14.12.1951
Neðri deild: 44. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 271 í C-deild Alþingistíðinda. (2731)
99. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég gerði grein fyrir því við 1. umr., að ég mundi flytja brtt. við eitt ákvæði þessa frv. Það var reyndar búizt við því, að landbn. mundi taka málið til athugunar á ný, en af því hefur ekki orðið, og vildi ég leyfa mér að leggja fram skriflega brtt. Ég lýsti því yfir í gær, að ég teldi ákvæðin í 5. gr. um sparifé vera þannig, að ekki væri hægt að fallast á þau. Brtt. er um, að 2. málsgr. 5. gr. skuli orðast svo:
„Vextir skulu vera 3½%. Tryggingar eru hinar sömu sem í öðrum deildum Búnaðarbankans. Sparifé þetta skal vera skattfrjálst, svo og vextir af því sem tekjur, ef þeir eru lagðir við höfuðstólinn, enda sé spariféð óuppsegjanlegt nema með minnst 6 mánaða fyrirvara. Skylt er sparifjáreigendum að gera grein fyrir eign sinni í stofnlánadeildinni, þegar þeir telja fram til skatts, þótt sú eign reiknist ekki með við skattaútreikning.“
Í þessari till. eru ákvæði eins og í frv. því um skattfrelsi sparifjár, sem nú liggur fyrir Ed. og fjhn. þeirrar d. mælir einróma með. Vil ég því leggja til, að þessi breyt. verði gerð á greininni. Vil ég leyfa mér að biðja hæstv. forseta að koma þessari brtt. á framfæri.