18.12.1951
Neðri deild: 47. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (2741)
99. mál, Stofnlánadeild landbúnaðarins
Skúli Guðmundsson:
Ég hafði að vísu orð á því við 2. umr. málsins, að ég teldi vænlegt til þess að fá fé inn í bankadeildina, að verðtrygging yrði sett, en er hins vegar þeirrar skoðunar eftir lestur þessarar till., sem hér ræðir um, að það verði erfitt að framkvæma hana, og greiði því ekki atkv. um brtt.