05.11.1951
Efri deild: 24. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 355 í C-deild Alþingistíðinda. (2948)
91. mál, togaraútgerð ríkisins
Flm. (Hannibal Valdimarsson):
Herra forseti. Hv. þm. Barð. hefur spurzt fyrir um það, hvort ekki væri réttara, að það stæði í frv., annaðhvort að fjárgreiðsla yrði jafnan tekin inn á fjárl. til þess að standa straum af greiðslu þessara fjögurra togara, sem um ræðir í frv., eða þá, að þar sé gert ráð fyrir lántöku af ríkisins hendi til þess að annast greiðslu á kaupverðinu. Ég tel þetta náttúrlega geta komið til athugunar. En ég hef nú litið þannig á, að þar sem fjárlög að jafnaði eru afgr. undir þinglokin, þá yrði nú á þinginu áður séð, hvaða afdrif þetta frv. fengi. Næði það samþykki, þá væri vitanlega rétt að gera ráð fyrir því á fjárl., að ríkið hefði eitthvert fé til umráða til að annast kaup á slíkum togurum. Ég býst við, að þetta bæri öllu fremur þannig að, ef frv. væri samþ., að þá hefði stjórn síldarverksmiðja ríkisins framkvæmdahlið þessa máls til meðferðar og það yrði reynt að finna út í samráði við reyndustu útgerðarmenn, hvaða stærð skipa væri hentugust til þess að inna þetta hlutverk af hendi, og þegar stjórn síldarverksmiðja ríkisins væri komin að niðurstöðu um það, þá leitaði hún tilboða um slík skip eða grennslaðist eftir því erlendis, hvort hægt væri að fá slík skip, sem okkur hentuðu, og þá gæti fyrst legið fyrir, hver fjárþörfin væri. E. t. v. gætu síldarverksmiðjur ríkisins að einhverju leyti séð um þetta og þyrftu síðan aðeins að fá einhverja aðstoð ríkisins, beina eða óbeina, til þess að geta komið þessu í kring. Ég tel því ekki alveg fullvíst, að það sé rétt á þessu stigi málsins að tiltaka neinar ákveðnar upphæðir, sem ætlazt væri til að teknar væru inn á fjárlög í þessu sambandi. Ég tel, að það þyrfti ekki frekar að vera málinu til tafar eða meins, þó að séð væri, hverju fram yndi í málinu að því er þetta snertir. Hins vegar, ef undirtektir undir málið væru það góðar á Alþ., að sýnt væri nú þegar, að málið væri líklegt til að sigla hraðbyri gegnum þingið, þætti mér ekki ólíklegt, að n., sem málið fær til meðferðar og mælti með frv., semdi þá till. um þetta atriði.
Viðvíkjandi öðrum spurningum hv. þm. Barð. skal ég segja þetta: Það hefur ekki vakað fyrir okkur flm. frv., að keyptir yrðu gömlu aflóga togararnir, sem við erum sammála hv. þm. Barð. um, að séu ekki til neins annars hæfir en að vera höggnir upp og ekki líklegir til að geta borið sig með því að breyta þeim í olíukynt skip, eins og stundum hefur verið talað um. Teljum við, að það komi ekki til greina. Hins vegar skal ég alls ekki segja, að útilokað sé, að það gætu verið einhverjir af nýsköpunartogurunum, sem gætu verið teknir í þetta hlutverk, ef það væri álit reyndra útgerðarmanna, að skip, sem ættu að inna þetta hlutverk af hendi, mættu alveg eins vera af þeirri stærð, sem þeir togarar hafa. En mér hefur heyrzt á ýmsum útgerðarmönnum, að ef ætti að miða rekstur togara við það að leggja afla skipanna á land eftir stuttar veiðiferðir hér heima, en þeim ekki ætlað að sigla með aflann til útlanda, svo sem Englands og Þýzkalands, þá mættu skipin vera smærri, til þess að draga úr útgerðarkostnaðinum, og miða þau að öllu leyti við það, að þau væru tæki til þjónustu við fiskiðnaðinn innanlands. En yrði sú skoðun ofan á, að alveg eins væri hægt að framkvæma þetta hlutverk með skipum af stærð nýsköpunartogaranna, þá gæti alveg eins komið til mála, ef slík skip væru til sölu, að ríkið keypti þau skip til þessara nota eða aflaði slíkra skipa til viðbótar við flotann. En fyrir okkur vakti, að í þessu skyni yrðu fengin ekki færri en fjögur ný skip af þeirri stærð og gerð, sem að áliti reyndustu útgerðarmanna væru hæfust til þess að inna þetta starf af hendi. Við bjuggumst þá við, að fyrir valinu yrðu smærri skip en nýsköpunartogararnir okkar eru.
Það kom fram í ræðu hv. þm. Barð., að einn nýsköpunartogarinn hefði hagað veiðum sínum þann veg að leggja afla sinn á land hér á landi. þ. e. á Akranesi, til þess að skapa atvinnu í landi. Þetta er rétt. Og mér er tjáð, að sú tilraun. sem gerð var um þetta með Bjarna Ólafsson. hafi gefizt þannig, að það hafi ekki verið tap á rekstrinum. Þetta gæti orðið til þess að sýna að það væri framkvæmanlegt að haga rekstri nýsköpunartogaranna þannig, að þeir legðu upp afla sinn til vinnslu hér á landi í hraðfrystihús og aðrar fiskvinnslustöðvar. Hitt er vitað, að þessi útgerðartilraun með Bjarna Ólafsson hefur gert rekstur hraðfrystihúsanna á Akranesi að mjög vissum gróðafyrirtækjum og valdið því, að þar hefur verið hver einasti maður vinnandi. Mér er sagt, að húsmæður almennt stundi vinnu til skiptis í hraðfrystihúsunum á Akranesi og komi börnunum fyrir til skiptis hver hjá annarri. Þannig hefur útgerðarfyrirkomulag þessa togara orðið til þess að mæta vinnuþörf karla og kvenna með vinnu í hraðfrystihúsunum í þessum bæ. Og ég er alveg sammála hv. þm. Barð. um það, að ef þessi rekstrartilhögun er eins arðvænleg fyrir útgerðina og hin, að sigla með aflann óunninn á erlendan markað og verja til þess geysilöngum tíma, þá er það auðsær gróði fyrir þjóðfélagið að taka heldur upp þessa tilhögun, sem höfð hefur nú verið með rekstur Bjarna Ólafssonar á Akranesi. Það hefur verið spurzt fyrir um það nú þrem til fjórum sinnum á síðustu vikum, hvað standi á bak við það eða valdi þeirri útgerðartilhögun að sigla með saltfiskinn af Grænlandsmiðum og til Danmerkur, og ekkert svar hefur komið við því, hvorki frá hendi útgerðarfyrirtækja eða ríkisvaldinu né frá neinum öðrum. Þetta fæst ekki upplýst. Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur nýlega gert kröfu til útgerðarfyrirtækisins Ísfirðings h/f um, að útkoman af veiðiför Sólborgar til Grænlands verði gerð upp sérstaklega, til þess að það komi í ljós, hvernig rekstrarútkoman er á því að fiska þar og fara með aflann til Danmerkur. En útgerðarstjórnin hefur ekki orðið við þessari kröfu enn. Bæjarstjórn Ísafjarðar hefur óskað þess eindregið við Ísfirðing h/f, að annar eða báðir togararnir verði látnir skipa upp hér á landi aflanum, sem nú er mokað upp á Halamiðum. Með því að leggja hann upp á Ísafirði og nálægum stöðum er hægt að bæta úr atvinnuleysi þar og í Hnífsdal og Bolungavík og Súðavík og setja atvinnutækin þar í fullan rekstur. Hins vegar er ekki hægt að gera kröfur um þetta, ef það kæmi í ljós, að þetta leiddi til taprekstrar, en undir öllum öðrum kringumstæðum er það hægt. En þessir togarar eru ekki reknir í bæjarrekstri, heldur er hlutafélag, sem gerir það, og þeir eru reknir eftir venjulegu siðferði hlutafélaga.
Hv. þm. Barð. talaði um, að það væri e. t. v. rétt af n., þegar hún fengi þetta frv. til meðferðar, að breyta þessu frv.í það að vera frv. um að óska eftir rannsókn á því, hvað kæmi til þess, að veiðiskip, sem héðan færu á Grænlandsveiðar, sigldu með afla sinn beint til Danmerkur, en kæmu ekki með veiði sína hingað til lands, svo sem saltfisk. Ég held, að það komi ekkert þessu máli við. Sú rannsókn mundi ekki bæta úr því ástandi, sem þessu frv. er ætlað að bæta úr víða um land í framtíðinni.
Mótbáran, sem hv. þm. Barð. hreyfði gegn því að kaupa ný skip til þessara nota, sem í frv. greinir, var sú, að það væri ekki hægt að fá þau í skyndi, heldur yrði að bíða eftir þeim í 2–3 ár. Menn sáu það, þegar samningurinn var gerður um byggingu tíu skipa í Bretlandi, að þeir togarar yrðu ekki afhentir og yrðu ekki atvinnutæki hér hjá okkur fyrr en að 2–3 árum liðnum, en samt var um smíði þeirra samið og kaup á þeim, vegna þess að það var álit manna, að þörf væri fyrir þessi atvinnutæki hjá okkur að 2–3 árum liðnum. Og ég get ekki séð, að atvinnuleysinu verði orðið útrýmt að þeim tíma liðnum, þegar hægt yrði að fá þessa togara í rekstur. Fyrir okkur vakir að fá ný skip, sem miðuð séu við það og fyrir það byggð að leggja aflann á land í fiskvinnslustöðvar og að stunda síldveiðar að sumrinu, þegar ekki væru líkur til, að atvinnuleysi þjakaði neins staðar á landinu, og að tillit væri tekið til þess um útbúnað skipanna, að þau væru álitleg síldveiðiskip.
Hv. þm. Barð. var svo í leiðinni í ræðu sinni að skeyta skapi sínu á bæjarútgerð togara, og það held ég að hafi verið alveg út í hött. Ég veit ekki til þess, að neyðarópin hafi verið háværari til ríkisins frá þeim bæjarfélögum, þar sem togaraútgerð er rekin á vegum bæjarins, heldur en þar, sem slíkt á sér ekki stað. Hitt er fremur hægt að benda á og rökstyðja, að þau bæjarfélög, sem hafa haft togara í rekstri, eru miklu betur fær en hin um að ráða fram úr atvinnuleysisvandræðum. Ég hygg, að fáir kaupstaðir á landinu og það er óhætt að segja, að enginn kaupstaður á landinu — geti látið inna aðra eins vinnu af hendi og bæjarfélagið í Hafnarfirði hefur látið gera, og hefur þetta numið á þriðju millj. kr. nú á yfirstandandi ári. Það hefur einnig verið upplýst, að bæjarútgerð Hafnarfjarðar er ætlað að borga gjöld, alveg eins og hún væri útgerð í einkarekstri. Og þessari útgerð er ætlað að leggja stórfé í jarðræktarframkvæmdirnar í Krýsuvík eins og öðrum fyrirtækjum, er slíkan rekstur hafa með höndum í Hafnarfirði. Það væri óskandi, að fleiri félög hefðu komið á hjá sér bæjarútgerð, því að bæjarútgerð Hafnarfjarðar er undirrótin að því, að Hafnarfjörður er bezt stæða bæjarfélagið á landinu. Það er ekki heldur því til að dreifa, að hægt sé að koma því eingöngu á bæjarútgerðirnar, að þær hafi gert sig sekar um að láta skip sín sigla til Esbjerg með fisk. Það hafa einstaklingsútgerðir líka gert. Ég tek undir það með hv. þm. Barð., að það beri að rannsaka, hvers vegna þetta hefur verið gert.
Ég vona, að það sé ljóst af því, sem ég hef nú sagt, að fyrir okkur flm. vakir, að keypt verði ný skip, sem miðuð væru við það tvenns konar hlutverk, sem ég hef getið um, bæði um stærð og annað, og að leitað verði álits reyndra útgerðarmanna um þetta, hvort sem svo keypt verða til þessa einhver af okkar nýju skipum eða byggð ný skip og þá kannske smærri. Og reynslan af rekstri togarans Bjarna Ólafssonar á Akranesi gæti bent í þá átt, — af því, hve mikla blessun rekstur hans hefur veitt viðkomandi bæjarfélagi, — að slíku væri hægt að koma fram víðar. Það er hugsanlegt, að sá þegnskapur hafi verið ríkjandi hjá eigendum togarans, að þeir hafi unnið það til að láta hann leggja afla sinn á land til vinnslu til þess að skapa atvinnu í landi og vegna bættrar afkomu atvinnufyrirtækjanna í landi, þó að útgerðin sjálf hefði ekki af því jafngóðan hag og með því að selja aflann á brezkum eða þýzkum markaði eða í Esbjerg. Þetta hef ég ekki fengið upplýst. En ég hefði getað vænzt þess af hv. þm. Barð., að hann ræddi um það, og jafnvel miklu fremur en um rannsókn á orsökum þess, hvers vegna togararnir hafa selt í Esbjerg, hvort ekki væri þörf á því að útvega hráefni fyrir fiskiðnaðarfyrirtæki á hinum einstöku stöðum kringum landið og hvort hann telji það fráleita aðferð að afla þessa hráefnis með togurum. Þó að mokafli sé nú á Halamiðum, hafa vélbátarnir á Vestfjörðum, sem ekki ná til að fiska á djúpmiðum, ekki fengið neinn afla í haust, og þannig hefur þetta verið haust eftir haust. Afleiðingin hefur orðið sú, að atvinnuleysi hefur þjakað fólkið á þessum stöðum. Það er hv. þm. Barð. jafnkunnugt um og mér. Og einstaka staðir hafa verið að reyna að ráða á þessu bót með því að setja í gang meira eða minna ófrjóa atvinnubótavinnu. — Ég teldi líka mjög æskilegt, að það væri rætt af jafnreyndum útgerðarmanni og hv. þm. Barð. er, hvort það væri alveg vonlaust verk að gera út ríkistogara á þennan hátt. Það teldi ég rök í þessu máli, ef hægt væri að benda á, að slík togaraútgerð væri auðsær hallarekstur, og þá hvers vegna hún væri það fremur en önnur togaraútgerð. Hins vegar dylst engum, að mikið væri við það unnið, ef hægt væri að haga þessu svona, eins og í frv. er stungið upp á, fyrir þá staði, sem fengju lagðan upp hjá sér afla þessara skipa, til að auka atvinnu einstakra manna og tryggja rekstur hraðfrystihúsa, sem nú standa að verulegu leyti ónotuð ár eftir ár, á vissum árstímum a. m. k.