29.10.1951
Efri deild: 21. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 82 í B-deild Alþingistíðinda. (289)

59. mál, tollskrá

Frsm. minni hl. (Brynjólfur Bjarnason):

Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál. Ég og minn flokkur höfum jafnan verið andvígir þessari hækkun á tolli, frá því hún fyrst var á lögð, og erum það enn, og hef ég á hverju þingi á þessu tímabili fært fyrir því rök. Það er nú svo, að þetta er eitt af þeim mörgu frv. um hækkun á álögum, sem heita bráðabirgðahækkanir, þ.e.a.s. sú upphæð í tollaálagningunni, sem hér er um að ræða, hefur verið eins konar feimnismál, sem af einhverjum ástæðum hefur verið lögð á til bráðabirgða hverju sinni, en síðan framlengd, — og hefur raunar aldrei verið hugsuð til bráðabirgða, heldur til frambúðar.

Ég sagði áðan, að ég hefði alltaf verið andvígur efni þessa frv. — og minn flokkur, — og það liggja fyrir því enn þá gildari rök nú heldur en nokkru sinni fyrr, og ber þar bæði til, að þær ástæður, sem fram voru færðar fyrir þessari hækkun fyrst, er hún var á lögð, eru ekki lengur fyrir hendi, og svo það, að nú er vist, að það verður mikill tekjuafgangur á fjárl. 1951, þannig að enn þá minni ástæða er til þess nú að leggja þessa hækkun á þess vegna. Og ekki bætir það heldur úr skák, að nú er fellt niður það ákvæði, sem áður var og upp var tekið, þegar þessi hækkun var fyrst lögð á, og síðan hefur haldizt, að ekki sé heimilt að hækka álagningu á vöruverð vegna tollahækkana samkv. þessum lögum, og er það nú borið fyrir, að margar af þessum vörum eru ekki lengur undir verðlagseftirliti. En ekki er minnsti vafi á því, að álagningin á tollinn kemur fram í vöruverðinu, hvort sem vörurnar eru undir verðlagseftirliti eða ekki, þannig að þetta veldur nú enn þá frekari hækkun.

Ég legg því til, að þetta frv. verði fellt að öðru leyti en því, að ákvæði 3. gr. haldist, — sem sagt, ég legg til, að aðrar gr. frv. verði felldar, nema 4. gr. má gjarnan standa líka. 3. gr. fjallar um heimild til þess að fella niður aðflutningsgjald á nokkrum vörum.