11.01.1952
Neðri deild: 56. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 311 í C-deild Alþingistíðinda. (2860)
161. mál, skipulag kauptúna og sjávarþorpa
Flm. (Gunnar Thoroddsen):
Herra forseti. Með þessu frv. er engan veginn ætlunin að skerða starfsemi skrifstofu skipulagsstjóra, og er ekkert í frv., sem gefur það í skyn. Þó að lagt sé til, að nokkur hluti skipulagsgjaldsins renni til að standa undir kostnaði bæjar- og sveitarfélaga við að gera skipulagsuppdrætti, mundi auðvitað starfsemi skipulagsstjóra og skipulagsnefndar halda áfram. Þetta er inni á fjárl. og mundi verða greitt og er greitt úr ríkissjóði. Nú er t. d. ætlað nokkurt fé í fjárl. fyrir árið 1952 til þessara hluta, þannig að samþykkt frv. yrði á engan hátt til þess að skerða þessa starfsemi.
Í öðru lagi vil ég upplýsa það, sem meira að segja: er tekið fram, að frv, þetta nær til allra bæjar- og sveitarstjórna, en ekki Reykjavíkur einnar, því að í 1. gr. stendur: „Þar sem bæjar- eða sveitarstjórnir kosta skipulagsdeildir, er undirbúa eða gera skipulagsuppdrætti samkvæmt lögum þessum .....“ Til þess að fullnægja því, sem hv. þm. Hafnf. talaði um, mætti e. t. v. fella þarna niður orðið „skipulagsdeildir“ og orða upphafið þannig: Þar, sem bæjar- eða sveitarstjórnir undirbúa sjálfar eða gera skipulagsuppdrætti — o. s. frv.
Í þriðja lagi vil ég taka fram, að það er að vísu rétt, sem hv. þm. Hafnf. sagði, að skipulagsnefnd ríkisins hefði væntanlega getað annað þeim störfum, sem skipulagsdeild Reykjavíkurkaupstaðar hefur með höndum. Það er rétt, en ekki nema með því móti að fjölga þar stórkostlega starfsmönnum. Með þeim starfsmönnum, sem hún hefur á að skipa, væri þess enginn kostur. Það hefði þurft að bæta þar við mörgum starfsmönnum til að anna því verki, og meðfram vegna þess, að bæjarstjórn Rvíkur taldi litlar líkur til, að ríkið færi að fjölga starfsmönnum til þess að koma skipulagi Rvíkur í betra horf, var þessi deild sett á stofn, og ætla ég, að um það atriði hafi enginn ágreiningur verið.
Hitt vil ég aðeins undirstrika, sem er meginefni þessa máls, að þegar sveitarfélögin sjálf fara að hafa launað starfsfólk til þess að undirbúa sína skipulagsuppdrætti, er eðlilegt og í samræmi við tilgang þessarar löggjafar, að skipulagsgjaldið renni til að standa undir þeim kostnaði, en ekki eins og nú er, að skipulagsgjaldið frá Rvík sé látið renna til þess að standa undir kostnaði við skipulagsundirbúning úti á landi, en ekki í Reykjavík.