til skatts eða annarra gjalda, og stjórn bankans á að vera bannað að gefa upp nöfn þeirra, sem eiga féð. Ég rak augun í það áðan, að ekki er tekið fram í frv., að þetta fé sé bundið í ákveðinn tíma. Menn geta fengið skattfrelsi út á það, þó að þeir leggi það aðeins inn í bili, en taki það svo fljótt út aftur. Hins vegar er deildinni ætlað að veita lán til 40 ára og önnur til 10 ára. Mér sýnist, að deildin geti lent í erfiðleikum, ef á einhverjum tíma er tekið út mikið fé, en henni er ætlað að veita lán, sem bundið er í langan tíma. Ég fæ ekki séð í frv., hvernig með þetta ætti að fara. Það gæti hafa vakað fyrir flm., að deildin lánaði það lítinn hluta af sparifénu, að aldrei þyrfti að koma til þess, að það yrði þurrð í sjóðnum. Þetta þyrfti að athuga nánar.
Ég vil benda á, að nú liggur frv. fyrir Ed., á þskj. 163, um skattfrelsi sparifjár, og hv. fjhn. Ed. hefur fyrir fáum dögum skilað nál. um þetta frv. Allir nm. hafa verið sammála um að mæla með frv. eins og það liggur fyrir. Einn nm. hefur að vísu tekið fram, að hann áskilji sér rétt til þess að flytja brtt. við frv., en annars hefur n. öll verið sammála um að mæla með frv. Ákvæðin þar eru heppilegri en í þessu frv. Þar er gert ráð fyrir, að allt fé, sem geymt er á vöxtum í bönkum og sparisjóðum, sé skattfrjálst. Þetta er þó bundið því skilyrði, að féð standi á vöxtum í minnst 6 mánuði. Svo er ákveðið í því frv., að sparifjáreigendum er skylt að greina frá, hvar fé þetta sé, þó að það sé ekki reiknað með til framtals, og bankastjórnum er skylt að svara fyrirspurnum um það. Ég tel, að svona ákvæði þurfi að vera, ef veita á skattfríðindi. Auk þess vil ég benda á, að það er sjálfsagt að fara fram á, að ákvæði um skattfríðindi gildi víðar en við þessa einu deild í einum banka. Það er eðlilegt að setja l. um þetta, eins og stefnt er að með frv. í Ed., en það er ómögulegt að veita þetta með öðru móti en að gera sparifjáreigendum skylt að gefa féð upp, þó að skattur sé ekki lagður á það. Ég vil nefna það, að sé þetta ekki gert og það fyrirkomulag haft, sem flm. ætlast til, hlýtur það að leiða til þess, að erfiðara verður fyrir skattayfirvöldin að komast að réttu um framtöl manna. Með þessu yrði mjög auðvelt fyrir menn, sem eiga laust fé í veltunni, að losna við að telja það fram, þó að þeir eigi engan eyri í þessari deild, en halda því fram, að þeir hafi lagt það þar inn. Eins og frv. er úr garði gert, er ómögulegt fyrir skattayfirvöldin að prófa sig áfram um þetta. Ég vil segja, að ef talið er eðlilegt, að sparifé sé skattfrjálst, eins og gert er ráð fyrir í frv. í Ed., kemur það ekki að sök með fé, sem er í bönkum, en það er mikið fé, sem er utan við bankana, og margir menn hér í Reykjavík, sem eiga laust fé og reka lánastarfsemi með það með háum vöxtum og hafa þannig meira upp úr því en með því að leggja það í banka. Ef frv. verður samþ. í þessu formi, verður opin leið fyrir þessa menn að komast hjá því að greiða eðlilega skatta af sinu fé með því að halda því fram við skattayfirvöldin, að þeir hafi lagt þetta fé inn hjá Stofnlánadeild landbúnaðarins. Mér sýnist, að ekki megi samþ. þetta á þennan hátt, og ætla ég því að flytja brtt. um þetta atriði. Ég hef ekki enn þá skrifað hana, en vildi mælast til þess við hæstv. forseta, að mér gæfist tóm til þess meðan málinu verður haldið áfram.
Annars sé ég ástæðu til að minnast á eitt atriði í sambandi við þetta mál. Ég held, að það ætti að athuga, hvort ekki væri rétt að gefa mönnum kost á að ávaxta fé í bönkum með þeim kjörum, að þeir fengju tryggingu gegn yerðfalli á því. Það, hve lánsfjárskorturinn er mikill og lítið fé er í bönkunum til útlána, á ekki sízt rætur að rekja til þess, hve illa er búið að sparifjáreigendum, þannig að fé það, sem stendur á vöxtum, getur rýrnað þegar aðrar eignir hækka í verði. Ég held, að það hefði meiri áhrif í þá átt að hvetja menn til að leggja fé í banka, ef þeim er veitt trygging gegn verðfalli, heldur en þó að þeir fengju skattfrelsi. Margir þeirra, sem leggja fé í banka, eru ekki auðugir menn, og skattfrelsi hefði ekki mikla fjárhagslega þýðingu fyrir þá, þó að það hefði nokkuð að segja. Hitt er áhrifaríkara, ef sett væru ákvæði um, að ef menn legðu inn fé, fengju þeir tryggingu fyrir því, að það rýrnaði ekki. Við Búnaðarbankann tæki t. d. stofnlánadeildin sparifé og lánaði það út og það fé væri lagt inn með þeim skilmálum fyrst og fremst, að það stæði inni í ákveðinn tíma, og innleggjandanum gefin trygging fyrir því, að hann fengi raunverulega út jafnmikil verðmæti miðað við helztu framleiðsluvörur landbúnaðarins. Ef maður t. d. leggur inn 100 ærverð og ætlar að láta þau standa í langan tíma, ætti það að vera tryggt, að hann fengi 100 ærverð þegar hann tekur féð aftur út. Mætti hér miða við söluverð á helztu framleiðsluvörum landbúnaðarins, t. d. mjólk og kjöti. Það er sanngjarnt, að sá, sem tekur lánin, taki þau með þeim skilmálum, að hann taki á sig ábyrgðina á verðfalli peninganna og skili aftur jafnmiklu verðmæti og hann fékk að láni. Ég held, að það sé rétt að gefa bönkunum möguleika á að taka fé til láns með þessum skilmálum. Þá er kveðinn niður ótti manna við það, að peningar þeirra falli í verði.
Þessu vildi ég skjóta fram í sambandi við málið, og getur verið, að ég taki það til nánari athugunar við 2. umr. frv., en eins og ég gat um áðan. þá ætla ég að flytja brtt. við það.