06.11.1951
Efri deild: 25. fundur, 71. löggjafarþing.
Sjá dálk 368 í C-deild Alþingistíðinda. (2956)
93. mál, skattfrelsi sparifjár
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Þó að ég viðurkenni fúslega það, sem hv. síðasti ræðumaður sagði um það, sem stafaði af ýmsum ráðstöfunum upp á siðkastið, stendur þó þetta mál dýpri rótum en það, því að verðrýrnun peninganna er ekkert einkennandi fyrir Ísland, heldur fyrirbrigði, sem komið hefur fram hjá öllum þjóðum undanfarinn mannsaldur. Peningarnir hafa verið að falla í verði allan tímann, svo að þetta er frekar alþjóðavandamál, þó að við séum að þessu leyti verr staddir en ýmsar aðrar þjóðir, m. a. af því, að við neyddumst til að fella gengið. Þó að vandinn sé misjafnlega mikill hjá þjóðunum, blasir hann við svo að segja hjá hverri einustu þjóð í álfunni. Mikil og knýjandi nauðsyn er af þessum sökum til að finna leið til að hægt sé að halda uppi sparifjársöfnun í landinu. Ég hef ekki trú á, að sú leið, er hv. þm., er síðast talaði, benti á, mundi bæta úr því, og þó að sú leið yrði reynd, mundi hún reynast óframkvæmanleg. Mér finnst nú tækifæri fyrir fjhn. Ed., fyrst þetta frv. er komið fram, til að athuga þessi mál í heild. Ég tel, að þetta frv. nái ekki þeim tilgangi, sem þarf að nást, að menn fái hvöt til að leggja fé til hliðar til framkvæmda. Ég álít, að það sé gengið of stutt hér, þar sem aðeins er rætt um að veita mönnum skattfrelsi af þessari eign og eignarskatti létt af því, sem menn eiga í sparisjóðum. Þetta er ákaflega lítils virði og gefur enga hvöt til að safna sparifé og sízt hjá hinum smærri sparifjáreigendum, sem ekki komast í eignarskatt. Hitt, að vextirnir af slíku fé séu skattfrjálsir, er að vísu nokkur hvöt, en þó held ég, að það sé ekki nóg til að vera hvöt til, að menn leggi fé sitt í sparisjóði. Ég skal ekki fara lengra út í þá sálma, en álit að eigi að ganga miklu lengra í þá átt en hér er gert. Ég ætla ekki að slá fram neinum tillögum í þeim efnum, en það er fyllilega athugandi að veita skattfrelsi af því fé, sem lagt er inn í sparisjóði og liggur þar bundið ákveðinn tíma. — Það er eitt, sem mér er ekki fyllilega ljóst í sambandi við 1. gr. þessa frv., en það er, hvort flm. ætlast til þess, að þetta fé hafi öðlazt skattfrelsi eftir að hafa verið bundið í 6 mánuði á sparisjóði eða hvort það eigi að vera bundið alltaf meðan það nýtur þessa skattfrelsis. Hvað vextina snertir hlýtur öflun vaxta að vera skattfrjáls, ef féð stendur inni í 6 mánuði, en að öðru leyti virðist mér benda til þess, að féð verði að vera bundið, ef það á að njóta skattfrelsisins. (KK: Það er nóg, að það standi inni sex mánuði.) Ef það er svo, að þetta fé á að öðlast skattfrelsi í eitt skipti fyrir öll, ef það liggur inni í 6 mánuði, þarf það að koma ljósar fram. Skal ég ekki fara lengra út í það, en svo sýnist mér, að 2. og 3. gr. frv. mættu gjarnan falla niður, ef sú kvöð væri sett, að þeir, sem gerðu kröfu til skattfrelsisins, sendu vottorð um innstæður sínar til skattstjóra eða skattanefnda. Tel ég það betra en að setja svona ákvæði. Finnst mér það ekki of mikil kvöð, að menn sendi vottorð sitt til viðkomandi skattyfirvalda. Þar leggja þeir sjálfir fram skilríki fyrir því, að þeir eigi rétt þessara fríðinda. — Skal ég svo ekki fara lengra út í þetta, en vil beina því til þeirrar hv. n., er athugar frv., að hún taki málið á víðari grundvelli en fram kemur í þessu frv.