06.12.1951
Efri deild: 38. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

2. mál, gengisskráning, launabreytingar, stóreignarskattur, framleiðslugj. o. fl.

Brynjólfur Bjarnason:

Herra forseti. Þar sem ég hef ekki skrifað undir það nál., sem hv. fjhn. hefur gefið út á þskj. 334, þykir mér rétt að gera nokkra grein fyrir minni afstöðu.

Ég var nefndinni algerlega sammála um afgreiðslu málsins, en þegar til kom treysti ég mér ekki til að undirskrifa nál. Það var þannig, að hv. frsm. n. skrifaði nál. sjálfur í stað þess, sem er venja, að það sé að minnsta kosti borið undir meðnefndarmenn, og þar sem ég sá, að það var skrifað út frá flokkspólitískum sjónarmiðum í verulegum atriðum, þá vildi ég ekki skrifa undir það. Það er að vísu óvenjulegt, að n. sé sammála, en geti ekki skrifað undir nál. öll, en ég er samt sem áður fylgjandi frv.

Það má að vísu segja um 2. brtt., sem er að öllu leyti samhljóða brbl. frá því í júní í sumar og fjallar um verð á landbúnaðarafurðum, að það hafi ekki verið þörf á að taka hana upp í frv., enda talaði frsm. um það. Og ég taldi þetta. óþarft og jafnvel óviðkunnanlegt í n. Ég tel, að þetta sé óþarft vegna þess, að þessi brbl. hafa þegar verið framkvæmd og öðlast ekki meira lagagildi fyrir það, þó að þetta sé samþykkt. Og ég verð að segja það fyrir mig, að ég kann ekki við að hafa það í lögum, sem er orðið óvirkt. En það má segja, að þetta sé aðeins formsatriði og skipti reyndar engu máli. Það er sagt, að þetta hafi verið tekið upp af því, að þessi l. hafi verið vefengd. En það er nú svo, að sá, sem vefengir, stendur ekkert betur að vigi, þó að þetta sé nú tekið í l., af því að brbl. voru l. og verða ekki frekar vefengd. Ég taldi þetta óviðkunnanlegt, en mun ekki gera það að neinu ágreiningsatriði.

Hvað snertir bráðabirgðaákvæðið, þá er ég því líka samþykkur, þó að ég efist hins vegar um það, að það hafi raungildi að fara að setja ný lög um verðlagsuppbætur. Hins vegar er ekki nema gott um það að segja, að ríkisstj. láti þessa athugun fara fram, svo að það verði ljóst, hvaða tekjur það eru, sem menn fá fyrir sinn vinnutíma, og það er nauðsynlegt fyrir alþingismenn að fá þessar upplýsingar sem gleggstar. Ég mæli því með, að þetta frv. verði samþykkt, þó að ég hafi ekki getað skrifað undir nál. af fyrrgreindum ástæðum.