11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 310 í C-deild Alþingistíðinda. (2858)
161. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Svo er ákveðið með l., að tiltekið skipulagsgjald svokallað skuli tekið af öllum nýbyggingum, og er því gjaldi ætlað að standast kostnað við undirbúning skipulagsins, þ. e. skrifstofu þá, sem gerir skipulagsuppdrætti. Nú hefur orðið sú breyting á síðustu ár varðandi Reykjavíkurbæ, að hann hefur tekið þetta í sínar hendur og stofnað sérstaka skipulagsdeild með nokkrum starfsmönnum, sem vinnur þessi verk öll, sem skrifstofa skipulagsstjóra vann áður. Er því þannig ástatt, að gjald er tekið af öllum nýbyggingum í Reykjavik, en skrifstofa skipulagsstjóra vinnur ekki skipulagsstarfið, heldur sérstök deild hjá Reykjavíkurbæ. Þætti okkur flm. því eðlilegt, að skipulagsgjaldið rynni til bæjar- og sveitarsjóða, þar sem svo er ástatt eins og ég hef greint, enda var tilgangurinn sá, að gjaldið stæði undir þessum kostnaði.
Ég vil taka fram, að þessi ráðstöfun er að sjálfsögðu gerð með bezta samkomulagi við skipulagsstjóra, og þessir tveir aðilar, skrifstofa skipulagsstjóra ríkisins og skipulagsdeild bæjarins, hafa alltaf haft gott samstarf. — Legg ég til, að þessu frv. verði vísað til hv. allshn.