23.10.1951
Efri deild: 19. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 336 í C-deild Alþingistíðinda. (2918)
62. mál, ítök
Frsm. (Páll Zóphóníasson):
Herra forseti. Eins og ég gat um við 1. umr., hefur n. breytt orðalagi á 5. gr., sem var tekin orðrétt upp eins og búnaðarþing mælti með henni. Breyt., sem við gerðum á frv. með þessu, eru smávægilegar, en ég vildi bara benda á þær.
N. taldi rétt að koma á móti hv. þm. Barð. sem benti á, að rétt væri, að ekki aðeins eigendur, heldur og líka umráðamenn hefðu þau réttindi að mæla á móti sölu ítaka. Breyt. á orðalaginu hafa verið gerðar í samræmi við þetta. Þeir eru líka til, sem búa erlendis eða í Rvík og hafa sína umboðsmenn eða ábúendur á jörðum sínum, og er þá rétt, að þessir menn geti komið í stað eigenda og gert sömu kröfur og þeir.
Önnur breyt., sem n. gerði, er sú, að n. telur rétt, að sá, sem óskar eftir að fá dómkvadda menn til þess að dæma ítaksþörf jarðar, sé látinn borga kostnaðinn af matinu. Við teljum rétt. að enginn geti leikið sér að því að fara út í þetta mat án þess að eiga það á hættu að þurfa að greiða kostnaðinn. — Aðrar efnisbreyt. á frv. eru ekki í till. n.
Þá vil ég geta þess, að það hefur verið bent á það af einstökum mönnum, að þegar um er að ræða sölu á ítökum opinberra jarða, þjóð eða kirkjujarða, þá gæti verið rétt, að andvirði það, sem fengist við þessa sölu og að vísu er venjulega lítið, gengi til endurbóta á þeirri jörð, sem missir ítak við söluna. Eins og l. eru nú um þetta efni, er ekkert tekið fram um það, hvað gera skuli við andvirðið. Til dæmis má taka, að nú á Stafholtskirkja rekaítak á Ströndum. Þá er í gildandi l. ekkert tekið fram um það, hvað gera skuli við andvirðið, ef ítakið væri selt. Þá vildu þeir láta verja andvirðinu til umbóta á Stafholtskirkju. Þetta er laust og óbundið í l., og liggur í valdi rn., hvað gera skuli hverju sinni. Við sáum því ekki beina ástæðu til að taka þetta upp í frv., en þetta er til athugunar, en ég segi frá þessu til þess, að þetta sjónarmið komi fram. Okkur þótti ekki rétt að binda þetta í l., því að það geta verið ástæður til að verja ekki andvirði ítaks þannig. Töldum við því rétt. að rn. ákveði það í hverju einstöku tilfelli. — Hef ég svo ekki annað um þetta að segja.