07.12.1951
Efri deild: 39. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 326 í C-deild Alþingistíðinda. (2894)
16. mál, iðnaðarmálastjóra og framleiðsluráð
Frsm. 1. minni hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Út af brtt. á þskj. 287 vil ég segja það, að þær eru ekki annað en endurtekning á rökst. dagskrá, svo að þessi till. er því óþörf, og er jafngott að láta hana falla.
Um till. á þskj. 342 er það að segja, að ég veit ekki, hver er munurinn á vélaverkfræðingi og iðnaðarverkfræðingi í þessu tilliti, og geri það ekki að neinu kappsmáli, hvort verður, En ég geri ráð fyrir, að ef svo stæði á, að hægt væri að fá betri mann, sem jafnvel væri alls ekki verkfræðingur, þá gæti ráðh. alltaf gefið út brbl. um það. Ég geri það þess vegna ekki að kappsmáli, hvor till. verður samþ., en mun hins vegar greiða atkv. á móti þessari brtt.